Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Fólk verslar eins og kjarnorkustyrjöld sé í uppsiglingu

Rakel Garðars­dóttir hefur undan­farin fimm ár lagt sig fram um að halda jól á eins umhverfis­vænan hátt og unnt er. Færri, gjafir, minna prjál, aðhald í matar­innkaupum og endur­nýting pappírs er meðal þess sem hún og hennar fjöl­skylda leggja kapp á í jóla­haldinu.

Rakel leggur sig fram um að halda umhverfisvæn jól. Mynd / Unnur Magna|
Rakel leggur sig fram um að halda umhverf­is­væn jól. Mynd / Unnur Magna|

„Umhverfisvæn jól snúast meðal annars um það að kaupa færri gjafir, kaupa ekki óþarfa, gefa gjafir sem nýtast viðtak­andanum og enda ekki bara uppi í skáp,“ segir Rakel spurð hvernig hún geri jólahald fjöl­skyldunnar umhverfis­vænna. „Það er til dæmis mjög sniðugt að gefa miða í leikhús eða á tónleika og gjafakort í nudd eða á eitthvert námskeið. Eitthvað sem fólk hefur ánægju af.“

Spurð hvað það sé langt síðan hún fór að reyna að gera jólin umhverfisvæn á sínu heimili, dregur Rakel við sig svarið. „Sko, ég er ekkert hundrað prósent umhverfisvæn,“ segir hún. „En við bætum einhverju nýju við á hverju ári eftir því sem við verðum meðvitaðri um umhverfis­vána. Þetta byrjaði fyrir svona fimm árum. Þá minnkuðum við gjafir, hættum að borða svínakjöt og borðum í staðinn fuglakjöt eða einhverja grænmetis­rétti. Við erum ekki með jólatré og notum brúnan kraft­pappír til að pakka inn gjöfunum, það er svo erfitt að endur­vinna svona glanspappír, og svo söfnum við líka jóla­pappír utan af þeim gjöfum sem við fáum og endur­nýtum til að pakka inn gjöfum næstu jóla. Við notum ekki mikið af skrauti, helst ekki annað en það sem hefur fylgt með öðrum gjöfum eða eitthvað sem við eigum.“

„Í mörg ár hafa aðventan og jólin snú­ist um það hjá okkur að gera eitt­hvað saman, hitta vini og njóta. Ég var heldur ekki alin upp við að jólin væru neyslu­há­tíð og það hjálpar auð­vitað líka.“

Fjöl­skylda Rakelar samanstendur af henni sjálfri, eigin­manni og þremur börnum á aldrinum tveggja til sautján ára. Hvernig hafa þau tekið í þessar breytingar á jóla­haldinu? Fá þau til dæmis í skóinn?

„Þau eru voðalega nægjusöm,“ segir Rakel og brosir. „Einhverra hluta vegna hafa þau náð því. Yfirleitt fá þau eitthvað í jólagjöf sem þau vantar, eða þá að fjöl­skyldan fær sameiginlega gjöf. Í fyrra var það Soda stream-tæki sem allir í fjöl­skyldunni nota. Eldri krakkarnir fengu í skóinn á tímabili en þau eru orðin of gömul fyrir það núna og ég varð mjög glöð þegar það hætti. Ég átti mjög erfitt með það, því mér finnst eins og gæði skógjafa hafi dalað hjá jóla­sveinunum eftir því sem börnum í heiminum hefur fjölgað og ég er ekki hlynt því einnota dóti sem vill oft dúkka upp í skónum.“

Rakel leggur sig fram um að halda umhverf­is­væn jól. Mynd / Unnur Magna

Rakel segir fjöl­skylduna reyndar alla þannig stemmda að jólin séu ekkert sérstak mál. Séu eiginlega bara eitt gott matarboð. Neyslu­æðið í desember fái ekki hljóm­grunn hjá neinum á heimilinu. „Í mörg ár hafa aðventan og jólin snúist um það hjá okkur að gera eitthvað saman, hitta vini og njóta. Ég var heldur ekki alin upp við að jólin væru neyslu­hátíð og það hjálpar auðvitað líka. Jólin fyrir mér eru bara að vera saman og kveikja á kerti. Fá sér svo kannski einn Jule Tuborg eftir að maður er kominn á þennan aldur. Við stút­fyllum heldur ekki ísskápinn fyrir jólin, heldur nýtum alla afganga vel. Flestir kaupa inn eins og þeir séu að undirbúa sig undir kjarnorku­styrjöld þegar jólin eru að koma. Það hefur aldrei höfðað til mín enda veitir það enga hamingju að sitja uppi með feitan Visa-reikning í janúar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Ofurkrúttleg íbúð í Þingholtunum komin á sölu
Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá