Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Sæþór var enn að vakna er snjóflóð féll á húsið:„Svo komu þessi miklu neyðaröskur af neðri hæðinni“

Snjóflóð féll í Neskaupsstað í fyrra
Snjóflóð féll í Nes­kaups­stað í fyrra Mynd: Rúv-skjáskot

„Það tók okkur stundar­korn að gera okkur grein fyrir hvað hafði gerst enda vorum við ekki alveg vöknuð en svo heyrðum við bara neyðaröskrin og lætin frá neðri hæðinni strax í kjölfarið,“ sagði Sæþór Sigursteinsson, íbúi í öðru af þeim tveimur fjölbýlis­húsum í Neskaupstað sem urðu fyrir snjóflóði snemma í morgun en hann var í viðtali við Austur­frétt.

Fram kemur í frétt Austur­fréttar að það sé samdóma álit fólks sem miðillinn ræddi við, að enn verr hefði farið ef snjó­fljóðin hefðu komið örlítið síðar. Bæjarbúar voru langflestir að vakna þegar flóðin komu og fáir á ferli útivið.

„Það var nú ekki svo að ég áttaði mig á hvað væri á seyði og ekki heyrði ég neitt fyrr en flóðið skellur á húsinu með miklum dynk,“ sagði Sæþór í samtali við Austur­frétt. „Maður var svona að rísa úr rekkju og enn með stírur í augum svo að mér var brugðið þegar höggið kom á húsið en svo komu þessi miklu neyða­röskur af neðri hæðinni. Ég glaðvakna, spóla mig í föt í einum grænum og út á stigagang þar sem ég geri mér loks grein fyrir hvað átt hefur sér stað. Þar fylltist nánast öll íbúðin af snjó.“

Enginn hlaut alvarleg meiðsl er snjó­flóðin féllu snemma í morgun en allnokkrir þurftu að leita læknis­aðstoðar vegna minni­háttar meiðsla. Einn þeirra var áður­nefndur Sæþór en hann skarst nokkuð á kálfa vegna glerbrota í snjónum fyrir utan húsið er rýmingin var gerð.

„Ég varð fyrir því að fá stærðar glerbrot beint í kálfann á mér þegar við vorum að rýma húsið og ég þurfti að drífa mig og láta sauma tvö spor í kálfann. Það var engin leið að sjá slíkt í snjónum þegar út var komið því það var brak út um allt.“

„Í sjálfu sér vorum við í þessu húsi heppin að því leytinu að flóðið féll fyrst á fjölbýlishús hér rétt fyrir ofan okkur og þar náði flóðið vel upp á aðra hæð þess húss. Við hér sluppum við það og mildi að enginn hér á neðri hæðinni hafi til dæmis verið kominn í eldhúsið og staðið fyrir innan gluggann þegar þetta ríður yfir. En við auðvitað töluvert heppnari en fólkið í blokkinni hér utar því snjó­flóðið náði ekki aðeins upp á aðra hæð þar heldur sópaði niður bílum kringum það hús og þeir bílar komu í runnu með snjónum hér fram hjá okkar byggingu og stoppuðu hér rétt fyrir neðan á steyptum kanti,“ sagði Sæþór við Austur­frétt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Héraðs­dómur synjar foreldrum Sólons um vitna­leiðslu

Foreldrarnir vildu fá fram hvað sagt var á fundi sonar þeirra með starfsfólki Icelandair fyrir starfslok hans
Innlent

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Pólitík

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp