Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Jóhannes þjóðvegakóngur stálheppinn á aðventunni: Fékk óvænt nýtt hné úr stáli og plasti

Konungur þjóð­vegarins, Jóhannes Guðnason, datt í lukku­pottinn í fyrradag þegar honum áskotnaðist nýtt hné. Hann tilkynnti um þessa stál­heppni sína á Facebook og lýsti því að hann hefði „komist óvænt í hnéskipti þann 19.12.2022, klukkan.14.40″.

Jóhannes, sem er fæddur árið 1957, tók tilboðinu, umsvifa­laust og er nú kominn með bæði plast og stál þar sem gamli, slitni hnjá­liðurinn var áður.

„Svo vil ég þakka öllu því duglega og yndislega og fórnvísa starfs­fólki Land­spítala Fossvogi, fyrir frábæran og yndis­legan sólahring,“ segir hann.

Jóhannes er þekktur sem Jóhannes á Fóður­bílnum en söðlaði seinna um og gerðist bílstjóri hjá Olíu­dreifingu. Hann var lengi vel fasta­gestur í útvarps­þáttum og einkum þekktur fyrir smitandi hlátur sinn sem liðaðist um öldur ljós­vakans. Þá vakti sérstaka athygli sú yfir­lýsing hans að nýji Scania-bíllinn hans væri svo magnaður að hann þyrfti ekki Viagra undir stýri.

Viðtalið í Vinnu­véla­blaði DV vakti mikla athygli.

„Takk fyrir, elskurnar mínar. Nú tekur við smá erfiður tími bæði fyrir Jóhannes og svo mest fyrir elsku Sirrý mína,“ skrifa hann af sjúkra­beði sínum þar sem nýr hnjáliður aðlagast því sem eftir stendur af fætinum.

Jóhannes þjóðvega­kóngur er kominn heim með nýja hnjá­liðinn sinn, umvafinn kærleika konu sinnar. Viðbúið er að innan tveggja mánaða verði hann farinn að skokka um sem lamb að vori.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt