Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Einn í gönguhóp Ólínu hvarf í þokunni – Runnu tvær grímur á hana þegar enginn kannaðist við manninn

Ólína Kjerúlf Þorvarðar­dóttir, rithöfundur og fyrr­verandi þingkona, segist vera meðal þess þriðjungs þjóðarinnar sem trúir á álfa, líkt og Frétta­blaðið greindi frá í morgun. Ekki nóg með það, þá segist hún hafa séð álf á Horn­ströndum. Einn í gönguhóp Ólínu hvarf þar í þoku og sást aldrei meir. Síðar kom í ljós að enginn hafði séð manninn nema Ólína.

Óhætt er að segja að saga hennar sé bæði dularfull og hrollvekandi, líkt og flestar sögur af huldu­fólki. „Álfasaga úr eigin reynslu­heimi. Í Frétta­blaðinu í morgun las ég að þriðjungur þjóðarinnar trúir á álfa. Það er allnokkuð. Fram kemur að fólk úti á landi sé trúaðra í þessum efnum en borgar­búar. Skiljanlegt er það, því að fólk úti á landi er í meiri nálægð við náttúruna og kynjar hennar. En, hér kemur sumsé álfasaga úr eigin ranni. Haldið ykkur,“ segir Ólína.

Hún segir þetta hafa skeð við Atlaskarð. „Fyrir fáum árum fór ég sem farar­stjóri, einu sinni sem oftar, með gönguhóp á Horn­strandir. Leiðin lá úr Hlöðuvík um Skálakamb og inn með Hælavík, undir Atlaskarð og áfram út á Hæla­víkurbjarg einn  sólríkan dag. Við fjalla­brúnir er þoku­gjarnt og þennan dag var tvísýnt um þoku þó að sól skini í  heiði á láglendi. Ég lagði því ríkt á við ferða­félagana að halda hópinn og fara ekki fram úr mér (ég er haldin hálf­gerðri ofsa­hræðslu við þoku, af ástæðum sem ekki verða raktar að sinni),“ skrifar Ólína.

Stuttu síðar veitti hún einum manni sérstakan gaum. „Jæja, þegar við erum komin upp Skála­kambinn sé ég að maður í gulum stakki – nokkuð nýlegum á að líta – og með göngu­stafi, er álengdar við mig vinstramegin, kannski 5-10 metra frá mér og gengur örlítið framar. Hann er ákveðinn í fasi og lítur aldrei upp. Ég geri engar athuga­semdir við þetta en ákveð að hafa auga með honum þegar nær dagi þoku­slæðunum sem voru farnar að teygja sig upp úr Atlask­arði. Göngum við þannig drjúga stund, ferðalangarnir allir í beinni halarófu á eftir mér. Siggi minn rak lestina eins og hans er vandi (hann passar upp á þá sem eru síðastir), en þessi náungi var alltaf í sömu afstöðu við hópinn,“ segir Ólína.

Hún fór að hafa áhyggjur af þessum manni. „Nú förum við að nálgast Atla­skarðið og þar með þoku­slæðinginn svo ég ákveð að hóa í þennan utan­lestar­gemling. Stoppa og kalla til hans. Ferða­félagar mínir stansa allir sem einn og stara til skiptist út í heiðina og á mig, furðu lostnir á svip. „Ég vil bara ekki týna honum“ segi ég afsakandi, og kalla aftur – en uppsker enn stærri augu og furðu­svipi hjá félögunum. „Hverjum?“ spyr þá sá sem næstur mér stóð. „Nú þessum í gula stakknum“ segi ég í sömu mund og ég sný mér aftur í þá áttina. En viti menn! Maðurinn var þá horfinn. Ekki inn í þokuna þó, því að þoku­bakkinn var nokkuð langt undan. Þarna var landslag með því móti að í raun var ekkert sem gat hulið ferðalang.“

Ólína segist hafa hugsað þetta lengi og reynt að finna eðlilega skýringu. „Hvað hafði orðið af manninum? Ég leit yfir hópinn, hélt að hann hefði kannski stokkið inn í hann aftur (þó það hefði verið ólíkleg að honum tækist það á örfáum sekúndum). Þar var enginn gulur stakkur. Maðurinn var einfald­lega horfinn eins og dögg fyrir sólu eftir að hafa fylgt okkur alla leiðina úr Skála­kambi og innundir Atlaskarð.“

Hún gerði lítið úr þessu við fólkið í göngu­hópnum, það væri ekki gæfulegt að fara­stjórinn ræddi við ósýnilega menn. „Ég ætla ekkert að reyna að lýsa svipnum á fólkinu þegar það horfði á mig og hugsaði sitt um þennan undarlega farar­stjóra sem hrópaði á ósýnilega vegfarendur út í loftið. Ég reyndi af veikum mætti að breiða yfir uppákomuna, muldraði eitthvað um missýn og steina (gula steina?) og þrammaði svo áfram í von um að þetta myndi gleymast.“

Hún segir þetta ekki vera hennar einu reynslu af álfafólki, þó þessi saga sé mest krassandi. „Raunar hef ég einstöku sinnum upplifað eitthvað álíka á ferðum um hrjóstur landsins. Meðan ég tók leitar­útköll með Skutli mínum (blessuð sé minning hans) kom fyrir, þegar við vorum við leitir í óbyggðum, að ég sá fólk á ferli sem ansaði mér ekki þegar ég kallaði til þess og hvarf svo fyrir næsta leiti án þess að birtast aftur. Ég veit auðvitað ekkert hvernig á því stóð, og dvaldi svosem ekki við þær hugsanir. Meira að segja í hamra­belti Úlarsfells í Mosfellsbæ sá ég eitt sinn tvær manneskjur hverfa inn í klettinn – báðar í nútíma­legum útivistar­fatnaði (engir skinnskór eða upphlutir þar), en inn í klettinn hurfu þau, annað í gulum stakki, hitt í rauðum,“ segir Ólína en bætir við að hún sé opin fyrir jarð­bundnari skýringum.

„Þannski er falin gönguleið þar á bak við klettinn? Gaman væri að vita það – ég hef enn ekki lagt á mig að athuga það með því að ganga þangað sjálf. Og á meðan ég hef ekki gert það, læt ég nægja að líta þangað upp í hvert sinn sem ég ek framhjá, velta fyrir mér hvernig í ósköpunum sé hægt að hverfa baki við hamra­beltið. Það bíður sinna skýringa – en þessar upplifanir ríma sæmilega við niður­stöðurnar sem kynntar voru í morgun um álfatrú lands­manna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá