Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Skotveiðimenn hundsa Almannavarnir: Farnir á fjöll með eigin sóttvarnareglur

Veiðimenn halda til fjalla í dag, þrátt fyrir að Almannavarnir banni það.
Veiði­menn halda til fjalla í dag, þrátt fyrir að Almanna­varnir banni það.

Félag skot­veiðimanna, Skotvís, fellst ekki á ferðabann sem Almanna­varnir hafa sett á skot­veiðimenn um þessa helgi vegna útbreiðslu Covid-19. Þess í stað halda veiðimenn til fjalla og hefur félagið sett sínar eigin reglur um það hvernig veiðimenn eigi hegða sér á ferðalagi sínu og í veiðiferð um helgina.

„SKOTVÍS hefur að eigin frumkvæði sett í gang með nokkrum fyrirvara herferð þar sem veiðimenn eru hvattir til að huga að sótt­vörnum,“ segir í tilkynningu félagsins.

Í yfir­lýsingu félagsins á Facebook kemur fram að veiðimenn eru reiðir stjórn­völdum fyrir að hafa ekki haft samráð við félagið áður en tilmælin voru sett fram. Segja félags­menn ósann­gjarnt að fólk megi stunda almmenna útivist, fara í sumar­bústaði en skyttum sé bannað að fara til fjalla. Innlegg félagsins í málin er að banna ekki sínum mönnum að fara til fjalla á skot­veiðar en leggja til eigin sóttvarna­reglur. Reikna má með að fjöldi veiði­manna sé á faralds­fæti þessa helgina, þrátt fyrir fyrirmæli Almanna­varna.

Ein af ástæðum ferða­bannsins er að algengt er að kalla þurfi út björgunar­sveitir vegna veiði­manna sem komst hafa í villu eða neyð.

Tilkynning Skotvíss var birt á Facebook-síðu félagsins. Hér er hún í heild sinni:

„SKOTVÍS harmar að yfirvöld skuli ekki hafa verið í nánari samvinnu við félagið fyrir komandi rjúpna­veiði­tímabil.
Skot­veiðimenn óskuðu eftir fundi með Umhverfis­stofnun um komandi veiði­tímabil en fékk ekki og nú hafa Almanna­varnir gefið út yfir­lýsingu 5 klst áður en rjúpna­veiðin byrjar án samtals við veiðimenn.

Með samtali hefði t.d. verið hægt að fresta fyrstu helginni og bæta þá við annari í byrjun desember og/eða opna SV-svæðið fyrir skot­veiðum.

Einfaldar aðgerðir sem mótvægi en fengu ekki umræðu.

Samt er tekið fram að ALLIR eigi að halda sig heima. Það sýnist félaginu vera stefnu­breyting frá því í gær. Einfaldara hefði verið að segja fólki þá að ferðast innanhúss þessa helgi og tilkynna það fyrr. það skýtur skökku við að þessum tilmælum er eingöngu beint til veiði­manna en ekki annarar útivistar þar sem fólk er í meiri nánd t.d. ferðalaga í sumar­bústaði.

SKOTVÍS hefur að eigin frumkvæði sett í gang með nokkrum fyrirvara herferð þar sem veiðimenn eru hvattir til að huga að sótt­vörnum. Þar sem margir eru lagðir af stað eða geta ekki hætt við ferðir þá viljum við ítreka tilmæli okkar:

Forðist samneyti við aðra

Notið ekki þjónustu eða kaupið þjónustu

Ef tveir eða fleiri eru í bíl, hugið að sótt­vörnum, sprittið og verið með grímur.

Veiðiferð skal vera ferð frá A til B, veiðar á veiðislóð, ferða frá B til A.

Farið varlega, akið eftir aðstæðum og ekki leggja í tvísýnt veður.

Við erum ÖLL í þessu saman, en það krefst samvinnu, samtals og sveigjanleika.

Við skorum á veiðimenn að hlýða þeim reglum sem eru í gildi hverju sinni og skorum á stjórn­völd að taka upp beint samtal við hagsmuna­samtök veiði­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið