Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Skoðun

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

„Hrottaleg árás“ á capybara

Átta voru hand­teknir fyrir að ráð­ast á þetta dýr.

Þolandi árásar
Þolandi árásar Sár sjást á trýni flóðsvíns (capybara) sem er í með­höndlun á end­ur­hæf­ing­ar­stöð fyrir villt dýr við Estacio de Sa háskól­ann í Vargem Pequena hverf­inu, í suð­vest­ur­hluta Rio de Janeiro í Brasilíu. Átta voru hand­teknir vegna árásar á það í síð­ustu viku. Mynd: AFP

Lög­reglan í Rio de Janeiro hand­tók í síð­ustu viku átta manns fyrir að mis­þyrma flóðsvíni, eða capybara, á hrotta­legan hátt. Flóðsvínið er stærsta nag­dýr heims og hefur afslappað fas þess verið notað í „meme“ ótal sinnum á net­inu á und­an­förnum árum.

Flóðsvínið (Hydrochoerus hydrochaeris), sem lík­ist risa­stóru, blíðum naggrís með úfinn, ljós­brúnan feld, sést oft á vappi í brasil­ísku borg­inni, sér­stak­lega nálægt lækjum og lónum.

Í atviki sem náð­ist á örygg­is­mynda­vélar fyrir dögun þar­síð­ustu helgi, réðst hópur árás­armanna á flóðsvínið með prikum og járn­stöngum í verka­manna­hverf­inu Ilha do Governa­dor.

„Þetta er hrotta­legur glæpur sem skekur sam­fé­lagið,“ hefur dag­blaðið O Globo eftir Felipe Santoro, lög­reglu­stjór­anum sem fer með rann­sókn­ina.

„Þetta er gríð­ar­leg grimmd gagn­vart skepnu sem staf­aði nákvæm­lega engin ógn af ... en var samt ráð­ist á af ásettu ráði,“ bætti hann við.

Kennsl voru borin á árás­ar­menn­ina – þar á meðal tvo ólög­ráða – með upp­tökum úr eft­ir­lits­mynda­vélum og voru þeir hand­teknir eftir árás­ina, sagði lög­reglan í yfir­lýs­ingu.

Flóðsvínið, 65 kílóa karl­dýr, var flutt á dýra­lífsmið­stöð­ina (CRAS) við einka­rekna Estacio-háskól­ann í suð­vest­ur­hluta Rio.

„Við höfum með­höndlað dýra­líf Rio hér í 22 ár og ég hef aldrei áður fengið capybara sem hefur orðið fyrir jafn grófri árás,“ sagði dýra­lækn­ir­inn og yfir­maður CRAS, Jeferson Pires, við AFP.

Hann sagði að dýr­inu liði betur en væri „með höf­uð­á­verka, bólgu með inn­vortis blæð­ingum í kringum vinstra augað og marga áverka á bak­inu.“

Á und­an­förnum árum hefur flóðsvínið, sem lifir bæði í vatni og á landi og er upp­runnið í Suður-Ameríku, eign­ast dyggan aðdá­enda­hóp á net­inu og mynd þess er í auknum mæli notuð á leik­föng, fatnað og heim­il­is­vörur.

Það er oft notað í færslum um að vera „zen“ og láta sig reka.

Eitt vin­sælt „meme“ er „Félagi flóðsvín“ – sem sýnir dýrið sem komm­ún­ískan bylt­ing­ar­mann – inn­blásið af „inn­rás“ flóðsvína árið 2021 á lúxus­í­búða­svæði í Argent­ínu sem byggt var á vot­lendi sem hafði verið nátt­úru­legt búsvæði þeirra.

Í byrjun jan­úar vakti dauði flæk­ings­hunds gríð­ar­lega reiði­bylgju í Brasilíu, eftir að hann var bar­inn til bana af ung­lingum. Það varð til þess að for­seta­frúin Ros­ang­ela „Janja“ da Silva tjáði sig um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Býður Trump að nefna heil­brigð­is­kerfi eftir sér

Abdul El-Sayed segist tilbúinn að láta forsetann fá heiðurinn af opinberu heilbrigðiskerfi, styðji hann að allir Bandaríkjamenn fái aðgang að þjónustu.
Heimur

Robert Patt­in­son næsti James Bond

Pólitík

Segir Hildi Björns­dóttur beita tvö­földum mæli­kvarða á fjár­mál borg­ar­innar

Heimur

Brand óskaði eftir auka­teppi og sér­sjampói í fang­els­inu

Pólitík

Sig­mundur sak­aði rík­is­stjórn­ina um „dára­skap“ og Kristrún svar­aði fullum hálsi

Heimur

Heimur

Svif­vængja­flug­maður lést í hörmu­legu slysi

Hann var 21 árs og hafði vakið athygli fyrir áhættusamar flugæfingar
Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Heimur

Ung­lingar hand­teknir í Póllandi grun­aðir um und­ir­bún­ing hryðju­verka

Heimur

Stærsta rann­sókn sinnar teg­undar sýnir að eft­ir­sjá vegna kyn­leið­rétt­ingar er afar sjald­gæf

Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael