Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Valmundur Valmundsson: „Óþolandi að geta ekki samið við okkur um nokkrar helvítis krónur“

„Það er ekkert að ske; lausir samningar,“ segir Valmundur Valmundsson, formaður Sjómanna­sambands Íslands, í viðtali við Reyni Traustason þegar hann er spurður hvernig slagurinn sé.

Og enginn að tala við ykkur?

„Jú, við erum búin að vera að hittast frá því að samningar runnu út en það er ekkert komið út úr því ennþá.“

Hverjar eru kröfurnar?

„Aðal­kröfurnar núna eru að við fáum lífeyris­sjóðina að fullu eins og aðrir, 15,5%. Við höfum ekki fengið þetta 3,5% eins og aðrir þjóðfélags­þegnar á almenna markaðnum.“

Hvernig stendur á því?

„Útgerðin segir að við séum með svo hátt kaup að við þurfum þess ekki.“

Þetta er viðbótar­sparnaðurinn?

„Já, þeir eru tilbúnir til að láta okkur hafa þetta en þá þurfum við að lækka skipta­prósentuna á móti og borga þetta sjálfir. Það er díllinn. En ég held að sjómenn vilji það ekki. Frekar sleppum við þessu.“

Hvað með að sjómenn virðast vera frekar klofinn hópur; það er mikill munur á þeim sem eru með hæstu launin og þeim sem eru með lægstu launin. Er ekki erfitt að ná hópnum öllum saman um aðgerðir?

„Jú, ég held að það sé mjög erfitt. Ég er ekki viss um að uppsjávar­sjómennirnir fari í verkfall upp á að bæta kjör línu­sjómannanna. Það hugsa ég ekki. Eða öfugt.“

Samningar hafa verið lausir síðan í desember 2019. Getið þið haft það svoleiðis?

„Nei, þetta er nátt­úrlega óþolandi ástand að vera með lausa samninga.“

Þor­gerður Katrín sýndi okkur vönd­inn.

Svo er alltaf verið að setja lög á ykkur.

„Já.“

Var þetta leyst síðast með lögum?

„Nei, en vöndurinn var klár. Það var búið að sýna okkur vöndinn. Þorgerður Katrín sýndi okkur vöndinn. Hann var klár ef á þyrfti að halda.“

Cheerios-pakki og vettlingar

Valmundur var orðinn formaður SÍ þegar síðasta verkfall skall á.

„Það var harðvítugt. Það stóð í 10 vikur og var mjög harðvítugt. Ég lenti að vísu í veikindum í miðju verkfalli; greindist með æxli í hausnum í desember og verk­fallið skall á þá. Það var góðkynja. Það er þarna ennþá. Það er bara fylgst með.“

Hefur það engin áhrif á þig?

„Ég held ekki. Svo kom ég aftur rétt áður en var samið; um hálfum mánuði áður. Það var búið að greina þetta og ég mátti fara að vinna aftur. Svo sömdum við 17. febrúar 2019 og það var samþykkt með naumum meirihluta; það voru minnir mig 57% sem sögðu „já“.“

Svo fengu menn frían vinnu­fatnað líka.

10 vikna verkfall. 10 vikna launa­leysi. Hvað fékkstu upp úr þessu?

„Menn sögðu Cheerios-pakka og vettlinga.“

En það er þó stórt mál Cheerios-pakkinn; það þýðir að sjómenn voru komnir með frítt fæði.

„Frítt fæði og þú borgar bara hlunninda­skatt af því. 500 eða 700 kall á dag. Svo fengu menn frían vinnu­fatnað líka. Það munar helling að menn eru búnir að losna við þann kostnað. Það voru pínu hnökrar á þessu fyrst. Útgerðin var að reyna að spara og kaupa eitthvað lélegt en þá fer meira af þessu og það er jafndýrt.“

Sjómanna­afslátturinn var tekinn af ykkur. Hann var bitbein mjög lengi.

„Þetta var í restina komið upp í 1200 milljónir.“

Er þetta með sjómanna­afsláttinn búið? Það er engin barátta að taka hann upp aftur?

„Nei. Við vorum með þetta inni í kröfunum okkar að útgerðin myndi bæta okkur þetta upp og þeir eiga í raun og veru eftir að gera það. Þeir skulda okkur það. Þetta var bara ríkis­styrkur sem þeir fengu á sínum tíma vegna þess að það var erfitt að ná í karla á sjóinn. Þannig byrjaði þetta.“

Vilja meira gagnsæi

Valmundur er spurður hvað honum finnist vera brýnast hvað varðar sjómenn í dag. Hver eru brýnustu málin að taka á?

„Við erum búin að vísa til sátta­semjara og erum búin að vera að funda þar núna með útgerðar­mönnum. Aðal­kröfurnar okkar eru sem sé meira gagnsæi í sambandi við fisk­verðið og við viljum fá meiri upplýsingar um afurða­verð og annað í sambandi við uppsjávarfiskinn og líka botn­fiskinn sem við getum treyst. Og við viljum fá sömu lífeyris­kjör og aðrir landsmenn á almenna markaðnum. Okkur vantar þetta 3,5% upp á. Það er ekkert í boði frá útgerðinni nema að sjómenn borgi fyrir það sjálfir með lækkun á skipta­prósentu.“

Við höfum haldið um 30 fundi hjá sátta­semj­ara og það er ekk­ert að ske.

Valmundur er svo spurður hvernig hann ætli að leysa þetta núna með þessa kyrrstöðu.

„Það er spurningin. Þegar eins og sjómenn núna hafa þokkaleg laun þá eru menn ekki tilbúnir í að fara í harðar aðgerðir. Það er nú ýmislegt sem hægt er að gera. Við höfum til dæmis núna ekki skrifað undir neina sérkjarasamninga síðan í vor eins og við höfum oft gert, til dæmis varðandi makrílinn, en þá eru menn í samvinnu. Sjómanna­félögin hafa ekki undir­ritað neina slíka samninga þó svo að menn séu að vinna í þeim. Og ef einhver fer í fílu um borð þá getur hann náð sér í meiri aur með því að fara í mál við útgerðina. En við nennum ekki að standa endalaust í einhverju þrasi um allt og ekki neitt ef ekkert kemur út úr því. Við höfum haldið um 30 fundi hjá sátta­semjara og það er ekkert að ske.“

Það kemur í ljós á næstunni hvort eitthvað verði eða hvort þið verðið samnings­lausir í sjö ár.

„Sjö ár eins og síðast. Ég vona nú ekki. Það er óþolandi að geta ekki samið við okkur um nokkrar helvítis krónur.“

Dallurinn fór alveg á hliðina

Valmundur er sjómanns­sonur en faðir hans, Valmundur Sverrisson, sem var frá Akureyri, drukknaði þegar sonurinn var þriggja daga gamall.

„Hann var að róa frá Reykjavík á litlum þilfarsbát; eiginlega bara trillu, og féll útbyrðis. Þeir voru tveir á. Hinn tók ekki eftir því; hann var frammi í en pabbi var á stíminu. Eitthvað hefur skeð sem enginn veit og hann fannst aldrei. Það hefur örugglega mótað mikið afa minn og ömmu, foreldra hans. Ég fann það í mínum samskiptum við þau.“

Valmundur yngri ólst upp frá eins árs aldrei hjá móðurömmu sinni og -afa á Siglu­firði. „Þau voru orðin rúmlega sextug þegar þau tóku mig.“

Valmundur fór á sjóinn 16 ára gamall. Fór fyrst á túr á togara. Það var Stálvík sem var fyrsti nýsmíðaði skut­togarinn á Íslandi. „Þá var Hjalti Björnsson skip­stjóri; sá mikli eðal­kapteinn.“

Og unga manninum leist vel á sjómennskuna.

„Ég var að vísu svolítið sjóveikur í nokkra daga en síðan hefur sjóveiki ekki hrjáð mig. En maður var ekki uppburðar­mikill innan um þessa jaxla sem voru þarna. Þvílíkir gúbbar. En mér var tekið vel og sérstak­lega af einum, Sigurði Jónssyni sem var kallaður Siggi drumbur. Hann er ennþá lifandi og ég á honum mikið að þakka. Og undir hans verndar­væng kenndi hann mér; ég hafði að vísu þrætt nálar og kunni það en hann sé um að ég væri mér ekki að voða þarna.“

Valmundur segist ekki hafa farið marga túra á Stálvík. Hann fór síðan í Iðnskólann um veturinn og ætlaði að verða rafvirki „en það var ekki stuð fyrir því hjá mér. Ég fann að það átti ekki við mig að vera að læra mikið meira. Ég hafði engan áhuga á að læra. Þó þurfti ég ekki að hafa fyrir því þannig. Ég fór aftur á sjóinn og endaði á Sigluvík hjá Budda Jó. Sonur hans plataði mig í túr og þá var ekkert aftur snúið.“

Þar voru margir kjarna­karlar.

Við fengum brot á okkur úti í Víkuráli.

„Já, margir góðir þarna á Siglu­víkinni. Ég held að Buddi sé varkárasti skip­stjóri sem ég hef verið með upp á mann­skapinn að gera. Hann hugsaði um okkur eins og börnin sín. Tók aldrei neina sénsa á neinu. Ég held það hafi verið 1984 eða 1985 sem við fengum brot á okkur úti í Víkuráli. Við vorum að taka inn fyrir í kolvitlausu veðri. Vorum á grálúðu. Um nóttina heyrðum við helvítis læti og dallurinn fór alveg á hliðina. Þá kom brot á brúna og fóru nokkrir gluggar. Stýri­maðurinn var uppi og hann var heppinn að drepa sig ekki af því að það var radar í loftinu sem sjórinn tók sem fór í stólinn og tók haus­púðann af honum. Stýri­maðurinn náði að henda sér á stöngina til að slá af og hann slapp út af því.“

Það hefði ekki þurft að binda um þau sár.

„Nei, ekki ef hann hefði fengið helvítis radarinn í hausinn. Það hefði ekki verið gott. En þetta bjargaðist. Það drapst líka á hjá okkur. Það fóru loft­túðurnar á vélinni.“

Hann hefur farið alveg á hliðina.

„Nánast. En við náðum að loka gluggum. Það náðist að setja í gang en stýrið var farið út. Við þurftum að stýra niðri í stýrisvél með talíu. Það var hægt að handstýra með talíu.“

Fór í land

Valmundur hefur búið í Vestmanna­eyjum um árabil en hann fór í Stýrimanna­skólann í Eyjum og varð stýri­maður og skip­stjóri.

Af hverju flutti hann til Eyja?

„Ég fór í land 1987 þegar sonur minn fæddist, seinna barnið okkar. Ég var búinn að vera áður í neta­gerðinni hjá Venna Hafliða­syni sem átti Neta- og veiðar­færagerð Siglu­fjarðar og var að spá í að fara að læra netagerð en svo var ekkert að gera þarna. Það var vitlaust að gera þegar rækjan var þarna sem mest fyrir norðan. Þá var verið að setja upp 20-30 troll yfir sumarið á neta­verkstæðinu og viðhalds­vinna sem fylgdi því öllu. Svo var rækjan búin og það var ekkert að gera þarna og fisk­verðið lágt á togurunum á þessum tíma, 1988/1989.“

Þannig að það var dauði og djöfull eins og það stendur.

„Já. Svo átti ég fullt af fólki í Eyjum á þessum tíma; móður­systur mínar voru þarna og öll þeirra börn. Og megnið af þessu fólki var sjómenn. Ég hringdi í einn sem ég þekkti sem var kvæntur móður­systur minni og spurði hvort hann gæti ekki reddað mér plássi í Eyjum. Það var komið daginn eftir.“

Þú fórst með börn og bú?

„Þau komu aðeins seinna. Um vorið.“

Hvernig er að búa í Eyjum?

„Það er frábært.“

Stundum hvasst.

„Já.“

Skip­stjóri og stýri­maður sem heyrir undir Farmanna­sambandið. Svo dróst Valmundur einhvern veginn inn í það að verða forsvars­maður háseta.

Ég fór aldrei í stýri­manna­fé­lagið.

„Ég var kominn inn í stjórn sjómanna­félagsins Jötuns í Eyjum 1992-3. Elías Björnsson, sem þá var formaður, kom að máli við mig. Ég hafði komið á nokkur sjómanna­sambands­þing með Hafþóri Rósmunds­syni frá Siglu­firði; hann var foraður verkalýðs­félagsins Vöku þar og ég var þar í sjómanna­deildinni. Og Elías fékk mig til að koma í stjórnina í Jötni. Svo fór ég í Stýrimanna­skólann í Eyjum árið 1997 og varð svo stýri­maður eftir skólann. Þá var ég ennþá meðstjórnandi í Jötni og hélt því áfram og borgaði alltaf þangað mína skatta og skyldur. Ég fór aldrei í stýrimanna­félagið. Svo varð ég formaður Jötuns 2007 þegar Elías hætti. Ég ætlaði að vera í eitt eða tvö ár en svo þurfti ég að hætta á sjó vegna þess að konan mín er lögblind og ég gat ekki hugsað mér að skilja hana eftir þegar hún missti sjónina svona mikið; að hún væri ein heima og enginn að hugsa um hana. Þannig að ég fór í land 2008 og tók þá alveg við sjómanna­félaginu.“

Hægt er að horfa á viðtalið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið