Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Segja barnamálaráðherra hafa vitað af ofbeldinu: „Faðir neitaði að leyfa henni að ná í eigur sínar“

Í gær birtu samtökin Líf án ofbeldis færslu, þar sem farið er yfir atburðarás í tengslum við mál, þar sem barn var fjarlægt af lögreglu og fulltrúa sýslu­manns á Barna­spítalanum í síðustu viku. Barnið er sagt hafa verið í lyfjagjöf á spítalanum, þegar það var fjarlægt í þeim tilgangi að fram­fylgja dóms­úrskurði um lögheimili barnsins hjá föður. Barninu var að sögn komið fyrir hjá honum. Móðir barnsins og eldri bróðir þess hafa sakað föðurinn um ofbeldi, meðal annars í viðtölum í hlaðvarps­þættinum Eigin konur, sjá hér: Helga Sif og Gabrí­ela Bryn­dís og Pat­rek­ur.

Í færslunni segja samtökin að sitjandi barnamála­ráðherra, Ásmundur Einar Daðason, hafi verið nágranni fjöl­skyldunnar og vitað af meintu ofbeldi, áður en móðirin yfirgaf föðurinn með börnin meðferðis.

„Þegar móðir barnsins sem tekið var með valdi á Barna­spítalanum, Helga Sif, yfirgaf föður barnsins, hafði hún eingungis meðferðis lítið af fötum fyrir sig og börnin. Faðir neitaði að leyfa henni að ná í eigur sínar nema hún kæmi ein og hann væri á staðnum,“ segir í færslunni.

„Móðir og börn fengu því ekki eigur sínar mánuðum saman, en nágranni þeirra, Ásmundur Einar Daðason, sitjandi barnamála­ráðherra, sem bjó í næsta húsi og vissi af ofbeldinu, hringdi í frænku Helgu Sifjar til að láta hana vita að faðirinn væri með flutningabíl hjá húsinu að flytja eigur þeirra á annan stað.“

Ásmundur Einar Daðason

Segja móður hafa sótt eigur með lögreglufylgd

Samtökin segja mennta- og barnamála­ráðuneytið hafa haft vitneskju um málið áður en ráðist var í aðgerðirnar á Land­spítala. Ekki hafi þó fengist viðbrögð frá ráðuneytinu vegna þeirra.

„Bjarkar­hlíð aðstoðaði Helgu Sif að sækja eigur þeirra, og óskaði eftir lögreglu­fylgd í Borgarnesi. Lögreglan í Borgarnesi, sem faðir hefur sterk tengsl við vegna sameiginlegs áhuga á vopnum, hafnaði beiðninni um aðstoð, svo úr varð að lögreglan í Reykjavík keyrði alla leið í Borgarnes og fór inn á heimilið ásamt Helgu Sif og starfs­fólki Bjarkar­hlíðar. Flestar eigur þeirra voru þá horfnar, en maðurinn átti erfitt með að láta Helgu Sif í friði og þurfti lögregla ítrekað að færa hann frá. Álagið var svo mikið að hún þurfti tvisvar að fara inn á klósett og kasta upp meðan á þessu stóð.“

Færslunni fylgir mynd sem sögð er af húsgögnum stjúpsonar mannsins, sem er sami drengur og hefur sakað manninn um ofbeldi, bæði gegn sér og móður sinni. Faðirinn er sagður hafa sett húsgögnin út á stétt.

„Búið var að rústa þeim. Einnig fylgdi með kassi með fötum barnanna í bland við glerbrot.“

Sagði allra skilyrða gætt í aðgerðunum

Þegar athygli hafði verið vakin á flutningum barnsins á Barna­spítala á samfélags­miðlum og málið komið í fréttir, sagði Sigríður Kristins­dóttir, sýslu­maður á höfuð­borgar­svæðinu, í samtali við Frétta­blaðið að verið væri að fram­fylgja úrskurði dómstóla og að allra skilyrða væri gætt.

„Við erum með verk­lags­regl­ur um það hvern­ig skal far­ið þeg­ar svon­a mál koma á okk­ar borð og það er hald­in fund­ur með barn­a­vernd­ar­nefnd og lög­regl­u og svo far­ið á stað­inn og ekk­ert gert sem ekki sam­ræm­ist því sem á að gera þarn­a,“ sagði Sig­ríður.

Í færslu Líf án ofbeldis vegna málsins í síðustu viku sagði meðal annars:

„Með aðgerðinni ætla yfirvöld að knýja fram úrskurð um lögheimili barns hjá föður gegn vilja barnsins. Rökstuddur grunur er um lang­varandi andlegt og líkamlegt ofbeldi föðurins gagnvart börnunum og móður þeirra. Framkvæmd aðfarar í andstöðu við vilja barnsins er án undan­tekningar til þess fallin að skapa gríðarlegt tilfinningalegt álag fyrir barnið sem er langveikt og hefur ávallt reitt sig alfarið á umönnun móður sinnar. Mikil hætta er á að barnið hljóti óbætanlegan skaða af.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá