Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Öll merki um að Kristrún ætli fram – Boðar fund með stuðningsmönnum

Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar og forsætisráðherra
Kristrún Frosta­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og for­sæt­is­ráð­herra

Dagur B. Eggertsson, borgar­stjóri Reykja­víkur, mun ekki bjóða sig fram til formennsku í Samfylkingunni. Hann stað­festir þetta í samtali við Frétta­blaðið. Dagur segist þó ekki útiloka þátttöku í þjóð­málunum seinna meir.

Logi Einarsson hyggst hætta sem formaður Samfylkingarinnar á lands­fundi flokksins í október. Á sama fundi verður því kosið um arftaka hans, en þau nöfn sem hafa hve mest verið nefnd í tengslum við formanns­kjörið eru Dagur B. Eggertsson og Kristrún Frosta­dóttir. Dagur hefur nú slegið það út af borðinu og segir það ekki raunhæft, þar sem hann sé að fara af stað í nýtt kjör­tímabil í borginni. Kristrún hefur hins vegar boðað stuðnings­fólk sitt til fundar á morgun, föstudag, að því er fram kemur í frétt Morgun­blaðsins. Líkum er leitt að því að þar hyggist hún tilkynna um formanns­framboð, þótt Kristrún sjálf hafi ekkert upplýst um tilefnið. Hún hefur ekki viljað staðfesta stað og stund fundarins en segist munu tilkynna um það í fyrra­málið.

Kristrún Frosta­dóttir þykir lík­leg til fam­boðs.

Eftir að Logi upplýsti um það að hann myndi axla ábyrgð á slöku gengi Samfylkingarinnar í síðustu alþingis­kosningum með því að stíga úr formanns­stólnum hefur Dagur sterklega verið orðaður við forystu­stöðuna og ákvörðunar hans beðið átekta. Hann segist sjálfur hafa skynjað mikinn stuðning í kringum sig. Dagur fullyrðir að kallað hafi verið eftir nýrri ríkis­stjórn sem mynduð yrði „frá vinstri yfir á miðjuna,“ eins og er í borginni. „En ég er að hefja nýtt kjör­tímabil í borginni og á ekki sæti á þingi. Þess vegna var langsótt að ég byði mig fram til formennsku í flokknum,“ segir hann í samtali við Frétta­blaðið. Aðspurður segir hann útilokað að hann komi til með að bjóða sig fram. Hans hlutverk nú sé frekar að styðja við nýja forystu.

Dagur segist ekki útiloka framboð til Alþingis, þótt hann stefni ekki sérstak­lega að því heldur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið