Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Fjarðabyggð þegir um svarta skýrslu um slökkviliðið – Enn bólar ekkert á yfirlýsingu um málið

Bæjarskrifstofa Fjarðabyggðar Mynd / Fjardabyggd.is
Bæj­ar­skrif­stofa Fjarða­byggðar Mynd / Fjar­da­byggd.is

Fjarða­byggð virðist enn ekki hafa brugðist við svartri skýrslu Attentus ehf en fyrir­tækið rann­sakaði ásakanir um einelti og kynferðis­lega áreitni yfirmanna slökkviliðs Fjarða­byggðar.

„Fjarða­byggð hefur nýlega fengið í hendur skýrslu sem snýr að starfs­mannamálum stofnunar innan Fjarða­byggðar. Enn er verið að rýna niður­stöðurnar og málefnið er því ennþá til vinnslu. Að svo stöddu getur Fjarða­byggð því ekki tjáð sig um niður­stöður skýrslunnar. Yfir­lýsingu er að vænta fljótlega í kjölfar þess að niður­stöðurnar hafa verið rýndar.“ Svo hljóðar svar Fjarða­byggðar við fyrir­spurn Mannlífs þann 14. apríl síðastliðinn. En hvergi bólar á yfir­lýsingunni sem var að vænta fljótlega samkvæmt svarinu. Mannlíf sendi spurningar fyrir helgi á upplýsinga­fulltrúa sveitar­félagsins en hefur enn ekkert svar fengið. Tölvu­pósturinn frá Mannlíf hljóðaði svo:

„Þú sagðir í fyrra svari þínu til mín þann 14. apríl að vænta væri yfir­lýsingar frá Fjarða­byggð fljótlega eftir að skýrslan um Slökkviliðið hafi verið skoðuð. Nú er næstum því mánuður liðinn frá svarinu en enga yfir­lýsingu hef ég séð frá Fjarða­byggð. Er búið að rýna í skýrsluna? Hefur einhver ákvörðun verið tekin í kjölfarið, hvað varðar stjórn­endur slökkviliðsins eða annað sem tengist skýrslunni? Mun aðstoðar­slökkviliðs­stjórinn fá starf sitt aftur? Mun slökkviliðs­stjórinn halda sínu starfi? Verða þolendur þeirra beðnir afsökunar?“

Aðstoðar­slökkviliðs­stjóri Fjarða­byggðar er sakaður um kynferðis­lega áreitni gagnvart tveimur karlkyns undir­mönnum sínum. Annar þeirra fór í veikinda­leyfi í kjölfarið og hefur ekki komist til vinnu í ár. Slökkviliðs­stjórinn er meðal annars sakaður um einelti á vinnustað. Aðstoðar­slökkviliðs­stjórinn var sendur í leyfi þegar málið kom upp.

Samkvæmt heimildum Mannlífs er aðstoðar­slökkviliðs­stjórinn enn í leyfi en hefur ekki verið sagt upp.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp