Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Hana óraði aldrei fyrir því að þetta myndi enda eins og það gerði

Eigin upplifun dregin í efa, henni breytt eða sagt að hlutir hafi ekki gerst eins og maður man þá

Hvaða styrkleika þróum við út frá tilfinningalegri vanrækslu?
Hvaða styrk­leika þróum við út frá til­finn­inga­legri van­rækslu? Mynd: Unsplash/Tim Mossholder

Blaða­maður Mannlífs hafði samband við konu sem kýs að koma fram undir nafnleynd, því hún veit ekki hvernig yrði brugðist við ef hún myndi segja frá opinber­lega undir nafni. Konan er á fimmtugsaldri. Hún er móðir og amma og hefur menntað sig og starfað á ýmsum sviðum atvinnu­lífsins, meðal annars sem ráðgjafi, mannauðs­stjóri og í öðrum stjórnunar­störfum. „Ég bý yfir mikilli lærdómsást og forvitni sem hefur leitt mig á ýmsar brautir í lífinu og ég er þakklát fyrir þau tækifæri sem ég hef fengið og á sama tíma stolt og þakklát sjálfri mér fyrir að hafa oft þorað að henda mér í djúpu laugina. Hjarta mitt hefur þó alltaf verið í sálfræðinni. Ég hef lokið grunn- og framhalds­námi á því sviði og hef einnig stundað nám með áherslu á sálræn áföll og ofbeldi en sá vettvangur sem ég stefni á að skapa mér framtíð á er jákvæð sálfræði.“

Í þeim fræðum fann hún loksins eitthvað sem hún hafði lengi leitað að í fræðunum. Ekki aðeins spurninguna: Hvað kom fyrir okkur og hvaða áhrif hafði það? Heldur líka: Hvað styrkir okkur? Hvað gerir mig að mér? Hvernig hefur reynslan mótað okkur og hvaða styrk­leikar geta jafnvel orðið til í gegnum erfiða lífs­reynslu?

Að menntun og vinnu undan­skilinni segist hún vera kona sem elskar flest og hefur áhuga á alltof mörgu. „Mér endist líklega ekki ævin til að læra og prófa allt sem mig langar til, en það er svo sem ágætt lúxus­vandamál. Börnin mín, maðurinn minn og fjöl­skyldan sem ég hef sjálf skapað eru hjarta mitt.“

Þeir sem þekkja hana lýsa henni sem opinni, heiðarlegri, einlægri og lífs­glaðri manneskju sem kemur til dyranna eins og hún er klædd „og ég er nokkuð sammála þeirri lýsingu, í dag hið minnsta.“

Hún tekur það fram að hún vilji taka eitt skýrt fram. „Ég hvorki upplifi mig né skilgreini mig sem fórnar­lamb, þó að margt í þessu viðtali geti gefið tilefni til þeirrar myndar. Ég hef upplifað ofbeldi og áföll, en það er lífs­reynsla mín, það er ekki ég. Ég lít frekar á mig sem baráttu­konu og sigurvegara.“

Ég veit ekki hvernig brugð­ist yrði við ef ég segði frá opin­ber­lega undir nafni

Það er kannski ákveðin mótsögn í því að hún lýsi sjálfri sér sem mjög opinni manneskju en kjósi svo að koma fram undir nafnleynd í þessu viðtali. Ástæðuna segir hún ekki vera að hún skammist sín fyrir sögu sína eða standi ekki með því sem hún segi, þvert á móti.

„Ég kýs nafnleynd fyrst og fremst vegna ótta við hvað gæti fylgt því að segja þessa sögu opinber­lega undir nafni. Á þeim árum sem liðin eru frá því að ég setti mörk hef ég upplifað neikvæðar frásagnir um mig og árásir á persónu mína hafa frekar aukist en minnkað og teygt sig út fyrir fjöl­skylduna, inn í félagslegt umhverfi mitt og jafnvel starfs­vettvang. Sú reynsla hefur orðið til þess að ég veit ekki hvernig brugðist yrði við ef ég segði frá opinber­lega undir nafni.“

Henni finnst erfitt að viðurkenna þetta en hún vill ekki lifa í ótta og hún vill ekki láta þagga niður í sér. Hún þarf að gæta að sjálfri sér og fjöl­skyldu sinni.

„Nafn­leyndin er því ekki tilraun til að fela mig frá minni eigin sögu. Hún eru mörk sem ég kýs að setja utan um það hversu mikið aðgengi að mér og mínu lífi ég er tilbúin að gefa á meðan ég segi hana.“

Hún gafst upp, aftur og aftur

Hefur þú orðið fyrir kerfis­lægum þrýstingi í eitraðri fjöl­skyldu?

„Já, það hef ég. Og líklega skildi ég ekki sjálf hversu kerfis­lægt þetta var fyrr en ég fékk fjarlægð frá fjöl­skyldunni.

Þetta var langt ferli. Ég byrjaði í mikilli sjálfs­vinnu upp úr tvítugu sem hefur fylgt mér, með hléum, í rúm tuttugu ár. Sú vinna, menntun mín og það að maðurinn minn kom inn í fjöl­skylduna og sá hlutina utan frá urðu meðal annars til þess að ég fór smám saman að átta mig á því að ýmis fjölskyldu­mynstur, framkoma og hegðun sem ég hafði talið eðlilegan hluta af lífinu voru það kannski alls ekki.“

Hún segist samt alltaf hafa vitað eitt: Svona foreldri ætlaði ég ekki að verða og svona fjölskyldulíf vildi ég ekki skapa börnunum mínum.

Í hvert sinn sem hún reyndi að ræða erfiða hluti eða hennar upplifun var allt svo mikið „vesen“ að á endanum þurfti hún oft að biðjast afsökunar svo allt gæti orðið gott aftur. Hún gafst því upp, aftur og aftur.

„Ég setti mér ákveðin mörk í gegnum tíðina og náði þannig að lifa innan kerfisins. En eftir því sem ég styrktist sjálf, menntaði mig og fann betur eigin styrk og rödd fann ég að ég passaði sífellt verr inn í gamla hlut­verkið mitt.

Það kom að þeim tíma­punkti að ég var tilbúin og treysti mér til að ræða við foreldra mína, hvort í sínu lagi. Ég bað um það sem mér fannst í raun mjög einfalt: heiðarleg samskipti, virðingu, meiri kærleika og nánd. Ég ræddi líka æskuna og hvernig gömul, opin sár hefðu áhrif á samskipti okkar í dag.

Von mín var að við gætum viðurkennt það sem hafði gerst, byrjað að græða gömul sár og síðan vaxið og dafnað saman sem fjöl­skylda. Mig hefði aldrei órað fyrir því að þetta myndi enda eins og það gerði.

Ég ætlaði mér aldrei að loka á neinn, slíta samskiptum, hvað þá að missa fjöl­skylduna mína. Markmiðið var nákvæmlega hið gagnstæða. Mitt eina markmið í upphafi var að opna á það sem allir vissu en enginn ræddi. Ég hafði einlæga von um að við sem fjöl­skylda gætum unnið saman að betri framtíð okkar allra.

Þarna hrundi heim­ur­inn hennar

Í upphafi ákvað ég meðvitað að ræða þetta ekki við stór­fjöl­skylduna. Ég vildi ekki að neinn upplifði að hann þyrfti að taka afstöðu og fór því ekki um og sagði mína hlið. En það sem gerðist í kjölfarið breiddist smám saman út um fjölskyldu­kerfið.

Mér finnst mikilvægt að kalla það ekki „ágreining“ eða „ósætti“, því þau orð lýsa ekki því sem gerðist frá mínum sjónar­hóli. Þetta byrjaði ekki þannig að tveir aðilar væru ósammála og hvor hefði sína afstöðu til einhvers ágreinings­efnis. Samt voru einmitt þessi orð ítrekað notuð af fólki sem nálgaðist mig og reyndi að fá mig til að bakka og gera allt „gott“ aftur innan fjöl­skyldunnar.

Það sem var raun­verulega að eiga sér stað var að ég, fullorðið barn foreldra minna, sagði stopp. Ég sagði að ég gæti ekki lengur tekið þátt í samskipta­mynstri sem var skaðlegt fyrir mig og börnin mín. Ég setti mörk, kallaði eftir breytingum og vildi að við horfðumst í augu við það sem hafði gerst svo við gætum byggt upp heilbrigðari samskipti. Ég sagði í raun: „Ég vil ykkur í lífi mínu, en þetta getur ekki haldið áfram svona.“

Fyrst um sinn breyttist í raun lítið annað en samband mitt við foreldra mína. Ég hélt áfram samskiptum við systkini mín og var áfram hluti af stór­fjöl­skyldunni. Á þessum tíma komu ættingjar til mín og spurðu hvers vegna ég væri að „loka á“ foreldra mína, en mér fannst lítið hlustað á það sem ég reyndi að segja. Aðstæðunum var gjarnan stillt upp eins og um venjulegt ósætti væri að ræða sem ég ætti einfald­lega að leggja til hliðar: „Þau eru bara eins og þau eru.“

Það litla sem ég sagði frá var gert lítið úr og síðar hef ég séð eftir því að hafa yfirhöfuð tjáð mig, því orð mín hafa verið tekin úr samhengi, þeim snúið og þau notuð gegn mér.

Samskiptin við systkini mín urðu eðli málsins samkvæmt erfiðari. Ég sagði þeim ítrekað að þau þyrftu ekki að taka afstöðu og reyndi eftir fremsta megni að ræða ekki um foreldra okkar í okkar samskiptum, einmitt vegna þess að ég vildi varðveita samband okkar.“

Síðan fór eitthvað að breytast. „Ég veit í raun enn þann dag í dag ekki nákvæmlega hvað gerðist, en að lokum slitu systkini mín samskiptum við mig og samhliða því virtist mynd þeirra af mér breytast. Ég varð í þeirra frásögn eitruð manneskja, stjórnsöm og einhver sem misnotaði eða stjórnaði öðru fólki sér til hagsbóta.“

Í kjölfarið breyttist allt. „Ein jólin, þegar við töldum okkur vera að fara í hið hefð­bundna fjölskyldu­jólaboð, komst ég að því að það hafði þegar verið haldið án okkar. Meðvituð ákvörðun hafði verið tekin um að útiloka okkur.“

Þarna hrundi heimurinn hennar. „Fólkið sem ég hafði alist upp með hafði snúið við mér bakinu. Ég upplifði að það sem hafði byrjað sem mín tilraun til að setja mörk og kalla eftir breytingum væri orðið að allt annarri sögu – sögu um mig, persónu mína og það sem ég væri sögð hafa gert fjöl­skyldunni. Í dag er fjöl­skyldunni minni ekki boðið í fjölskyldu­samkomur, afmæli og jólaboð og sumir virða okkur ekki viðlits á förnum vegi. Samhliða þessu hefur orðið til mynd af mér sem ég kannast ekki við. Ég hef verið sögð veik á geði, eitruð, sjúklega stjórnsöm, óheiðarleg og lygin. Ég er sögð reyna að fá fólk „á mitt band“ og fólk innan fjöl­skyldunnar hefur gengið svo langt að vara fólk sem er í lífi mínu við mér.“

Hún hefur fengið til sín frásagnir af sjálfri sér og atburðum í sínu lífi sem hún kannast einfald­lega ekki við, meðal annars að hún hafi hent foreldrum sínum út af heimili sínu. Það hefur aldrei átt sér stað, segir hún. „Það sem hefur komið mér hvað mest á óvart er að ég hélt lengi að með tímanum myndi þetta róast. Mín upplifun hefur hins vegar verið þveröfug.“

Eftir því sem tíminn hefur liðið hefur fjandskapurinn sem hún upplifir í sinn garð aukist og færst út á fleiri svið lífs hennar. Sögur og ummæli hafa borist til vina og kunningja og hún hefur upplifað tilraunir þar sem fjölskyldu­meðlimir hafa reynt að hafa skaðleg áhrif á starfs­vettvang sinn með því að nálgast fólk í faglegu umhverfi hennar.

„Stór hluti fólksins sem virðist hafa myndað sér mjög sterka skoðun á mér hefur aldrei rætt við mig um það sem gerðist eða spurt mig hver mín hlið sé. Og ég hef sjálf ekki gengið um og sagt mína sögu. Þvert á móti hef ég lengst af kosið að ræða þetta ekki. Þess vegna hefur þetta orðið mjög yfir­þyrmandi. Stundum upplifi ég eins og þetta haldi áfram að stækka, án þess að ég taki sjálf þátt í því. Ég veit ekki hvað verður sagt næst, hvert það berst eða hvar þetta endar.“

Ég hef jafn­vel hug­leitt hvort ég þurfi ein­hvern tím­ann að flytja úr landi

Hún á enn erfitt með að skilja hvernig þetta þróaðist svona og hvernig fólk sem hefur þekkt hana alla ævi getur trúað þessari mynd af sér.

„Það hefur skapað hjá mér raun­verulegt óöryggi og stundum ótta. Við búum í litlu samfélagi og þegar neikvæð frásögn um manneskju fer að teygja sig út fyrir fjöl­skylduna og inn í félagslegt og faglegt umhverfi hennar getur heimurinn orðið mjög lítill. Ég er nú þegar flutt í annað sveitar­félag og eftir þann flutning hef ég fundið fyrir meiri ró og öryggi. Ég hef jafnvel hugleitt hvort ég þurfi einhvern tímann að flytja úr landi til þess einfald­lega að fá fjarlægð frá þessu öllu.“

Hún lýsir því þannig að þegar hún er að tala um kerfis­lægan þrýsting sé hún ekki eingöngu að tala um viðbrögð nokkurra fjölskyldu­meðlima við því að hún setti mörk. Hún er að tala um ferli sem hún upplifir að hafi breiðst út og magnast með tímanum, þar sem persóna hennar, trúverðug­leiki og ásetningur hafa ítrekað verið dregin í efa og neikvæð mynd af henni borist til fólks sem hefur jafnvel aldrei rætt við hana um það sem raun­verulega gerðist. Þess vegna skiptir orðalagið hana máli.

„Ég upplifi ekki að fjöl­skyldan mín hafi sundrast vegna þess að ég stofnaði til ágrein­ings. Ég steig út úr óheil­brigðu mynstri og neitaði að taka áfram þátt í ofbeldi, afneitun og þöggun sem ég hafði lengi sætt mig við. Það sem gerðist eftir að ég sagði stopp er stór hluti af þessari sögu. Ég fór ekki af stað til að berjast við neinn. Ég fór af stað vegna þess að mig langaði að laga fjöl­skylduna mína.“

Tilfinningaleg vanræksla

Finnst þér þú hafa verið neydd til að bera ábyrgð á ofbeldi úr æsku?

„Já, og kannski birtist það einmitt skýrast í því að það sem ég upplifði hefur aldrei verið viðurkennt. Það fólst að miklu leyti í sálrænu ofbeldi og því sem ég myndi í dag lýsa sem tilfinningalegri vanrækslu og ofbeldi. Það var einnig annað ofbeldi, en ég kýs meðvitað að fara ekki nánar út í einstök atvik. Það er mikilvægt fyrir mig að setja þau mörk. Ég hef í raun aldrei sagt mína sögu. Frá því ég man eftir mér vissi ég einhvern veginn að maður ætti að vernda fjöl­skylduna og ekki tala um það sem gerðist innan hennar. Ég man ekki eftir að neinn hafi sagt það berum orðum. Ég bara vissi það. Samt hef ég fengið að heyra að það sem ég lýsi hafi ekki gerst eða hafi ekki verið „svona slæmt“. Þegar ég setti síðan loks mörk sem fullorðin kona upplifði ég að ábyrgðinni væri snúið við: ég hefði skapað vandann og eyðilagt fjöl­skylduna. Frá því að þessi atburðarás hófst hefur nánast enginn komið til mín og spurt: „Hvað gerðist? Hvað varð til þess að þú tókst þetta skref?“ Eftir allt sem hefur fylgt í kjölfarið hef ég enn minni löngun til þess að lýsa opinber­lega einhverjum sárustu atburðum lífs míns til þess eins að reyna að sanna eitthvað. Til hvers? Til þess að varpa skugga á foreldra mína og ljósi á minn sannleika? Ég þarf þess ekki. Ég veit minn sannleika. En málið er stærra en ég. Mig langar að við sem samfélag tölum um þetta vegna barnanna sem lifa við ofbeldi, vanrækslu og einmana­leika í dag. Ekkert barn á að þurfa að læra að þegja til þess að vernda fjöl­skylduna. Ég var að mörgu leyti heppin. Ég hafði fólk í kringum mig sem gaf mér kærleika og sá mig. Ég held að það hafi skipt gríðar­legu máli. Það eiga ekki öll börn það.“

Var alltaf sú sem „skapaði vesen“

Hvernig er fjöl­skyldan þín uppbyggð, finnst þér þú ekki hafa fundið fyrir réttlæti innan veggja heimilisins eða jafnvægi?

„Nei. Þegar ég horfi til baka held ég að ein af sárustu upplifunum mínum innan fjöl­skyldunnar hafi einmitt verið sú að upplifa ekki jafnvægi eða réttlæti. Ég er elst systkina minna og frá því ég man eftir mér upplifði ég að rödd mín, tilfinningar og mín hlið á málum hefðu minna vægi en annarra. Ef eitthvað kom upp fannst mér ég sjaldnast hafa raun­verulegt rými til að útskýra hvað hefði gerst frá mínum sjónar­hóli. Upplifun mín gat verið dregin í efa, henni breytt eða hún einfald­lega talin minna gild. Þetta snerist ekki bara um stór og alvarleg mál. Þetta gat líka snúist um eitthvað svo einfalt eins og hvað mig langaði, hvað mér fannst eða hvaða pláss ég mátti taka. Ég lærði mjög snemma að aðlagast, lesa í aðstæður og passa upp á líðan annarra. En mér fannst ekki sama rými vera til staðar fyrir mig.“

Sérstak­lega var það sárt að upplifa að sömu reglur giltu ekki endilega um systkini hennar. „Ég vil alls ekki draga úr þeirra reynslu eða gera samanburð á okkur sem einstaklingum, en mín upplifun var sú að þeirra tilfinningar, þarfir og sjónarmið fengju meira rými og væru frekar tekin gild en mín.“

Þetta mynstur fylgdi henni sem barni, unglingi og síðar full­orðinni konu. „Ég varð mjög oft sú sem „skapaði vesen“ þegar ég tjáði vanlíðan, mótmælti einhverju eða reyndi að setja orð á það sem mér fannst ekki í lagi.“

Þegar hún kynnist síðar hugtakinu scapegoating, eða blóra­bögguls­hlutverki innan fjölskyldu­kerfa, segist hún hafa fundið ákveðið tungumál yfir hluta þess sem hún hafði upplifað. „Ekki vegna þess að eitt hugtak geti útskýrt heila fjöl­skyldu, heldur vegna þess að ég kannaðist við mynstrið þar sem einn einstaklingur verður ítrekað gerður að vanda­málinu eða ábyrgur fyrir ójafnvægi sem er í raun miklu stærra en hann sjálfur.“

Þegar hún svo loksins sagði sem fullorðin kona: „Mín upplifun skiptir líka máli. Ég má segja hvernig þetta hefur haft áhrif á mig og ég má setja mörk,“ upplifði ég aftur sama gamla mynstrið – að vanda­málið væri ekki það sem ég væri að reyna að tala um, heldur ég sjálf fyrir að tala um það.“

Þetta snertir enn við barninu í henni sem hún segir að hafi lært mjög snemma að rödd þess hefði minna vægi. „Munurinn er sá að í dag trúi ég því ekki lengur.“

„Ekki gera svona mikið mál úr engu“

Upplifðir þú gaslýsingu af hálfu fjölskyldu­meðlima?

„Já. Gaslýsing og afneitun á minni upplifun eru meðal skýrustu mynstranna sem ég þekki úr minni fjöl­skyldu. „Þetta var ekki svona vont“, „þetta var ekki svona alvarlegt“ og „ekki gera svona mikið mál úr engu“ eru setningar sem ég heyrði ótal sinnum. Mér fannst það sem ég sagði, tjáði eða upplifði stöðugt breytast þegar ég reyndi að koma því frá mér.

Þannig upp­lifðum við að við fengjum ekk­ert raun­veru­legt rými til þess að tala, spyrja eða segja okkar hlið

Ég var því mjög ung þegar ég hætti að leita til annarra eftir huggun. Þegar ég horfi til baka finnst mér ég hafa verið innan við sex ára þegar ég að einhverju leyti gafst upp á því. En þetta mynstur tilheyrir ekki aðeins æskunni. Ég upplifi það líka mjög sterkt í því sem hefur gerst undan­farin ár. Eftir að samskiptin rofnuðu var lokað á mig, manninn minn og elstu börnin mín á samskipta­leiðum þannig að við gátum ekki haft samband. Þegar börnin mín urðu eðlilega reið og reyndu sjálf að fá skýringar á því sem var að gerast og hvernig komið væri fram við mig var ýmist skellt á þau eða fleiri samskipta­leiðum lokað. Þannig upplifðum við að við fengjum ekkert raun­verulegt rými til þess að tala, spyrja eða segja okkar hlið. Samhliða þessu hefur síðan borist til mín sú frásögn að það hafi verið ég sem lokaði á samskipti foreldra minna við mig og fjöl­skylduna mína. Þetta er eitt af því sem hefur verið hvað erfiðast fyrir mig að ná utan um í öllu ferlinu. Ekki aðeins að missa mögu­leikann á samtali, heldur að upplifa síðan að frásögnin um það hvernig samskiptin rofnuðu verði öfug við það sem ég og fjöl­skylda mín upplifðum.“

Og þarna snertir nútíðin mjög gamalt sár hjá henni. „Þegar maður elst upp við að eigin upplifun sé dregin í efa, henni breytt eða sagt að hlutir hafi ekki gerst eins og maður man þá, lærir maður smám saman að efast um sjálfan sig. Þegar eitthvað sambærilegt gerist síðan á fullorðins­árum getur gamla efasemdin kviknað aftur. Ég er enn þann dag í dag að vinna í því að treysta eigin upplifunum og tilfinningum. Þegar margar raddir virðast samþykkja allt aðra útgáfu af manni getur komið augnablik þar sem ég spyr sjálfa mig: „Er það kannski ég sem er vanda­málið?“ Þá þarf ég að stoppa og minna mig á það sem ég veit, það sem ég upplifði og líka þá staðreynd að í þetta sinn var ég ekki ein. Maðurinn minn og börnin mín upplifðu þetta ferli með mér. Það skiptir mig máli vegna þess að þetta er ekki eingöngu minning mín um eitthvað sem gerðist fyrir áratugum. Þetta er eitthvað sem við höfum upplifað saman í nútímanum. Þegar maður hefur lengi lært að ganga gegn eigin upplifun til þess að halda friðinn tekur tíma fyrir huga, líkama og sál að læra að treysta aftur. En það er einmitt það sem ég er að læra og æfa mig í í dag.“

Hvaða styrkleika þróum við út frá tilfinningalegri vanrækslu?

Sem sálfræði­menntuð kona, hefur þú rannsakað þetta eitthvað nánar út frá fræðunum?

„Já, og persónuleg reynsla mín hefur óhjá­kvæmilega haft áhrif á það hvað heillar mig innan sálfræðinnar. Ég hef mikinn áhuga á sálrænum áföllum og ofbeldi, en það sem heillar mig sérstak­lega er hvað verður um manneskjuna eftir á. Af hverju ná sumir að byggja sér gott líf þrátt fyrir mjög erfiða æsku eða lífs­reynslu? Hvaða verndandi þættir skipta máli? Hvaða styrk­leika þróum við? Og geta eigin­leikar sem urðu upphaf­lega til sem leið til að lifa af síðar orðið raun­verulegir styrk­leikar án þess að við þurfum áfram að lifa í varnar­ástandinu sem skapaði þá?“

Þarna mætast áhugi hennar á áföllum og jákvæðri sálfræði. „Fræði um fjölskyldu­kerfi hafa líka hjálpað mér að skilja betur að þegar einn einstaklingur breytir hlutverki sínu getur allt kerfið brugðist við. Fjöl­skyldur geta leitast við að viðhalda kunnug­legu jafnvægi, jafnvel þegar það jafnvægi er ekki heilbrigt fyrir alla innan þess. Hugtök eins og gaslýsing og blóra­bögglun geta hjálpað okkur að setja orð á ákveðin samskipta­mynstur. En mér finnst mikilvægt að nota fræðin ekki til þess að greina fjölskyldu­meðlimi úr fjarlægð eða ákveða hver sé „góður“ og hver sé „vondur“. Fyrir mér eiga fræðin að hjálpa okkur að skilja hegðun og mynstur – ekki setja fólk í kassa.“

Hvað veitir þér ánægju og ham­ingju?

Það sem hefur svo hjálpað henni einna mest í hennar eigin uppbyggingu var þegar hún fór smám saman að færa fókusinn frá því að einblína eingöngu á það sem hafði gerst og neikvæðar afleiðingar þess yfir í að spyrja: „Hver er ég í dag? Hvað er það sem gerir mig að mér? Hvað vil ég? Hvers óska ég? Hvernig lífi vil ég lifa? Eftir áratuga sjálfs­vinnu finnst mér mikilvægt að við séum ekki eingöngu að spyrja hvað sé að, greina vandann, finna hvað manneskjuna skortir og leggja alla áherslu á að skilja fortíðina og neikvæðar afleiðingar hennar.“

Hún segist alls ekki vera að gera lítið úr mikilvægi þeirrar vinnu. Hún getur verið nauðsynleg. Henni finnst einfald­lega þurfa að gefa öðrum spurningum meira rými líka: Hvað kom fyrir þig? Hvað hjálpaði þér að lifa það af? Hverjir eru styrk­leikar þínir? Hvað veitir þér ánægju og hamingju? Hvað skiptir þig máli? Og hvað þarft þú til þess að lifa góðu og hamingju­ríku lífi og blómstra á þínum eigin forsendum? Þarna liggur hennar stærsti áhugi í dag.

Sorgin nánast óbærileg á köflum

Hefur þú þurft að slíta samskiptum við þína nánustu?

„Já, en orðið „slíta“ er erfitt fyrir mig vegna þess að það getur hljómað eins og þetta hafi verið einföld ákvörðun sem ég tók um að fjarlægja fólk úr lífi mínu. Ég ætlaði aldrei að missa fjöl­skylduna mína. Þegar samskiptin rofnuðu saknaði ég fjöl­skyldunnar minnar gríðar­lega. Ég syrgði systkini mín, börnin þeirra, samveruna og fjöl­skylduna sem ég taldi mig eiga. Sú sorg hefur á köflum verið nánast óbærileg. En fjar­lægðin hefur líka gefið mér sjónar­horn sem ég gat ekki haft meðan ég var inni í kerfinu. Smám saman fór ég að sjá sjálfa mig, æskuna mína og fjölskyldu­mynstrið miklu skýrar. Ég fór að átta mig á hversu margt ég hafði talið eðlilegt sem var í raun skaðlegt og óheilbrigt. Og sann­leikurinn er sá að í dag sakna ég fólksins ekki lengur á sama hátt. Það tók mig langan tíma að skilja það. Með fjar­lægðinni fór ég að sjá að svo margt var ekki eins og ég hafði talið mér trú um að það væri. Ég hafði lengi haldið fast í ákveðna mynd af fjöl­skyldunni minni, góðu stundunum og samböndunum okkar og reynt að aðskilja það frá öllu því sem særði. Í dag get ég ekki lengur gert þann aðskilnað. Það þýðir ekki að góðu augna­blikin hafi ekki átt sér stað. Þau gerðu það. En ég sé þau í öðru samhengi í dag.“

Ég get verið sorg­mædd yfir því sem tap­að­ist án þess að vilja fá það aftur

Kannski var það hún sjálf sem hún þurfti að syrgja mest, ekki aðeins fólkið sjálft heldur fjöl­skylduna sem hún hélt að hún ætti, fjöl­skylduna sem hún reyndi svo lengi að skapa úr því sem þau höfðu og fjöl­skylduna sem hún vonaði að gæti orðið.

„Það er mjög sérstök sorg að átta sig á því að það sem maður þráir að fá aftur er kannski ekki eitthvað sem var raun­verulega til í þeirri mynd sem maður hafði haldið í. Í dag þrái ég því ekki að fara aftur. Ég vil ekki fara aftur inn í þau sambönd eins og þau voru. Ég vil ekki lengur vinna fyrir samþykki, aðlagast til þess að halda friðinn eða efast um eigin upplifun til þess að tilheyra. Ég get verið sorgmædd yfir því sem tapaðist án þess að vilja fá það aftur. Og fyrir mér er það stór hluti af batanum.“

Erfiðasta ferli lífs hennar og sér ekki fyrir endan á því

Hefurðu náð að vinna í þessu með fjöl­skyldu þinni og náð einhverjum bata?

„Nei, við höfum ekki unnið úr þessu saman sem fjöl­skylda. En ég er að vinna úr því. Og mér finnst mjög mikilvægt að segja þetta ekki eins og þetta hafi verið einfalt frelsis­ferli þar sem ég setti mörk og gekk síðan sterk út hinum megin. Þetta hefur verið eitt erfiðasta ferli lífs míns og að mörgu leyti er því ekki lokið. Það er gríðar­lega erfitt að standa í eigin sannleika þegar svo margir virðast samþykkja allt aðra útgáfu af manni. Þegar fólk sem hefur þekkt mann alla ævi hættir að tala við mann án þess að spyrja hvað hafi gerst, þegar maður heyrir að maður sé sagður vondur, veikur eða eitruð manneskja og þegar frásögnum af atburðum er dreift sem maður kannast ekki við, þá hefur það áhrif. Það hefur stundum brotið mig niður. Ég hef upplifað sorg sem ég á erfitt með að lýsa með orðum og á tímabili var hún sérstak­lega djúp vegna systkina minna og barnanna þeirra sem hurfu úr lífi okkar. Og ég hef oft verið reiðari fyrir hönd barnanna minna en mína eigin. Þau báðu ekki um þetta, en allt sem hefur gerst síðan ég tók fyrsta skrefið hefur líka breytt mér.“

Í upphafi segir hún að tilgangurinn hafi verið að „laga“ fjöl­skylduna sína. „Fjar­lægðin gaf mér hins vegar sjónar­horn sem ég hafði aldrei haft áður og smám saman fór ég að sjá sjálfa mig, æskuna mína og fjölskyldu­mynstrið skýrar. Ég er ekki sama manneskjan í dag og ég var þegar ég tók þetta fyrsta skref. Þess vegna er ég í dag, þrátt fyrir alla sorgina og allt sem þetta ferli hefur kostað, þakklát fyrir að hafa tekið þetta skref. Ekki bara fyrir sjálfa mig, heldur fyrst og fremst fyrir börnin mín. Ég rauf keðjuna. Ég sýndi þeim að það sem var í gangi var ekki í lagi. Að fjöl­skylda og kærleikur eiga ekki að krefjast þess að við afneitum okkur sjálfum, tilfinningum okkar eða mörkum. Með því vona ég að ég hafi gefið þeim tækifæri til að skapa sér aðra sýn á fjöl­skyldu, kærleika og samskipti en þá sem ég ólst sjálf upp við.“

Ég vil fá að standa með minni eigin reynslu án þess að þurfa stöðugt að verja hver ég er

Hún viðurkennir að það voru góð augnablik þó svo að heildin hafi verið skaðleg. „Ég get syrgt það sem ég taldi mig eiga án þess að vilja það aftur. Ég get verið þakklát fyrir að hafa farið og samt viðurkennt að það kostaði mig gríðar­lega mikið. Ég get verið sterk og samt viðurkennt að þetta ferli hefur stundum brotið mig niður. Bæði getur verið satt.“

Í dag er markmiðið hennar ekki lengur að fá fjöl­skylduna sína til að samþykkja sína útgáfu eða sannfæra aðra um að velja mína hlið. Ég vil frið. Ég vil fá að standa með minni eigin reynslu án þess að þurfa stöðugt að verja hver ég er. Og fyrst og fremst vil ég að mynstrið stoppi hjá mér. Ef þessi frásögn getur líka orðið til þess að við sem samfélag spyrjum aðeins öðruvísi þegar fullorðið barn slítur tengsl við fjöl­skyldu sína, þá hefur það gildi fyrir mig. Mér finnst við nefnilega of oft byrja umræðuna á spurningunni um hvað barnið hafi gert foreldrum sínum með því að slíta samskiptum. Við tölum jafnvel um að fullorðna barnið hafi „lokað á“ foreldra sína eða valið að ganga frá fjöl­skyldunni, en þá er hætta á að við séum að byrja söguna á endinum.

Í stað þess að spyrja fyrst:

„Hvernig gat barnið gert foreldrum sínum þetta?“ langar mig að við þorum líka að spyrja:

„Hvað varð til þess að barnið sá enga aðra leið?“ Því stundum eru samskipta­slit ekki upphaf sögunnar. Þau eru endir á mjög löngu ferli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Félagið gerði ekki skriflega ráðningarsamninga og lagði ekki fram vaktaskrár. Dómurinn féllst á kröfur starfsmannanna að fullu.
Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“