Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Vopnaður karl handtekinn við Smáralind – Tryllt kona réðst á lögreglumann og var læst inni

Lögreglan
Lög­reglan

Í nógu var að snúast hjá lögreglunni á höfuð­borgar­svæðinu í nótt. Tilkynningar og mál tengdu skemmtana­lífinu í miðborginni voru þó í minni­hluta. Töluvert var um umferða­lagabrot og akstur undir áhrifum áfengis- og vímuefna. Frá klukkan fimm í gærdag og til klukkan sjö í morgun voru samtals 94 verkefni á borði lögreglu.

Vopnaður skammbyssu við Smáralind

Lögreglu barst tilkynning um hálf sex leytið í morgun þegar sást hafði til vopnaðs karlmanns við verslunar­miðstöðina Smáralind í Kópavogi. Karl­maðurinn var vopnaður skamm­byssu. Var viðkomandi hand­tekinn og færður á næstu lögreglustöð til viðtals. Reyndist hinn vopnaði á átjánda aldursári. Barna­verndar­yfirvöldum og foreldrum verður gert viðvart. Við frekari skoðun kom í ljós að umrædd skamm­byssan reyndist vera leikfang.

Lögreglan beitt ofbeldi

Laust fyrir klukkan hálf tíu í gærkveldi var lögreglu­maður beittur ofbeldi þegar óður kvenmaður var handtekin á heimili sínu. Lögreglu­maðurinn sinnti störfum á vettvangi en óskað hafði verið eftir aðstoð þar sem konan hafði beitt heimilis­fólk sitt ofbeldi. Reyndist konan undir miklum áhrifum áfengis og gisti fanga­geymslu til að tryggja öryggi heimilis­fólks. Yfirheyrsla fer fram þegar af konunni rennur en um tvö aðskyld mál er um að ræða. Ekki kemur fram í dagbók lögreglu hvar þetta atvik átti sér stað á höfuð­borgar­svæðinu.

Innbrot og íkveikja

Um klukkan hálf eitt í nótt barst lögreglu tilkynningu um reyk­skynjara í gangi í húsi á Hverfis­götu í miðbæ Reykja­víkur. Lögreglu­menn fóru inn í húsið og slökktu eldinn sem var minni­háttar. Slökkvilið mætti einnig á vettvang og reykræsti húsið. Grunur leikur á að um íkveikju hafi verið að ræða, en við nánari eftirgrennslan kom í ljóst að brotist hafi verið inn íbúðina og úr henni rænt munum.

Um það bil hálftíma seinna var tilkynnt um húsbrot í Grundar­hvarfi í Kópavogi en þar hafði karlmaður gengið berserks­gang og veist að húsráð­anda. Karl­maðurinn var hand­tekinn á vettvangi og vistaður í fanga­geymslu. Talið er aðilinn hafi tengsl við innbrotið og íkveikjuna á Hverfis­götunni og er til skoðunar um hvort það verði farið fram á gæslu­varðhald að yfirheyrslum loknum síðar í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið