Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

„Fjármálaráðherra hellir olíu á eldinn með því að viðra hótanir um aðgerðir gegn lífeyrissjóðunum“

Bjarni Benediktsson.
Bjarni Bene­dikts­son.

Þingmaður Viðreisnar og fulltrúi í fjár­laganefnd, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugs­dóttir, telur að allir kostir í stöðunnni varðandi ÍL-sjóð, hét áður Íbúða­lánasjóður, séu gríðar­lega dýrir fyrir allan almenning á Íslandi.

Hún segir þetta vera raun­veruleikann; hvort sem tapið fari í gegn um ríkissjóð eða lífeyris­sjóðina, þar sem sparnaður almennings liggur sem og eldri borgara.

Hún ritar færslu á Facebook-síðu sinni um málið, þar sem þetta kemur meðal annars fram:

„Morgun­blaðið segir í dag frá viðbrögðum markaðarins við yfir­lýsingum fjármála­ráðherra á fimmtudag. Fyrir­sögnin segir sitt. Mistökin sem eru rót hins ævintýra­legs fjártjóns Íbúða­lánasjóðs eru eitt. Viðfangs­efnið núna er hins vegar veruleiki dagsins í dag.

Allir kostir í stöðunni eru slæmir og allir kostir í stöðunni eru gríðar­lega dýrir fyrir almenning í landinu; hvort sem þetta tap fer í gegnum ríkissjóð eða í gegnum lífeyris­sjóðina, þar sem sparnaður almennings liggur. Ekki síst eldri borgara.“

Hún segir að „mögulega leiðir þetta til þess að skerða þurfi lífeyris­greiðslur. Þess vegna var upphafleg fram­setning fjármála­ráðherra um „sparnað“ fyrir ríkissjóð með ólíkindum.

Hags­munirnir sem eru undir nema hundruð milljarða. Og í því ljósi er merkilegt að fjármála­ráðherra hafi hellt olíu á eldinn með því að viðra hugmyndir, eða hótanir, um aðgerðir gegn lífeyris­sjóðunum, og orðum um að ábyrgð íslenska ríkisins sé ekkert sérstök.“

Þorbjörg ljær einnig máls á því að „við höfum reyndar nýlega séð ýkt dæmi frá Bretlandi um hvaða áhrif yfir­lýsingar ráðamanna geta haft á efnahag ríkis; hér eru viðbrögðin mikill titringur á fjármála­markaði.

Ávöxtunar­krafa á ríkis­skuldabréf hækkaði strax. Vaxta­kostnaður ríkisins getur því aukist töluvert, ekki bara út af fjár­tjóninu heldur líka vegna yfir­lýsinganna. Og svo má velta fyrir sér hvað verður um lánshæfismat ríkisins. Skýrslan um ÍL- sjóðinn verður til umræðu á Alþingi á morgun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning