Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Áhrifavaldar gagnrýndir: Ásakanir um að selja vörur frá AliExpress á margföldu verði

Líkt og fjallað var um fyrir stuttu þóttu sólgleraugu frá Moxen Eyewear nauðalík sólgleraugum sem fást á AliExpress og Alibaba. Netverjar bentu bæði á hve lík gleraugun voru og verð­muninn, en þetta er ekki í fyrsta skipti sem neytendur reka augun í slíkt hér á landi. Áhrifavaldarnir og stjörnu­parið Lína Birgitta Sigurðar­dóttir og Guðmundur Birkir Pálmason, betur þekktur sem Gummi Kíró, er fólkið á bak við Moxen Eyewear en þau sögðu rangt að vörur þeirra væru frá netverslunum vinsælu. Gleraugun sem þykja svo lík kosta nokkur hundruð krónur á vefverslun AliExpress og Alibaba, en á bilinu 7.990 til 8.990 krónur hjá Moxen Eyewear. Þrátt fyrir að parið hafi vísað ásökununum á bug, án ítarlegra skýringa, virðast netverjar enn tortryggnir.

Fjögur ár eru síðan Óli Geir var sagður selja úr frá vefversluninni Gear Best á uppsprengdu verði undir merki sínu, Nora-Watches. Þá hefur áhrifavaldurinn Tanja Ýr einnig komist í fjölmiðla vegna skart­gripa sem hún seldi undir vöru­merkinu Bossbabe. Listinn er ekki tæmandi af þeim aðilum sem sagðir eru hafa keypt vörur af AliExpress og selt þær undir sínu eigin vörumerki á allt að áttfalt hærra verði. Það hefur reynst erfitt að sannreyna hvaðan vörurnar koma í raun og er það því undir neytendum komið, hverjum skal trúa.

Mannlíf ræddi við Brynhildi Péturs­dóttur, framkvæmda­stjóra Neytenda­samtakanna, sem segir svona mál geta verið flókin og það skipti auðvitað máli hvort verið sé að stela hönnun eða ekki. „Fram­leiðanda sem fjölda­framleiðir einhverja vöru gæti verið nokk sama þótt eitthvert fyrirtæki setji límmiða á vöruna eða breyti henni og selji áfram á hærra verði,“ segir Brynhildur. Hún segir hins vegar mikilvægt að neytendur séu gagnrýnir og spyrji sig alltaf hve mikið þeir séu tilbúnir að borga fyrir vöruna eða vöru­merkið og geri verð­samanburð.

„Ef það er verið að stela hönnun geta fram­leiðendur brugðist við því, en ef fram­leiðandanum er sama, eins og gæti verið tilfellið í gler­augnamálinu, þá er lítið hægt að gera, annað en að upplýsa neytendur sem fjöl­miðlar hafa einmitt gert. Þegar um „alvöru“ vörumerki er að ræða eru fyrirtæki yfirleitt stolt af fram­leiðslunni og viljug til að upplýsa neytendur um söguna og bakgrunninn. Ef upplýsingar um vöru­merkið eru í skötulíki er rétt að spyrja spurninga. Aðspurð hvort hver sem er geti keypt tonnavís af ódýrum vörum og selt þær á uppsprengdu verði, án eftirlits, sagði Brynhildur svo vera. „Já, í rauninni. Verðlag fer að miklu leyti bara eftir því hvað við erum tilbúin að borga, frekar en hver framleiðslu­kostnaðurinn er.“ Sagði hún hátt verð í sumum tilfellum vera hluta af markaðs­setningunni. „Við höldum oft að ef eitthvað sé dýrt þá sé það vandaðra.“ Að lokum sagði Brynhildur mikilvægt að neytendur væru vel vakandi: „Neytendur eiga að spyrja spurninga.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið