Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Vítalía með nýjar uppljóstranir í sumarbústaðarmálinu: „Þórður Már braut á mér manna mest“

Vítalía Lazerova
Vítalía Lazerova Mynd: Instagram-skjáskot

Vítalía Lazareva upplýsir í samtali við Mannlíf að Þórður Már Jóhannesson, fráfar­andi stjórnar­formaður hjá Festi, hafi verið sá sem braut harkalegast á henni í sumar­bústað Þórðar Más á sínum tíma. Hún segir Þórð hafa meinað henni að yfirgefa bústaðinn og þannig svipt hana frelsi í raun.

Málið kom upp á yfir­borðið þegar Vítalía sagði frá því í samtali við Eddu Falak að fjórir lands­þekktir athafna­menn voru naktir í heitum potti með henni í ótilgreindum sumar­bústað. Hún segir ömurlegt ef satt reynist að Þórður Már Jóhannesson og Hreggviður Jónsson hafi átt hlut að máli við brott­hvarf Eggerts Þórs Krist­óferssonar framkvæmda­stjóra frá Festi. Eggert hafi reynst henni vel.

Sjá einnig: Þögnin um brott­hvarf Eggerts

Gull af manni

Vítalía Lazareva segir í samtali við Mannlíf að Eggert hafi reynst henni afar vel eftir að Þórður Már og Hreggviður, ásamt Ara Edwald fóru yfir öll mörk hennar í heitum potti í sumar­bústað. „Ég hringdi í hann sjálf, einhvern tíma í janúar eða febrúar minnir mig og hann hlustaði alveg rosalega mikið á mig og ég talaði við hann alveg heillengi. Mig langar að koma því til skila að ég á honum alveg órúlega mikið að þakka og mér líður alveg rosalega illa yfir því að búið sé að bola honum út úr Festi, ef það er staðreyndin. Ég vil bara að hann viti að ég á honum alveg gífurlega mikið að þakka og hann er greini­lega að standa með jafnréttinu, ekki bara í mínu máli heldur líka í KÍ málinu,“ sagði Vítalía og átti þá við gagnrýni Eggerts á stjórn Knattspyrnu­sambands Íslands í málum sem snéru að meintum kynferðis­brotum lands­liðsmanna. Vítalía segir að stelpurnar í Öfgum, Eddu Falak og fleiri segja að Eggert sé mjög góður maður sem trúir þolendum. „Hann er að gera rétt og þess vegna er verið að refsa honum sem er svo rangt. Þess vegna skrifaði ég færsluna á Twitter,“ sagði Vítalía en hún skrifaði færslu fyrir stuttu á Twitter um málið. „Hann er bara gull af manni og hann sýndi mér stuðning og hlustaði á mig. Við töluðum saman í klukku­tíma, hann vildi fá að vita hvað gerðist í sumar­bústaðnum því Þórður Már var búinn að segja allt öðruvísi frá þessu á stjórnar­fundi. Og hann sagðist trúa mér sem var mjög gott að heyra.“

Braut fjórum sinnum á henni

Fram kom í samtalinu við Vítalíu að Þórður Már hafi verið sá sem braut hvað mest á henni í sumarbústaðinum.

Þórður Már Jóhann­es­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Festar, er bor­inn þungum sökumum atburð­ina í sum­ar­bú­staðnum. Vítalía hefur kært til lö-greglu.

„Það má alveg koma fram að það var Þórður Már sem braut á mér manna mest. Það er Þórður, Ari og svo Hreggviður. Þórður braut á mér undir fjórum laga­greinum. Hann læsti mig inni, það er svona stórt hlið við sumar­bústaðinn og ég vildi keyra í burtu en Þórður neitaði að opna hliðið en hann á sumar­bústaðinn. Hann kom líka að mér þegar ég var í sturtu og bað mig um að glenna á mér klofið. Hann tróð fingri upp í enda­þarminn á mér og svo þegar ég fór að sofa kom hann inn og tróð fingrum upp í leggöngin á mér. Hann er svo að dreifa sögu­sögnum af mér úti í bæ, að við Arnar séum byrjuð saman aftur og fleira sem er bara bull. Við Arnar erum bara vinir, tölum saman annað slagið en hann er líka vitni í máli mínu gegn hinum. “

Golfklúbburinn

Vítalía sagði blaða­manni Mannlífs frá því að fyrr­verandi ástmanni hennar, Arnari Grant, hafi nú verið bolað út úr golfklúbbinum Stullarnir vegna stuðnings hans við Vítalíu en Hreggviður, Þórður Már og Logi Bergmann eru enn í klúbbnum.

Þórður Már Jóhann­es­son, Hregg­viður Jónsson, Ari Edwald, Arnar Grant og Logi Bergmann. Þeir koma við sögu í máli Vítalíu.

„Logi, Hreggviður og Þórður fá allir að spila en Arnari var bolað út. Ég talaði við mennina sem eru yfir golf­hópnum og spurði bara hvað væri í gangi og sagði að annað hvort spiluðu allir þessir menn með eða enginn þeirra. Þeir sögðust ætla að skoða þetta en svo heyrði ég í þeim aftur fyrir stuttu og þá sögðu þeir að hópurinn vildi ekki aðhafast neitt í málinu því hópurinn vildi ekki taka neinar hliðar. Þannig að þeir vilja leyfa mönnum, sem eru nú rann­sakaðir af lögreglunni að spila en ekki Arnari. Við skulum átta okkur á því að Arnar braut ekki á mér kynferðis­lega, það kom ýmislegt upp á hjá okkur líka og ég er ekkert að verja Arnar neitt. Þannig að þeir eru að hlífa kynferðis­afbrota­mönnum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið