Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Hatari um MH: „Þar var barnsmóðir mín og unnusta í námi þegar henni var nauðgað fyrir tíu árum“

Matthías Tryggvi.
Matthías Tryggvi.

Rektor MH „eins og kúkur“ í miðri byltingu er yfir­skrift greinar sem Matthías Tryggvi Haraldsson – önnur aðal­sprautan í hinni mögnuðu hljómsveit, Hatari – skrifar, og hefst svona:

„Þessa dagana ólgar bylting innan veggja Mennta­skólans við Hamrahlíð, þar sem ég á systur og mágkonu meðal nemenda, þar sem barns­móðir mín og unnusta, hún Brynhildur mín, var í námi þegar henni var nauðgað fyrir meira en tíu árum.“

Pálmi Magn­ús­son áfanga­stjóri MH.

Matthías segir að „byltingin er mikilvæg og við eigum að hlusta á nemendur sem keyra hana áfram af hugrekki og réttsýni. Krafan er skýr og hávær um að stjórn­endur skólans stigi fast til jarðar og standi með þolendum. Þess vegna eru vonbrigðin, sem ég finn í dag, ólýsandi. Þeir heita Steinn Jóhannsson, rektor skólans, og Pálmi Magnússon, sem gegnir starfi áfanga­stjóra, sem hafa skitið upp á bak í þessum málum.“

Steinn Jóhanns­son.rektor MH.

Bætir við:

„Klúðrið hefur bersýni­lega gengið á samfleytt í meira en tíu ár svoleiðis að vanhæfni skóla­stjórnenda bergmálar í sársauka­þrungnum sögum fjölda þolenda, þar á meðal Brynhildar minnar, Elísabetar vinkonu sem tók sitt eigið líf og enn í dag í mótmælum nemenda. Gleymum því ekki að meira en 70 prósent þeirra sem leita til Stígamóta urðu fyrst fyrir ofbeldi á mennta­skólaaldri, ef ekki fyrr.“

Hann bendir á að „eitt nýlegasta dæmið eru viðbrögð þeirra við þessum mikilvægu tímamótum. Þegar löngu tímabær Metoo-bylgja mennta­skólanema er í þann mund að rísa tekst öðrum þeirra að ropa upp úr sér þvílíkri vanvirðingu og dirfast að kalla viðburðinn „hysteríu.“ Slík ummæli afhjúpa heilan heim úreltra viðhorfa og sýna að þeir eiga ekkert erindi í þessa viðkvæmu umræðu, hvað þá að vinna með ungmennum. Gleymum því ekki að meira en 70 prósent þeirra sem leita til Stígamóta urðu fyrst fyrir ofbeldi á mennta­skólaaldri, ef ekki fyrr.“

Og hann spyr:

„Finnst Pálma 70 prósent þeirra sem leita til Stígamóta vera hysterísk? Þetta er kannski ósann­gjörn spurning en stjórn­endur skólans hafa ekkert gert til að svara henni hingað til. Þeir neita að tjá sig um þetta opinber­lega og snubbótt yfir­lýsing um verkferla er enginn sigur. Þá gat Steinn rektor varla nefnt orðið kynferðis­ofbeldi á nafn á skóla­fundinum, sem átti að vera sönnun þeirra um verkferla og fagmennsku. Þess í stað var rektorinn að sögn áreiðanlegra heimildar­manna minna „eins og kúkur.“

Skóla­stjórnendur MH, girðið ykkur í brók, biðjið þolendur afsökunar eins og þið meinið það eða víkið úr starfi. Höfundur er maki og bróðir núverandi og fyrr­verandi nemenda í MH.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning