Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

TikTok-stjarna lést skyndilega aðeins þrítug að aldri: „Ég mun ekki gefast upp“

Blessuð sé minning hennar
Blessuð sé minn­ing hennar Mynd: Trausti Hafsteinsson

TikTok-stjarnan Jehane Thomas er látin, aðeins þrítug að aldri.

Hin enska Jehane Thomas, sem sló í gegn á TikTok með myndbands­færslum sem tveggja bara móðir, er látin, þrítug að aldri.

Þeir deyja ungir sem guð­irnir elska.

Nokkrum mánuðum fyrir andlátið byrjaði hún að skrásetja heilsu­vanda sinn á samfélags­miðlinum en hún þjáðist meðal annars af gríðar­legum mígrenis­köstum. Góðvinur hennar staðfesti andlátið og hefur sett upp GoFundMe söfnunar­síðu fyrir fjöl­skyldu hennar.

„Jehane Thomas var þrítug móðir tveggja drengja er hún lést skyndi­lega 17. mars 2023,“ stendur á söfnunar­síðunni. „Þrátt fyrir að hún hafði þjáðst af mígreni og veikinda­köstum í nokkra mánuði var fráfall hennar algjör­lega óvænt og við erum öll gjör­samlega miður okkar.“

Hin sorglegu skilaboð frá vini Jehane, Alyx héldu áfram: „Börnin hennar tvö, Isaac (þriggja, næstum fjögurra ára) og Elijah (eins árs), er nú móður­lausir. Ég hef opnað þessa síðu í von um að safna svolitlum peningi svo hennar fallegu strákar geti upplifað góða æsku, búið til minningar og sjá til þess að þeim líði bærilega. Ekkert mun færa þeim móður sína aftur, en við vonum að þetta geti létt undan hjá fjölskldunni, vitandi af umhyggjunni og stuðningnum.“

Í síðasta myndbandi Jehane sem hún setti inn á TikTok, nokkrum dögum fyrir andlát hennar, sagði hún frá því að þrátt fyrir að hafa dvalið í sex daga á spítala vikuna áður, þyrfti hún aftur að leggjast inn. Hafði hún þá verið grein með sjón­taugabólgu. „Ég bíð enn eftir að fara í aðgerð,“ skrifaði hún við mynd­bandið. „Ástæðan fyrir því að þeir gerðu það ekki í síðustu viku var sú að það myndi leysa málið að vera með vökva í mér. Ég er með fjóra lítra af vökva í mér og hausinn á mér þennan morguninn er skelfi­legur. Ég er að bíða eftir að fá að vita hvort ég geti tekið eina af Frovatriptan töflunum mínum fyrir aðgerðina því ekkert annað verkjalyf virkar gegn þessum þrýsingi, eða hvort ég þurfi að bíta á jaxlinn og vona að skurð­aðgerðin veiti mér tafar­lausan létti. Ég get ekki lyft höfðinu án þess að þurfa að kasta upp og ég get ekki gengið, það þarf að keyra mér um í hjólastól út um allt. Svo slæmur er verkurinn.“

Áður en hún var lögð inn aftur, lýsti Jehane því í síðasta Instagram-færslu sinni, hvernig var að vera í burtu frá sonum sínum.

„Þetta er búin að vera mjög krefjandi vika, ekki bara líkamlega heldur líka andlega,“ skrifaði hún. „Ég hef saknað þessara tveggja svo mikið og mér finnst þeir hafa báðir vaxið svo mikið á meðan ég var í burtu. Ég er kannski komin heim en ég er enn að kljást við mígrenið, eins og ekkert hafi í raun verið gert eftir heila viku þar og ég vil miklu frekar meðhöndla þetta sjálf heima með þessum í kringum með en að vera skilin eftir í rúmi, alein dag og nótt, þannig að það er ekki búið að laga mig en ég mun ekki gefast upp.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Héraðs­dómur synjar foreldrum Sólons um vitna­leiðslu

Foreldrarnir vildu fá fram hvað sagt var á fundi sonar þeirra með starfsfólki Icelandair fyrir starfslok hans
Innlent

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Pólitík

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Meðal þeirra sem þar hafa búið eru Cher, Elton John, Lindsay Lohan og Courteney Cox.

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“