Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Steinn Steinarr og nasistarnir: „Kröfðust sýknu því ekki var um þjóðfána að ræða heldur hakakross“

Þann 6. ágúst, 1933, fór Steinn Steinarr í samfylgd tveggja manna, að heimili útgerðar­manns og vara­ræðismanns þýska­lands og tóku niður haka­krossfánann sem blakti í garði hans, skáru í sundur og tröðkuðu svo á honum. Fyrir það voru þeir ákærðir.

Árið 1933 fór Steinn Steinarr (Aðalsteinn Krist­mundsson) til Siglu­fjarðar til að vinna í síld. Var Steinn þá hálf­þrítugur og ekki enn orðið eitt ástsælasta skáld þjóðarinnar þó hann hefði fengið birt eftir sig nokkur ljóð undir skálda­nafninu Steinn Steinarr.

Dagblaðið sáluga, 24 stundir, fjallaði um þetta gamla dómsmál árið 2008. Þar kemur fram að Steinn hafi ásamt þeim Þóroddi Guðmunds­syni og Eyjólfi Árnasyni, farið í heimsókn til Sophusar Blöndal, útgerða­manns og vara­ræðismanns þýska­lands, á heimili hans á Siglu­firði. Úti í garði blakti þýski fáninn ásamt haka­krossfána Adolfs Hitlers sem þá var nýtekinn við kanslara­stöðunni í Þýska­landi en Hitler hafði fyrir­skipað að alltaf skyldi haka­krossfáni blakta með þýska þjóð­fánanum. Ekki leyst þeim á sjónina þeim félögum en Þóroddur hafði sagt að hann teldi sig vera í fullum rétti til þess að taka niður fána  „blóð­hundsins Hitlers.“

Þremenningarnir gengu svo út í garð og að fána­stöngunum og Þóroddur skar haka­krossinn niður og rifu síðan fánann í sundur og hentu í jörðina. Þá tröðkuðu þríeykið á fána­leifunum, svona til að sýna haka­krossinum fullkomna vanvirðingu.

Tveir menn, þeir Gunnar Jóhannsson og Aðalbjörn Pétursson, sem voru með í för, horfðu á en aðhöfðust ekkert en annað er hægt að segja um önnur vitni sem atvikið sáu. Þeir fimm voru nefnilega kærðir fyrir að sýna erlendum fána lítilsvirðingu sem og fyrir að móðga og ráðast á Þýska ríkið með þessu athæfi.

Eins og kemur fram í 24 stundum, kröfðust fimmmeningarnir sýknu í málinu á þeim forsendum að ekki hafi verið um þjóðfána að ræða, heldur hafi haka­krossfáninn verið fáni stjórn­málaflokks Nasista og að fyrir­skipun Hitlers um að haka­krossfáninn væri jafnhár þýska fánanum, hefði ekki verið sett fyrr en í september 1933. Þá héldu þeir því fram að stjórn Hitlers væri ekki lögleg stjórn Þýska­lands. Héraðs­dómur féllst ekki á þessi rök og dæmdi þá seka um „refsiverða móðgun.“

Eyjólfur, Steinn og Þóroddur fengu hver um sig þriggja mánaða fangelsisdóm en þeir Gunnar og Aðalbjörn tveggja mánaða fangelsisdóm. Málið var tekið fyrir í Hæstarétti þar sem Þóroddur játaði að hafa látið hafa það eftir sig að hann teldi sig í fullum rétti til að taka niður hakakross blóð­hundsins Hitlers. Dómurinn yfir þeim var mildaður niður í tvo mánuði. Steinn Steinarr þurfti þó ekki að sitja inni þar sem félagarnir fengu sakar­uppgjöf.

Baksýnis­spegill þessi birtist áður þann 11. nóvember, 2021.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið