Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Neytandi vikunnar varar við eyðslupúkanum á öxlinni: Sparar allt árið fyrir jólagjöfunum

Dagbjört Jónsdóttir
Dagbjört Jóns­dóttir Mynd: Eirikur Ingi Bengtsson Helgason

Neytandi vikunnar að þessu sinni er Dagbjört Jóns­dóttir. Dagbjört er 39 ára lögfræðingur, eiginkona og móðir og er búsett í Mosfells­bænum.  

Dagbjört heldur úti miðlinum Fundið fé (https://www.instagram.com/fundid_fe/) á Instagram þar sem hún setur inn ýmsan fróðleik og hvatningu varðandi  sparnað, útgjöld og peninga. Dagbjört gaf sér tíma til að svara nokkrum spurningum um neyslu­venjur sínar. 

Leggur þú fyrir og ef svo er hvaða leiðir notar þú ?  

Mér finnst skipta miklu máli að leggja fyrir mánaðar­lega, alveg sama hversu lítil sú upphæð kann að vera. Ég legg fyrir í sparnað í hverjum mánuði. Ég legg líka til hliðar pening í útgjalda­flokka sem ég veit að ég þarf að eiga fyrir, t.d. jóla­gjafir, tómstundir barna o.s.frv. Þannig hefur það ekki áhrif á útgjöld mánaðarins þegar þessi kostnaður bætist við. 

Inn á heima­bankanum er hægt að koma á sjálf­virkum milli­færslum. Ég mæli heils hugar með að nýta sér þessa þjónustu því annars getur eyðslu­púkinn á öxlinni sannfært þig að eyða peningnum í eitthvað skemmtilegt núna frekar en að geyma hann fyrir eitthvað skynsamlegt seinna.   

Hvar kaupir þú helst í matinn og hvað hefur þú í huga í matar­innkaupum, sem neytandi?  

Fyrir mitt leyti hentar mér best að gera viku­innkaupin á netinu, sérstak­lega þegar mikið er að gera og ég hef ekki tíma til þess að fara í búð. Með því að kaupa í matinn á netinu get ég keypt í matinn út frá stöðunni í skápunum heima og ákveð kvöld­verði vikunnar út frá því sem er til. Yfirleitt kaupi ég minna en ég hefði gert í hefð­bundinni matvöru­verslun og ég er miklu meðvitaðri um hvað ég kaupi. 

Þegar ég fer í búðina þá vel ég oftast að nota „Skannað og skundað” frá Krónunni. Þannig sé ég nákvæmlega hvað karfan mín mun kosta og er síður líkleg til að setja eitthvað í körfuna sem mig vantar ekki. Svo þarf ég aldrei að bíða í röð á kassa til að borga! Gott trix til að gera búðar­ferðina bærilegri er að hlusta á uppáhalds hlaðvarps­þáttinn þinn á meðan þú ert í búðinni. Það hefur margsinnis hjálpað mér að koma mér af stað í búðar­innkaupin þegar ég nenni engan vegin af stað. 

Ég nýti mér stundum matar­pakka með tilbúnum kvöld­verðum þó það sé vissulega munaður en ekki sparnaður. Ég finn hins vegar að ég fer miklu sjaldnar í búðina þegar ég panta  þessa þjónustu. Ég hef líka oft pantað kvöld­verði fyrir tvo þó við séum fjögur í heimili og bæti þá einfald­lega við auka meðlæti. Þannig helminga ég kostnaðinn en einfalda mér lífið með því að þurfa ekki að taka ákvörðun um hvað eigi að vera í matinn.  


Hvert er þitt helsta sparnaðarráð?  

Mitt helsta sparnaðarráð er að skrifa niður öll þín útgjöld og fara vikulega yfir þau. Með því að hafa þessa yfirsýn og skoða það sem þú eyðir áttar þú þig betur á hvað má betur fara. Þannig ertu ólíklegri til að endurtaka innkaup sem þig langar að forðast. Vertu með fjárhagsleg markmið að hverju þú stefnir og mátaðu þín innkaup við þessi markmið. Þú skalt alltaf spyrja þig: eru þessi innkaup að draga mig nær eða fjær mínum markmiðum?  

Umhverfis­vernd, skiptir hún þig máli? 

Umhverfis­vernd á erindi við alla og ég reyni að leggja mig fram hvað það varðar. Á okkar heimili er einn bíll þó það getur vissulega verið púsluspil í úthverfa­lífinu en hefur gengið upp fyrir okkur. Ég kaupi iðulega notuð húsgögn og það sama á við um föt. Ég er mikill aðdáandi Barna- og Extra­loppunnar og kaupi flest mín föt þar. Ég kaupi líka notuð föt þegar ég fer erlendis. Sem betur fer telst það varla fréttnæmt í dag að kaupa sér hluti sem ekki eru nýir, en ég held að við þurfum öll að taka höndum saman sem neytendur að huga að hvaða áhrif okkar innkaup hafa á umhverfið, hvort sem það eru föt, bílar eða matur.  


Mælir þú með skemmtilegu lesefni eða hlað­vörpum? 

Ég elska að hlusta á skemmtileg hlaðvörp sem fjalla um sparnað og fjármál og hefur “Leitin að peningunum” verið í sérstöku uppáhaldi hjá mér. Eins þykir mér gaman að hlusta á The Minimalists Podcast. Það eru einnig til margar góðar bækur en ég mæli sérstak­lega með bókinni “Atomic habits” fyrir þá sem vilja taka skrefið í átt að betri venjum, til dæmis í fjármálum. 

Dagbjört hefur síðastliðin ár verið að þróa og hanna bók fyrir fólk til að halda utan um útgjöldin sín með skipulögðum hætti og ná yfirsýn yfir fjármálin. Bókin er væntanleg í verslanir í næsta mánuði og  ber heitið „ Fundið fé, njóttu ferða­lagsins“  Í bókina skráir fólk niður útgjöld sín viku fyrir viku og skoðar samhliða hvort eyðsla þeirra endur­spegli sínar áherslur og fjárhagsleg markmið.  Hugsunin er að fá þá sem nota bókina með í fjárhagslegt ferðalag þar sem að það lærir inn á hvað skiptir það mestu máli, hvernig er best að forgangs­raða í hvað það vill eyða peningunum sínum með því að setjast niður með útgjöldum sínum í einungis fimm mínútur á dag.    

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning