Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Brynjar veit ekki hvort hann er fáviti eða geðveikur: „Þjóðin öll glími við geðraskanir“

Brynjar Níelsson er iðinn við að tjá skoðanir sínar á fésbókar­síðu sinni og lætur þar fátt eftir sitja. Í nýjustu færslu sinni veltir hann því fyrir sér hvort hann sé fáviti eða geðveikur. Færslan er jafnframt gagnrýni á borgar­skipulags­breytingar sem framkvæmdar hafa verið af sitjandi meirihluta. Þá hafa Óttar Guðmundsson, nefndur

Geðlæknirinn

, og Egill Helgason, nefndur

Geðþekki sjónvarps­maðurinn

, nýverið stigið fram og gagnrýnt torg borgarinnar annars vegar og hjólreiða­stæði hins vegar.

„Geðlæknirinn á iðulega góða spretti í Bakþönkum Frétta­blaðsins. Geðþekki sjónvarps­maðurinn í Silfrinu hittir einnig naglann oft á höfuðið hér á fésbókinni. Geðlæknirinn benti á auð torg víðs vegar um borgina sem kostað hefur milljarða að gera og sjónvarps­maðurinn á alla hjóla­standana, sem aldrei sést hjól við. Við höfum ekki einu sinni nógu marga óreglu­menn til að manna þessi torg.“

Segir meirihlutann draumóra­menn

Brynjar ræðst því næst að kjarnanum og segir sitjandi meirihlutann raun­veruleika­firrta draumóra­menn sem annað hvort hafa dvalið of lengi í útlöndum eða trúir á hækkandi hitastig vegna loftslags­breytinga. Enda þekkir Brynjar sjálfur ekki til neinna ráðamanna í öðrum löndum sem hafa farið í jafndýrar framkvæmdir og borgar­línu á meðan nýting almennings­samganga sé ekki nema þrjú prósent.

„Svona gerist bara þegar draumóra­menn í litlum tengslum við veru­leikann stjórna heilu sveitar­félagi í langan tíma og geta hækkað gjöld og álögur eftir hentug­leika. Annað hvort hefur þetta fólk dvalið of lengi í útlöndum eða trúir því að hitinn hér á landi muni hækka mjög skart á næstu misserum vegna loftslags­breytinga. Þá veit ég ekki til þess að ráða­mönnum í öðrum löndum hafi dottið í hug að fara í framkvæmdir við borgar­línu upp á hundruð milljarða á sama tíma og nýting í strætó er 3 prósent.“

Fáviti eða geðveikur?

Að lokum veltir Brynjar því fyrir sér hvort hann sé fáviti eða hugsanlega geðveikur og bendir á, sér til rökstuðnings, að Óttar Guðmundsson, hafi tjáð að öll íslenska þjóðin glími við geðraskanir.

„Ég er kannski fáviti, eins og Bubbi vinur minn segir. Gæti líka verið geðveikur enda sýnist mér á greiningum geðlæknisins í Bakþönkum að þjóðin öll glími við geðraskanir meira og minna og hafi gert frá þjóðveldisöld.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið