Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Uppljóstrarinn sem afhjúpaði leyndarmál Manchester City sviptur vitnavernd

„Staða hans er nú orðin afar alvarleg.“

Rui Pinto
Rui Pinto Pinto varð fyrir árás í apríl síð­ast­liðnum Mynd: THOMAS SAMSON / AFP

Maðurinn sem uppljóstraði um hin fjölmörgu brot Manchester City, Rui Pinto hefur nú verið sviptur vernd ríkisins.

Pinto stofnaði Football Leaks og hefur með uppljóstrunum sínum hjálpað til við að afhjúpa myrku hliðarnar á fótboltanum utan vallar.

Í janúar 2017 komst hann yfir einhver dýpstu og myrkustu leyndarmál Manchester City með því að nýta sér tölvupóst sem notaður var í vefveiða­árás (e. phising). Síðustu daga hefur hann fagnað niður­stöðu málsins gegn félaginu á samfélags­miðlum, eftir að úrskurður um sekt City var gerður opinber.

„Áralangt svindl, lygar og misnotkun munu loksins hafa afleiðingar,“ skrifaði hann í einni af fjölmörgum færslum sínum á samfélags­miðlinum X.

Pinto telur sig eflaust hafa fengið uppreisn æru með niður­stöðu óháðrar nefndar ensku úrvals­deildarinnar. Manchester City hefur þó ítrekað haldið fram sakleysi sínu og staðfest að félagið hyggist áfrýja niður­stöðunni.

Portúgalski uppljóstrarinn hefur hins vegar fengið slæmar fréttir. Á miðvikudag staðfestu portúgölsk yfirvöld að hann nyti ekki lengur verndar sem vitni. Pinto, sem er 37 ára, hefur verið undir vernd ríkisins frá árinu 2020 og meðal annars búið í öruggu húsnæði á vegum yfirvalda. Verndin verður aftur­kölluð 10. október.

Þrátt fyrir að nýlegir atburðir hafi beint kast­ljósinu að honum á ný hafa yfirvöld nú metið áhættuna sem steðjar að honum litla. Honum hefur verið ráðlagt að halda sig frá samfélags­miðlum, hafa ekki samband við fjöl­skyldu sína og forðast fjölmenna staði.

Í yfir­lýsingu á föstudag kröfðust lögmenn hans þess að ákvörðunin yrði aftur­kölluð. Þeir kölluðu hana „skammarlegar aðgerðir“ og líktu henni jafnvel við „hryðju­verk ríkisins“.

„Staða hans er nú orðin afar alvarleg. Hótanirnar gegn honum eru ekki aðeins fræðilegar; ráðist var á hann í Lissabon í apríl síðastliðnum,“ segir í yfir­lýsingunni.

„Uppljóstranir hans vörðuðu áhrifa­mikið fólk með gríðarleg fjárráð og mörg þeirra mála sem þær leiddu af sér eru enn til meðferðar. Það sést meðal annars á niður­stöðu sem óháð nefnd ensku úrvals­deildarinnar kvað upp fyrir örfáum dögum vegna Manchester City.

Með því að vera skyndi­lega sviptur vernduðu húsnæði sínu og skilinn eftir í afar ótryggri stöðu er Rui Pinto nú berskjaldaðri en nokkru sinni frá árinu 2020.“

Lögmenn Pinto segja að honum hafi borist lífláts­hótanir eftir að hann lagði mikið í sölurnar til að afhjúpa misferli á bak við tjöldin í fótbolta­elítunni. Hann kallar sig uppljóstrara en hefur jafnframt verið dæmdur fyrir tölvu­árásir.

Í september 2023 var Pinto, sem áður stundaði sagn­fræðinám í Porto, dæmdur í fjögurra ára skilorðs­bundið fangelsi. Hann var fundinn sekur um tilraun til fjár­kúgunar, ólöglegan aðgang að gögnum og brot á friðhelgi bréfa­skipta. Málið tengdist leka gagna frá Doyen Sports, fjár­festingar­sjóði og umboðs­skrifstofu.

Pinto hafði áður verið þekktur undir dulnefninu „John“, áður en raun­verulegt nafn hans kom í ljós. Hann hafði brotist inn í tölvu­kerfi Doyen Sports og lekið fjölda skjala sem vöktu heims­athygli.

Hann var fram­seldur frá Ungverja­landi til Portúgals í mars 2019 til að svara til saka. Pinto hafði þá búið í höfuð­borginni Búdapest. Framsalið átti sér stað aðeins nokkrum mánuðum eftir að fyrstu ásakanirnar á hendur Manchester City komu fram.

Í nóvember 2018 birti þýska tímaritið Der Spiegel fréttir byggðar á gögnum sem Pinto hafði stolið. Þar var því haldið fram að Manchester City hefði brotið fjárhags­reglur til að ná forskoti á keppinauta sína. Þessar afhjúpanir leiddu fyrst til ákæru UEFA á hendur félaginu og síðar til málsins hjá ensku úrvals­deildinni, en niður­staða þess hefur nú loks verið kynnt.

UEFA bannaði Manchester City upphaf­lega þátttöku í evrópskum keppnum í tvö ár. Banninu var síðar hnekkt eftir áfrýjun til Alþjóða­íþrótta­dómstólsins (CAS).

Í máli ensku úrvals­deildarinnar voru meðal annars notaðir tölvu­póstar starfs­manna Manchester City sem Pinto hafði komist yfir með tölvu­árásum og félagið hafði ekki afhent deildinni.

Uppljóstranir Pinto áttu þátt í því að enska úrvals­deildin gat gengið mun lengra í ásökunum sínum en UEFA hafði gert. Alls hafa 114 ásakanir verið stað­festar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs