Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Fyrrum American Idol-keppandi fundinn sekur um morð

Hafði átt í ástar­sambandi við unga konu

Ashley og Caleb Flynn
Ashley og Caleb Flynn Caleb á yfir höfði sér lífs­tíð­ar­fang­elsi Mynd: Facebook

Fyrr­verandi keppandi í söngva­keppninni American Idol, Caleb Flynn, hefur verið fundinn sekur um að hafa myrt eiginkonu sína, Ashley. Flynn, sem er fertugur, skaut eiginkonu sína til bana á meðan hún svaf á heimili þeirra í Ohio í febrúar á þessu ári.

Flynn á yfir höfði sér lífstíðar­fangelsi án möguleika á reynslu­lausn vegna morðsins. Lögregla segir að hann hafi skotið eiginkonu sína á meðan dætur þeirra, níu og 11 ára, voru heima.

Flynn hringdi sjálfur í lögregluna eftir skot­árásina og hélt því fram að innbrots­þjófur hefði ráðist inn á heimilið og myrt eiginkonu hans. Saksókn­arar héldu því hins vegar fram að Flynn, sem starfaði sem prestur, hefði sviðsett innbrotið til að villa um fyrir rannsókn lögreglu.

Átti í ástarsambandi við konu úr kirkjunni

Áður en Ashley lést hafði Flynn um árabil átt í ástar­sambandi við Alleighu Botner, sem starfaði sem lofgjörðar­stjóri í kirkjunni hans.

Saksókn­arar sögðu að Flynn hefði viljað yfirgefa hjóna­bandið án þess að missa forræði yfir dætrum sínum, stöðu sína innan kirkjunnar og starf sitt hjá fjölskyldu­fyrirtæki Ashley. Að þeirra mati hafi hann því ákveðið að grípa til morðs.

Botner, sem er 24 ára, bar vitni fyrir dómi og sagði þau Flynn hafa átt í ástar­sambandi. Hún sagði hann hafa sagt sér að hann hataði eiginkonu sína og hefði hugleitt að drepa hana.

Botner kynntist Flynn árið 2022, þegar hún var 20 ára og í starfs­námi hjá Christian Life Center. Samband þeirra hófst árið 2024 og stóð í um 18 mánuði.

„Ég var vakandi til klukkan fjögur í nótt“

Botner las upp skilaboð fyrir dómi sem Flynn hafði sent henni. Þar sagði hann meðal annars að eina ástæðan fyrir því að hann væri enn með eiginkonu sinni væri að hann vildi vera með dætrum þeirra.

Síðar sendi hann henni skilaboð þar sem hann sagðist vera tilbúinn að hætta á að missa „dætur sínar, 250 þúsund dollara launað starf, húsnæði, mögulega kirkju sem hann þjónaði í, opinbera skömm og niður­lægingu og miklu meira“ til þess að geta verið með Botner.

Botner sagði að hún hefði ítrekað sett honum úrslita­kosti og krafist þess að hann yfirgæfi eiginkonu sína, nú síðast í sama mánuði og Ashley var myrt.

Í öðrum skila­boðum til Botner skrifaði Flynn:

„Ég var vakandi til klukkan fjögur í nótt og grét, bókstaf­lega að hugsa um leiðir til að drepa hana án þess að fara í fangelsi.“

Botner sagðist hafa svarað honum og reynt að fá hann til að drepa Ashley ekki.

„Ég er auðvitað ekki að biðja þig um að taka líf hennar, því það er ekki það sem þú ættir að gera og ég veit að þú myndir í raun ekki gera það. En ef þú getur látið skilnaðinn ganga í gegn myndi það breyta öllu.“

Skömmu fyrir miðnætti kvöldið áður en Ashley lést sendi Flynn Botner síðustu skila­boðin. Þar skrifaði hann:

„Góða nótt, morgun­dagurinn er stór dagur. Ég verð að fara að sofa. Ég vel þig, ég er að verða frjáls.“

Morðvopnið ófundið

Lögmenn Flynn héldu því fram að rann­sakendur hefðu dregið of hraðar ályktanir eftir að upp komst um ástar­sambandið.

Verjandinn Patrick Mulligan benti meðal annars á að byssan sem notuð var við morðið hefði aldrei fundist.

„Það að hann hafi verið ótrúr jafn­gildir ekki morði. Málið snýst ekki um: „Var hann góður eigin­maður?““

Flynn varð fyrst þekktur þegar hann tók þátt í American Idol árið 2013, fyrir 13 árum. Þá sagði hann áhorf­endum að eiginkona hans hefði hvatt hann til að fylgja draumum sínum sem söngvari.

Hann komst þó ekki áfram í aðal­keppnina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs