Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Aðdáendur Britney hafa gríðarlegar áhyggjur: „Hvað er í gangi?!“

Aðdáendur popp­dívunnar Britney Spears hafa enn og aftur áhyggjur af henni.

Britney Spears var á sínum tíma vinsælasta poppstjarna veraldar og álagið eftir því. Fór það svo að lokum svo að Britney fékk einhverskonar tauga­áfall og var hún að lokum svipt sjálfræði og faðir hennar tók yfir líf hennar. Missti hún meðal annars forræðið yfir börnum sínum og fjárráð. Aðdáendur hennar fóru að hafa áhyggjur af henni og bjuggu til myllu­merkið #freebritney og lásu alls konar skilaboð og merkingar í færslur hennar á samfélags­miðlum. Að lokum kom sann­leikurinn um ægivald föður hennar yfir líf hennar en í fyrra fékk hún loks vald á eigin lífi aftur eftir að dómstóll ytra veitti henni frelsi. Britney giftist honum Sam sínum í kjölfarið og hefur síðan verið ansi dugleg að birta af sér furðuleg dans­myndbönd og nektar­myndir í bland við aðrar nokkuð sérstakar færslur á Instagram.

En nú eru aðdáendur söng­dívunnar farnir að hafa heil­miklar áhyggjur af henni aftur. Ástæðan er einmitt sú að hún birti á löngum tíma engar nýlegar ljós­myndir af sér og þegar hún gerði það, voru það einmitt nektar­myndir sem hún virtist ekki hafa áhuga á að birta, miðað við svipinn sem hún setti upp, fannst mörgum. Helsta kenningin er sú að eigin­maður hennar Sam, sé að halda henni í einhverskonar gíslingu og stjórni öllum hennar gjörðum, líkt og faðir hennar gerði áður.

Við hverja færslu birtast nú áhyggjur og samsæris­kenningar þúsundir fylgjenda hennar sem tala aftur um að það þurfi að frelsa Britney á meðan aðrir vilja að hún sé látin í friði. Í nýjustu nektar­færslu hennar skrifar fjölmargir athuga­semdir og lýsa yfir áhyggjum sínum.

„Þessar myndir eru persónulegar að mér sýnist. Þeim var ekki ætlað að vera opinberaðar. Greini­lega er einhver að nota ljós­myndir hennar án hennar vitundar, enda hver myndi vilja birta svo slæmar myndir sem eru bara skjáskot? Mér þykir þetta mjög skrítið og þetta er bara að versna. Britney verður að svara með sönnun um að þetta sé í raun hún því aðdáendur hennar hafa gríðarlegar áhyggjur. Þetta er óhugnanlegt og ég segi venjulega „gerðu það sem þig langar og njóttu þín, þetta er þitt líf“ en hún sýnist ekki vera örugg,“ skrifaði einn áhyggju­fullur aðdáandi.

Ein konan skrifaði: „Ég held að hún sé dópuð með fullt af lyfjum“

Önnur skrifaði: „Fyrir utan þá staðreynd að hún virðist í vímu, þá eru þetta skjáskot úr myndavéla­síma (sjáið HDR í horninu) og fyrsta myndin er greini­lega breytt (veggurinn er skekktur). Hvað er í gangi?!“

Hér fyrir neðan má sjá þessa færslu:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Vissu ekki að 1.468 skilaboð hefðu varðveist
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt