Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

„Eldra fólk sem voru ör­yrkj­ar umbreytt­ust á einni nóttu í 67 ára full­fríska ein­stak­linga“

Inga Sæland.
Inga Sæland. Mynd: Hallur Karlsson

Formaður Flokk fólksins, Inga Sæland, segir í nýjum skoðana­pistli sem birtist í Morgun­blaðinu að „ég trúi því ekki að fólk sjái ekki óréttlætið og mismunina sem þarna blasir við,“ og á þar við um samþykki tillögu um eingreiðslu til örykja en ekki tillögu hennar um sambærilega eingreiðslu til eldra fólks:

„Þetta er eldra fólk sem áður var ör­yrkj­ar og umbreytt­ist á einni nóttu í 67 ára full­fríska ein­stak­linga sam­kvæmt skil­grein­ingu lag­anna. Á svip­stundu lækkuðu líf­eyr­is­greiðslur til þeirra sem áður höfðu fengið greitt viðbótar­fram­lag frá TR vegna ald­ur­stengdr­ar ör­orku.“

Inga bætir við að í hópi fátækustu eldri borgara Íslands séu einnig full­orðnar konur, ömmur og langömmur, sem eyddu sínum starfsævi­árum í að vera heima­vinnandi húsmæður:

„Þess­ar kon­ur eiga þar af leiðandi eng­in líf­eyr­is­sjóðsrétt­indi.“

Inga lagði til breytingar­tillögu við fjár­aukann, upp á 150 milljónir króna til hjálpar­stofnana sem styðja þá sem eiga hvað erfiðast með að ná endum saman í samfélaginu:

„Það er at­hygl­inn­ar virði að sjá hvernig raun­veru­lega er litið á þá sem stjórn­völd halda í það sárri fá­tækt að þau neyðast til að standa í löng­um röðum fyr­ir fram­an hjálp­ar­stofn­an­ir til að biðja um mat. Þörf­in er slík að ekki er hægt að anna allri þeirri eft­ir­spurn sem óskað er. Oft þarf að loka á þá sem eru aft­ast­ir í röðinni þar sem mat­ur­inn er upp­ur­inn í það skiptið. Þannig verða marg­ir frá að hverfa án þess að fá mat fyr­ir sig og börn sín,“ segir Inga.

Bætir við:

„Með til­liti til þess hvernig hægt er að ausa pen­ing­um millj­arðatuga­vís eins og að mublera upp Seðlabank­ann og dytta að hon­um fyr­ir ríf­lega þrjá millj­arða króna. Eins og að óska eft­ir sex millj­örðum til að fjár­festa í Snob Hill við Aust­ur­bakka (nýju Lands­banka­höll­inni). Eins og að ausa millj­örðum í stóla­skipti ráðuneyta. Eins og að tapa stór­fé úr rík­is­sjóði með lækk­un banka­skatts. Eins og að tapa millj­örðum með því að sækja ekki aukna fjár­muni til stór­út­gerðar sem hef­ur makað krók­inn á sam­eig­in­legri auðlind okk­ar. Hvorki meira né minna en 533 millj­arðar króna frá 2009 í hrein­an hagnað sjáv­ar­út­vegs­ins og þá búið að greiða fyr­ir aðgang­inn að auðlind­inni 85,9 millj­arða. Ég veit ekki með ykk­ur en mér finnst þetta væg­ast sagt síðasta sort,“ segir Inga, en tillögur hennar hafi verið felldar:

„Stjórn­ar­flokk­arn­ir sam­stiga sem einn maður og sneru öll blinda aug­anu að sín­um minnstu bræðrum og systr­um.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Héraðs­dómur synjar foreldrum Sólons um vitna­leiðslu

Foreldrarnir vildu fá fram hvað sagt var á fundi sonar þeirra með starfsfólki Icelandair fyrir starfslok hans
Innlent

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Pólitík

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis