Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Valur vill að stjórnvöld hjálpi Rússum á Íslandi: „Sendiráðið njósnar um eigin þegna á Íslandi“

Valur Gunnarsson
Valur Gunn­ars­son Mynd: Rúv-skjáskot

Valur Gunnarsson, rithöfundur og blaða­maður, kallar eftir því að íslensk yfirvöld verndi málfrelsi rússneskra þegna á Íslandi sem hann segir að eigi það á hættu að vera áframsend til Rússlands.

Valur Gunnarsson hefur undan­farið skrifað pistla á Rúv frá hinni stríðs­hrjáðu Úkraínu. Nýlega veitti hann Frétta­blaðinu viðtal en þar er birt ljósmynd af manni traðka á fána Rússlands. Fór þetta svo fyrir brjóstið á sendiráði Rússlands á Íslandi að það hefur nú heimtað afsökunar­beiðni frá miðlinum. Við því varð Frétta­blaðið ekki en í morgun varð miðillinn fyrir netárás. Sendi­ráðið neitar að hafa átt þátt í því en telur árásina ekki of sterk viðbrögð við mynd­birtingunni.

Valur skrifaði færslu á Facebook í dag þar sem hann reifar áhyggjur sínar varðandi þá Rússa sem búa á Íslandi en hafa mótmælt stríði Pútins í Úkraínu. Fullyrðir blaða­maðurinn að sendiráð Rússlands njósni um eigin þegna á Íslandi.

„Nú er ég enginn sérstakur talsmaður þess að reka rússneska sendi­herrann á landi, enda ágætt að hafa kanala opna. En hitt er annað mál að sendi­ráðið njósnar um eigin þegna á Íslandi. Þeir sem gagnrýna Pútín eiga í hættu að fá vegabréf sín ekki endurnýjuð og vera þar með vísað úr landi. Svo undarlega sem það hljómar gætu menn því verið reknir frá Íslandi og í rússnesk fangelsi fyrir að mótmæla Pútín. Ef Íslenskum yfir­völdum er annt um málfrelsi ætti að ráða bót á þessu hið snarasta, með landvistar­leyfi og etv. ríkis­borgara­rétti.“

Þeir Rússar sem Mannlíf hefur rætt við taka undir orð Vals og segja að þeir hafi átt í erfið­leikum með að endurnýja dvalar­leyfi sín vegna seinagangs sendiráðs Rússlands á Íslandi. Telja þeir að verði þeir sendir til Rússlands, sé aðeins tíma­spursmál hvenær þeir yrðu hand­teknir vegna mótmæla við stríðið í Úkraínu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið