Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Ólöf Helga Adolfsdóttir býður sig fram sem forseta ASÍ: „Ég hef bara unnið láglaunastörf“

Ólöf Helga Adolfsdóttir
Ólöf Helga Adolfs­dóttir

„Ég hef mikinn áhuga á að taka þátt í hreyfingunni og er Alþýðu­samband Íslands eitt það mikil­vægasta sem við launafólk á Íslandi eigum. Mér finnst ekki vera hægt að setja það baráttu­laust í hendur fólks sem hefur í rauninni ekki trúverðug­leika til þess að leiða hreyfinguna, elur á sundrungu og setur í rauninni valda­hagsmuni sína fram yfir hagsmuni almenns félags­fólks,“ segir Ólöf Helga Adolfs­dóttir, ritari Eflingar, sem býður sig fram til forseta ASÍ en hún hefur sagt að mótframbjóðandi sinn og formaður VR, Ragnar Þór Ingólfsson, taki eigin valda­hagsmuni fram yfir hagsmuni almenns félags­fólks. Þing ASÍ hófst í morgun og verður nýr forseti kosinn á miðvikudaginn.

Ólöf Helga er spurð hverjar áherslur hennar yrðu ef hún settist í stól forseta ASÍ.

„Ég kem að sjálfsögðu með mínar áherslur að borðinu; ég brenn fyrir málefnum ungs fólks, fræðslu­málum, húsnæðis­málum og bara almennt jöfnuði. Ég er nátt­úrlega með mína rödd en það sem ég vil gera er að heyra í þing­fulltrúunum á þingi ASÍ, ég vil fylgja þeirri stefnu sem þing ASÍ setur og þeim ákvörðunum sem teknar eru á miðstjórnar­fundum.

Það er mik­il­vægt að við hugsum vel um hvernig mann­eskju við viljum hafa í þess­ari stöðu.

ASÍ er mjög dýrmætt og er mikilvægt að forseti ASÍ hafi trúverðug­leika fyrir það fyrsta, hafi áhuga á að eiga samtal við öll aðildar­félögin og meti sjónarmið allra. Það er mikilvægt fyrir hreyfinguna að allir geti fengið að tjá skoðun sína; raddir allra þurfa að heyrast. Það er mikilvægt að við hugsum vel um hvernig manneskju við viljum hafa í þessari stöðu og gleyma þá ekki að formaður VR gat ekki fordæmt hópuppsagnir skrifstofu­fólks þrátt fyrir að hafa átt þar félags­menn sjálfur og vera formaður félags sem er með mikinn fjölda félags­fólks í sínu félagi.“

Til að hleypa öllu upp

Að undan­förnu hefur verið fjallað um það í fjöl­miðlum að Agnieszka Ewa Ziólkowska, þáverandi starfandi formaður Eflingar, hafi fengið aðgang að tölvu­pósthólfi Sólveigar Önnu Jóns­dóttur og Viðars Þorsteins­sonar sem höfðu þá hætt hjá félaginu. Sólveig tilkynnti svo málið til Persónu­verndar. Kjarninn greindi frá því að Agnieszka hafi óskað eftir aðgangi að tölvu­póst­hólfunum í janúar og vísað til álits frá lögmanni um leyfi til þess og hafði hún aðgang að tölvu­póstinum til 13. apríl en það var stuttu eftir að Sólveig Anna hafði verið endur­kjörin formaður Eflingar og sneri þangað aftur.

Tíma­setn­ingin á þessu upp­þoti er bein­tengd þingi ASÍ.

Hvað vill Ólöf Helga segja um þetta? „Þetta eru venju­legir ferlar sem fóru þarna í gang. Við leituðum álits lögfræðinga en þau höfðu í þessu tilviki tvær vikur til þess að tæma öll einkagögn sem mögulega voru í þeim póst­hólfum sem tengdust vinnu­netföngum þeirra. Eftir það voru þetta í rauninni gögn félagsins enda póstar sem þau fengu vegna þeirrar stöðu sem þau gegndu. Það vantaði í rauninni bara gögn sem voru þarna inni til þess að halda áfram með ákveðin mál. Tíma­setningin á þessu uppþoti er beintengd þingi ASÍ. En Sólveig Anna veit til dæmis að ég mun standa uppi á þingi ASÍ og gagnrýna þau ólýðræðislegu vinnu­brögð hennar þegar hún valdi þing­fulltrúa Eflingar og svo veit hún líka að hópuppsagnar­málið er algjör­lega óuppgert innan ASÍ. Þannig að þetta er bara til þess að sverta mannorð þeirra sem mögulega gætu gagnrýnt hana – eða þau – á þinginu.“

Rosalega skrýtið

Ólöf Helga starfaði hjá Icelandair í nokkur ár sem hlaðmaður á Reykja­víkur­flugvelli og hafði verið trúnaðar­maður starfs­manna Icelandair á Reykjavíkurflugveli frá árinu 2018 og sem öryggis­trúnaðar­maður Vinnu­eftirlitsins frá 2020 þegar henni var sagt upp í fyrra og vakti það mikla athygli. Mál hennar var tekið fyrir af Félags­dómi og rak ASÍ málið fyrir hönd Eflingar. Aðal­meðferð fór fram 27. september síðastliðinn og er enn beðið niður­stöðu.

Ólöf Helga hafði verið í stjórn Eflingar þegar hún vann hjá Icelandair og varð svo eftir uppsögnina vara­formaður Eflingar um tíma. Þar gekk mikið á. Hvernig var fyrir hana að stíga þar inn eftir ólgu­sjóinn sem tengdist uppsögninni?

Þar fundum við hversu mik­il­vægt það er að inn­viðir ASÍ séu góðir.

„Þetta var rosalega skrýtið. Ég var nátt­úrlega í stjórn Eflingar og á þeim tíma­punkti hafði ég ekki fengið neinar upplýsingar um að það væri einhver óánægja hjá starfs­fólki skrif­stofunnar. Svo ég vissi í raun ekki hvert ástandið var innan skrif­stofunnar þar sem upplýsingarnar höfðu ekki borist til stjórnar. Svo þegar við Agnieszka fengum starfsemi Eflingar í fangið þá var ég að sjá það í fyrsta skipti með mínum eigin augum hvernig var komið fram við trúnaðar­menn og starfs­fólkið og var það ótrúlega leiðinlegt af því að ég var nátt­úrlega að horfa á þetta beint út frá minni baráttu sem trúnaðar­maður. Ég átti rosalega erfitt með það því að þegar mér var sagt upp störfum sem trúnaðar­maður þá upplifði ég nátt­úrlega mjög mikinn stuðning frá Eflingu og það var mikið lagt í að gera þetta opinbert því að það var svo mikil ósvífni að koma svona illa fram við trúnaðar­mann. Þarna var einmitt mjög mikilvægt fyrir mig og Agnieszka að geta leitað til ASÍ og þar fundum við hversu mikilvægt það er að innviðir ASÍ séu góðir; að aðildar­félög geti leitað til þeirra þegar þau eru í vandræðum eins og þarna. Við vorum mjög óreyndar en ég kynntist svo sannarlega starfsemi hreyfingarinnar á methraða og lærði ótrúlega margt. Ég á að sjálfsögðu ennþá margt ólært en ég er með mikla reynslu samt sem áður bæði sem láglauna­kona – enda hef ég alltaf unnið láglauna­störf og það er mikilvæg reynsla held ég í komandi baráttu – en líka að taka við félagi sem er klofið, að ákveðnu leyti líkt og eins og ASÍ er núna.“

Ólöf Helga er spurð hvaða áhrif það hafi haft á hana að vinna í þessum hvirfilbyl.

„Ég veit það ekki. Ég varð að sjálfsögðu stundum þreytt á kvöldin. Þetta voru oft langir vinnu­dagar þegar maður var í þessu. Mér finnst ekkert erfitt að fá einhverjar svona leiðinda­sögur og ásakanir þegar ég veit að þær eru ekki sannar og þá bara leiði ég þær hjá mér. Ég á mína fjöl­skyldu og mína vini; ég finn líka fyrir miklum stuðningi. Þannig að þetta hefur ekki haft mikil persónuleg áhrif á mig. Ég læt ekki sögu­sagnir og niðurrif hafa mikil áhrif á mig.“

Á réttri hillu

Ólöf Helga hefur ljáð öðrum rödd sína undan­farin ár. Hvað varð til þess að hún fór þessa leið?

„Ég kom fyrst fram í fjöl­miðlum fyrir rétt rúmu ári síðan eftir að mér hafði verið sagt upp hjá Icelandair og það var mjög skrýtið. Síðan þá hef ég verið mjög mikið í fjöl­miðlum og verið svolítið mikil rödd fyrir ákveðinn hóp fólks allavega. Ég leiddist út í trúnaðar­manna­starfið af því að mér finnst réttindi vera mikilvæg og mér finnst vera mikilvægt að við stöndum vörð um þau af því að við höfum alveg séð að ef við pössum okkur ekki þá eru atvinnu­rekendur meira en tilbúnir til þess að taka af okkur réttindi. Ég var í þeirri stöðu á mínum vinnustað að það var enginn tilbúinn til þess að sinna þessu starfi; síðasti trúnaðar­maður fór í annað félag þannig að ég tók þetta bara að mér af ákveðinni skyldu­rækni. Svo fann ég mig í þessu starfi; ég hafði gaman af því að lesa samninginn og í rauninni að eiga þetta samtal við yfirmenn.“

Hún varð trúnaðar­maður hjá Icelandair í mars 2018, hún var komin í trúnaðarráð í  nóvember og vorið 2019 var hún komin í stjórn Eflingar. Og varð svo vara­formaður.

Ég hef bara unnið lág­launa­störf alla mína starfsævi.

„Jú, að sjálfsögðu er ég rödd fyrir hluta af félags­mönnum Eflingar og fleira fólks. Ég hef bara unnið láglauna­störf alla mína starfsævi. Þetta var algjör­lega óvart en ég finn að þetta á vel við mig. Þarna fann ég algjör­lega mína hillu.“

Hún vill verða forseti ASÍ. Hvað með drauma til enn lengri tíma litið? Frami í stjórn­málum?

„Ég hef enga risastóra drauma um einhverjar stórar stöður. Ég vil endilega fá að taka þátt í að byggja upp betra samfélag fyrir okkur. Lágmarkið er að lægst launaða fólkið geti lifað af laununum sínum og að við getum öll leitað til læknis og farið til tann­læknis án þess að setja okkur í skuldir. Það þurfa ekki að vera einhverjar háar stöður til að vinna að þessu; ég vil bara fá að taka þátt.“

Eigum öll erindi

Ólöf Helga er spurð hvað hún hafi lært á sjálfa sig frá því hún varð trúnaðar­maður hjá Icelandair og gengið í gegnum það sem síðan tók við.

Við eigum öll erindi í stjórn og hvað sem er.

„Það sem mér finnst vera mikil­vægasti lærdómurinn er að þó ég sé láglaunamannskja og í rauninni ómenntuð þá eru mínar spurningar og athuga­semdir ekki vitlausar. Ég hef alveg vit á því hvað er mikilvægt fyrir mig. Það er eitthvað sem mér finnst að allt launafólk þurfi að gera sér grein fyrir varðandi sig sjálft. Við eigum öll erindi inn í stéttar­félögin okkar og við eigum öll erindi í stjórn og hvað sem er. Það er mikilvægt að gera sér grein fyrir því að raddir okkar eru mikil­vægar og ekkert rangari en aðrar. Ég er að eðlisfari mjög feimin og inni í mér þannig að þegar ég fer í viðtal þá þarf ég pínu að róa mig niður en þetta hefur vanist. Ég er orðin aðeins öruggari í þessu og það gerðist nokkuð hratt. Þegar ég missti starfið hjá Icelandair þá hringdu fjöl­miðlar mikið í mig og svo í kringum Eflingar­framboðið þannig að þegar það voru mörg símtöl á dag þá vandist þetta. En þetta er samt ennþá svolítið óþægilegt. En ég lærði að það sem ég hef að segja á jafnmikið rétt á sér og það sem aðrir hafa fram að færa.“

18 ára móðir

Ólöf Helga er Hafnfirðingur og býr þar enn þann dag í dag og nú ásamt dóttur sinni og hundinum þeirra; hún segir að frítímanum verji hún með þeim, kærastanum og við spil og viðhald á heimilinu. Hún er ritari Eflingar og stjórnar­maður þar og svo er hún í stjórn ASÍ.

Ólöf Helga er fimmta í röðinni af átta systkinum. „Ég á stóra fjöl­skyldu og ég ólst alltaf upp við það að einn bróðir minn dó áður en ég fæddist þannig að maður lærði strax að meta lífið og vera þakklátur fyrir að vera til. Við rifumst öll systkinin þannig að ég lærði að láta ekki áreiti hafa áhrif á mig og kannski að sætta mig við það þegar maður varð undir.“

Hana dreymdi um að verða lögfræðingur. Hún hóf nám við Kvenna­skólann í Reykjavík eftir grunn­skólanám og 18 ára gömul eignaðist hún dóttur sína sem er 16 ára í dag.

Ég hafði áhyggjur af því að ég væri að missa barnið.

Ólöf Helga talar um það erfiðasta sem hún hefur gengið í gegnum. „Það var þegar ég var gengin 17 vikur á leið en þá byrjaði að blæða og ég hafði áhyggjur af því að ég væri að missa barnið. Það var rosalega erfitt. Ég hringdi upp á spítala og fékk spurningar sem mér fannst vera skrýtnar svo sem hversu mikið væri að blæða og hvort það væri eins og ein matskeið. Ég skil þessar spurningar í dag en á meðan ég var að ganga í gegnum mikinn ótta þá gat ég ekki skilið þær. Ég veit í dag að það er ekki pláss, starfs­fólk eða fjármagn til að taka á móti öllum sem hafa áhyggjur og sem betur fer fór allt saman vel. Þetta var eitthvað sem enginn gat útskýrt en þetta var mjög erfitt og ég var mjög hrædd.“

Hvernig var að verða móðir 18 ára gömul?

„Þegar ég hugsa til baka þá var þetta yndis­legur tími en ég var oft hrædd. Ég var alltaf hrædd um að hún væri ekki að anda eins og flestir kannast við sem hafa eignast börn; sérstak­lega hvað vaðar fyrstu börn. Það heyrist svo lítið í þeim þegar þau eru sofandi. Ég er heppin en ég fékk mikinn stuðning frá fjöl­skyldunni minni og fékk að búa heima hjá mömmu og pabba fyrst eftir að hún fæddist. Ég hef alltaf getað leitað til þeirra og get það enn; ég er mjög heppin að eiga foreldra sem bæði geta og vilja hjálpa ef eitthvað er.“

Hún segist hafa verið sjálfstæð frá því hún var lítil og ól hún dóttur sína upp ein.

Ólöf Helga flosnaði upp úr námi eftir að dóttir hennar kom í heiminn.

„Ég fór nokkrum sinnum aftur í skóla og prófaði ýmislegt svo sem bifvéla­virkjun og ljósmyndanám en festist aldrei af viti í neinu. Ég er að skoða hvort ég ætti að fara í háskólann í haust. Ég sé til. Ég er svolítið að pæla í félags­fræði eða lögfræði.“

Hún fór svo út á vinnu­markaðinn og áður en hún fékk vinnu sem hlaðmaður hjá Icelandair vann hún meðal annars í fimm ár sem laugar­vörður í sundlaug í Hafnar­firði, hún vann sem nætur­vörður hjá Vöku, við umönnun, í dagvistun fyrir heila­bilaða og í sjoppum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning