Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Dagskrárgerðamaður birti óskalista yfir hjásvæfur: „Eins og gott vín verður hún betri með aldrinum“

Myndin er samsett
Myndin er sam­sett

Upptalning kvenfólks, lýsingar á fasi þeirra, útliti og þokka auk mynd- og nafna­birting á kven­fólkinu undir yfir­skriftinni: „TÍU KONUR SEM MIG LANGAR AÐ SOFA HJÁ“ Í Helgar­póstinum 11. maí 1995 var rætt við Hjört Howser, dagskrá­gerðarmann. Var umfjöllunin um það bil hálf síða og var hún upptalning á tíu konum sem Hjört langaði að sofa hjá. Hjörtur taldi upp konurnar frá einum og upp í tíu og gaf útskýringu á hvers vegna konan fékk téð pláss á listanum hans. Auk fullra nafna voru myndir birtar af andlitum kvennanna og voru enni kvennanna merkt með rauðum tölustaf í samræmi við sæti þeirra á listanum.

„Hjörtur Howser dagskrár­gerðarmaður kvað „hjásof“ vera hið mesta prívatmál en ákvað að láta skeika sköpum og klykkti út með því að fyrir hverja konu sem útvalin yrði til upptalningarinnar, væru þrjár aðrar undan­skildar. Vildi Hjörtur biðja þær konur afsökunar sem ekki urðu fyrir valinu en nefndi þessar til sögunnar.“

Númer eitt, tvö og þrjú á lista Hjartar var Hanna Valdís. Líkum má leiða að umrædd kona hafi verið kærasta Hjartar.

„HANNA VALDÍS. Hún er stóra ástin í lífi mínu og ég verð eiginlega að a setja hana í fyrsta, annað og þriðja sæti vegna þess að hún á hug minn allan. Allar konur sem á vegi mínum verða þurfa þess vegna að þola samanburð við hana.“

Í fjórða sæti var Sigríður Arnar­dóttir sem er flestum land­mönnum kunn sem Sirrý.

„SIGRÍÐUR ARNARDÓTTIR, dagskrár­gerðarmaður og þula. Hún er einstakt augnayndi en ég er hræddur um að hann þarna leikari, kallinn hennar, yrði ekki par hrifinn.“

Fimmta sætið hlaut Unnur Steinsson sem árið 1983 hlaut titilinn fegurðar­drottning Íslands. Hjörtur líkir Unni við vín og segir hana batna með árunum:

„UNNUR STEINS hefur alltaf verið flottasta fegurðar­drottning Íslands. Og eins og gott vín verður hún betri með aldrinum.“

Sjötta konan á listanum sem Hirti langaði að sænga var:

„INGRID JÓNSDÓTTIR, leikkona. Hef aldrei séð jafn mikinn lífsþrótt og lífsgleði í hreyfingum og fasi hjá nokkurri konu.“

Sjöunda sætið skipaði söng- og tónlistar­konan Ellen Kristjáns­dóttir.

„ELLEN KRISTJÁNS. Hef alltaf verið skotinn í henni. (Sorry, Eyþór!!)“

Áttunda sæti listans hlutu hvorki meira né minna en allar stelpurnar á Sólon Íslandus, en samkvæmt útskýringunni sem fylgdi áttu þær allar eitt sameiginlegt:

„AllAR STELPURNAR á Sólon Íslandus, því þær gera svo gott Cappuchino“

Í níunda sætinu var Siv Friðleifs­dóttir sem sat á þingi fyrir Framsóknar­flokkinn árið 1995.

„SIV FRIÐLEIFSDÓTTIR, kodda­hjalið gæti þá verið um sjávar­útvegs­stefnuna og afstöðu lopa­flokksins.“

Tíunda konan sem Hjörtur lýsir löngun sinni til að sofa hjá er Bryndís Schram eignkona Jón Baldvins Hannibals­sonar:

„BRYNDÍS SCHRAM Nafnið hennar er alltaf rétt svar í Trivial Pursuit, burtséð frá spurningunni! Það segir manni nokkuð.
(10. B sæti: Prests­frúin á Kópaskeri, ef maður skyldi einhvern tímann verða veður­tepptur!)“

Mynd / Skjáskot af frétt Helg­ar­pósts­ins, tima­rit.is

Óhætt er að fullyrða að töluverð framþróun hefur átt sér stað í jafnréttis­baráttu kynjanna og alls óvíst að í dag fengi slík umfjöllun meðbyr á ritstjórnar­fundum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning