Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Lúðvík prins stal senunni í árlegri jólagöngu konungsfjölskyldunnar – Myndir

Karl III og Kamilla drottning
Karl III og Kamilla drottn­ing

Lúðvík prins stal senunni í árlegri jólagöngu konungs­fjöl­skyldunnar bresku.

E News! segir frá jólagöngu sem breska konungs­fjölskyldan framkvæmir ár hvert fyrir framan fjöldi aðdáanda, einhverra hluta vegna. Þetta árið var það litli Lúðvík prins sem stal senunni.

Gangan var sú allra fyrsta sem hinn fjögurra ára gamli Lúðvík fór í með foreldrum sínum, Kate Middleton og Vilhjálmi prins, ásamt systkinum sínum, Georgi prins og Karlottu prinsessu. Gönguna fer breska konungs­fjölskyldan í á jóladag ár hvert við sveita­setrið sitt við Sand­ringham, en endar hún í jólamessu.

Vil­hjálmur prins og fjöl­skylda

Lúðvík litli var klæddur í dökkbláan jakka, stuttbuxum og hnéháum sokkum. Leiddi prinsinn litli móður sína þar sem þau gengu í átt að jóla­messunni. Á meðan krónprinsinn Vilhjálmur heilsaði almenningi var Lúðvík litli myndaður þar sem hann togaði móður sína áfram í átt að kirkju hinnar heilögu Maríu Magdalenu.

Lúðvík var greini­lega spenntur að mæta í mess­una.

En Lúðvík var ekki sá eini sem þótti flottur í tauinu. Vilhjálmur prins og sonur hans Georg, níu ára, voru flottir í dökkbláum fötum og mæðgurnar Kate og hin sjö ára Karlotta vöktu athygli en Kate var í ólívu­grænum jakka og Karlotta í trönu­berjarauðum jakka.

Agalega lekk­ert öll­sömul
Krúttið hún Karlotta

Er þetta í fyrsta sinn síðan 2019 sem gangan er farin en hún féll niður síðustu tvö ár vegna einhvers sem fáir nenna að tala um. Fremst í flokki göngunnar gengu konungs­hjónin, Karl III og drottning hans, Kamilla.

Karl III og Kamilla drottn­ing fremst í flokki

Gangan var sannarlega fjölskyldu­ganga því þar mætti meðal annarra Beta Dís prinsessa ásamt eigin­manni sínum Edoardo Mapelli Mozzi og stjúpsyni hennar, Christopher Woolf (ef hann væri konungborinn væri nafn hans Kristófer Úlfur). Evgenía (áður ranglega kölluð Gína hjá Mannlífi), systir Betu Dísar gekk við hlið eigin­manns síns, Jack Brooksbank. Börn þeirra systra, hin 15 mánaða gamla Sanna og hinn 10 mánaða gamli Ágúst, voru sennilega of ung fyrir þessa uppákomu. Þá mættu einnig Andrés prins, Sara, dóttir Önnu prinsessu og Pétur bróðir hennar.

Beta Dís og partur af fjöl­skyldu hennar
Evgenía og eig­in­mað­ur­inn

Var þetta fyrsta ganga fjöl­skyldunnar án Elísabetar drottningar sem lést í september aðeins 96 ára að aldri. Samkvæmt E News! var nærvera hennar áþreyfanleg og mun ávalt vera.

Andrés prins var … tja, á staðnum.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt