Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Gísli tónskáld býr til draugahljóð: „Ég er spenntur að heyra hvernig það kemur út“

Gísli Magnússon
Gísli Magn­ús­son

„Það sem er á döfinni eru meðal annars tónleikar á Norrænum músík­dögum um miðjan október. Þá mun kammer­sveitin Caput frum­flytja nýtt verk eftir mig, Skugga­ljós. Þetta er um 15 mínútna langt verk í sex stuttum köflum. Það er flókið og margt í því sem sem ég er að gera í fyrsta skipti og ég er spenntur að heyra hvernig það kemur út. Það verður spilað á alls konar óhefðbundin hljóðfæri; slagverks­hljóðfæri sem ég hef ekki notað áður og önnur óhefðbundin hljóðfæri svo sem simbalom sem er mikið notað í ungverskri þjóðlaga­tónlist. Í verkinu er einnig spilað á waterphone, sem er mjög áhugavert hljóðfæri, en vatn í hljóð­færinu sveigir hljómana og brenglar hljóðið. Sumum finnst þetta vera draugalegt hljóð,“segir Gísli Magnússon tónskáld.

Bandaríska kammer­sveitin Tempo flytur síðan 2. október verkið Aurora eftir Gísla á tónleikum í Kaliforníu. „Þau flytja verk eftir tónskáld héðan og þaðan á tvennum tónleikum í vetur sem tileinkaðir eru nýrri tónlist. Þetta kom þannig til að þessi hópur auglýsti eftir verkum í samkeppni og gátu tónskáld sent inn sín verk. Það endaði á því að mitt verk og nokkur önnur voru valin til flutnings.“

Skapa eitthvað

Gísli Magnússon segir að hann komi úr mikilli tónlistar­fjölskyldu í bæði móður- og föðurætt.

„Afi minn, Gísli Magnússon, var konsert­píanó­leikari og kom oft fram með Sinfóníu­hljómsveit Íslands. Einhvern veginn lá beint við að ég færi í klassískt tónlistarnám. Ég var sendur sex ára gamall í forskóla til að læra á blokk­flautu og fékk eiginlega strax góðan grunn í tónfræði.“

Ég var jafn­vel áhuga­sam­ari um tón­fræð­ina heldur en píanó­n­ámið.

Svo fór Gísli að læra á píanó og hélt áfram í tónfræði. „Það er misjafnt hvernig tónfræði leggst í tónlistar­nemendur en ég var jafnvel áhuga­samari um tónfræðina heldur en píanó­námið. Síðan leið langur tími þar til ég fór að tengja þetta við tónsmíðar eða hugsa um tónsmíðar sem starfs­vettvang af einhverri alvöru. Ég var þó mikið að prófa mig áfram. Skapa eitthvað.“

Hann fór í mennta­skóla og tók sér frí frá píanó­náminu. Hann fór síðan í undirbúningsnám í arkitektúr en tónlistin kallaði svo hátt að 22 ára gamall hóf hann nám í tónsmíðum við Lista­háskóla Íslands. Árið 2013 lauk hann náminu með BA-prófi og hélt síðan til Amsterdam og útskrifaðist með meistara­próf í tónsmíðum nokkrum árum síðar.

Í dag starfar Gísli sem tónlistar­kennari -kennir tónfræði, hljóm­fræði, tónheyrn og á píanó – og skapar heilu ævintýrin úr tónum.

Að segja sögu

Hvað einkennir tónlist Gísla Magnússonar?

„Ég var á tímabili mjög fókuseraður á tengingu við náttúruna; hvernig hægt er að túlka hana með tónum, hvernig áferð og orka er í nátt­úrunni og hvernig hægt er að heimfæra það upp á tónlist. Ég samdi verk þar sem ég var beinlínis að taka náttúru­fyrirbrigði fyrir. Það er þó ekkert nýtt að nota náttúru sem innblástur í tónlist en ég fór dálítið langt með það. Á meðan ég var í náminu samdi ég til dæms verk sem er hljóðræn eftirmynd af Strokki – goshvernum. Í verkinu reyndi ég að ná fram áhrifum orkunnar í honum með spennu og eftir­væntingu.

Stundum lít ég á sum verk eftir mig meira sem hljóð­list heldur en tón­list.

Núna nálgast ég tónsmíð­arnar meira út frá hljóðum og hugsa frekar hljóðrænt en út frá tónum. Stundum lít ég á sum verk eftir mig meira sem hljóðlist heldur en tónlist. Hljóðið sjálft verður einhvern veginn í forgangi.“

Hann segist mest semja akústíska tónlist; fyrir hljóðfæri. „Ég hef samt gaman af að láta tæknina hjálpa mér.“

Þetta er nútíma­tónlist. „Ég hef gaman af alls konar tónlist og sæki innblástur í ólík tímabil. Mér finnst líka gaman að vinna með gömul form og setja í nýjan búning. Ég sæki í arf tónlistar­sögunnar og hef gaman af því að afla mér upplýsinga um eldri tónlist og tónlist frá öðrum menningar­heimum.“

Gísli skapar listaverk eins og málarinn sem stendur með pensilinn fyrir framan trönurnar eða rithöfundurinn. „Maður reynir yfirleitt að segja einhverja sögu. Stundum hef ég unnið út frá ljóðum. Í ljóðum eru oft dregnar upp myndir mér finnst vera áhuga­verðar, sem ég tengi við og veita mér innblástur.“

Hinn hreini tónn

Tónlistin gefur. „Hún getur verið huggandi og ef maður á erfitt þá getur hún veitt manni styrk. Það er oft mikil gleði sem fylgir tónlist. Einhver lífsgleði.“

Stundum er tón­listin þó abstrakt

Líðan og tilfinningar geta haft áhrif á pensil­strokur myndlistar­mannsins og litaval hans. Hvað með slík áhrif á tónskáldið?

„Jú, stundum sér maður það ekki sjálfur fyrr en eftir á þegar maður fer að skoða hlutina í samhengi. Maður sér þetta þá skýrar heldur en þegar maður var í hringiðunni. Það hvernig manni líður og er stemmdur hefur áhrif á hvað maður lætur frá sér eða hvað maður gerir. Stundum er tónlistin þó abstrakt og þá er erfitt að sjá tengingarnar. Persónu­leiki lista­mannsins kemur þó held ég alltaf í gegn.“

Nóbels­skáldið skrifaði um hinn hreina tón. Hver er hinn hreini tónn í huga tónskáldsins? Er hann til? „Ég hugsa mikið um tær hljóð versus óhrein hljóð eða suð. Hinn hreini tónn er þá tónn sem er ekki mengaður af öðrum hljóðum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning