Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Una var áreitt í Íran: „Það er ekki eins og hann hafi „gripið í píkuna“ á mér!“

Karlmaður elti Unu Sighvats­dóttur, sérfræðing hjá embætti Forseta Íslands, á mótor­hjóli, hindraði för hennar, dró hana að sér og hélt Unu fastri á meðan hann reyndi að kyssa hana. Þetta var í Íran haustið 2016 og hún rifjar nú upp atvikið á Facebook í ljósi logandi mótmæla í landinu, sem konur leiða slæðu­lausar.

„Mér verður enn oft hugsað til þess atviks, vegna þess að eftir öll mín solo-ferðalög síðan þá er þetta ennþá grófasta áreitni sem ég hef orðið fyrir, og kenning mín er sú að það hafi gerst vegna þess að ég var veik þetta kvöld og uppburðar­lítil. Svona predatorar leita nefnilega oft uppi fórnar­lömb sem eru viðkvæm fyrir, en um leið svo dæmigert að ég finni sökina hjá sjálfri mér, segir Una í upprifjun sinni og segir svo söguna þetta erfiða kvöld í Íran:

„Kvöld eitt í borginni Kashan í Íran varð ég fyrir því að ókunnugur maður elti mig á mótor­hjóli, hindraði för mína, dró mig að sér og hélt mér fastri meðan hann reyndi að kyssa mig. Ég hafði borðað kvöldmat á fallegum veitinga­stað sem hér sést en fékk mígreni­kast og var ekki alveg með sjálfri mér vegna flökur­leika. Kannski var ég því minna vör um mig en venjulega, ég veit það ekki. Ég æpti á hann, sleit mig lausa og hann kom sér burt þegar írönsk kona gekk fyrir hornið. Mikið var ég henni þakklát fyrir að birtast einmitt á þessum tíma­punkti.

Nú þegar ég er loksins að fara í gegnum myndirnar frá Írans­ferðinni staldra ég aðeins við þetta kvöld. Ég hef nefnilega margoft verið spurð að því hvernig hafi gengið að vera kona ein á ferð í Íran. Sem ég svara alltaf: „Ekkert mál, bara frábært, mæli með því.“ Og það er alveg satt, það er auðvelt og öruggt að ferðast um Íran, með brjóst­vitið að vopni. Ég tek áreitnina þetta kvöld aldrei með í reikninginn, né heldur smávægilegri atvik þar sem karlmenn gengu t.d. óeðlileg nálægt mér, að því er virðist í þeim eina tilgangi að strjúkast við mig þegar við mættumst. Svo rann það upp fyrir mér að ég nefni þetta aldrei af því mér finnt þetta svo lítilvægt. Varla þess vert að minnast á. Þetta var bara fyrir­sjáanleg kynferðis­áreitni sem hefði allt eins getað orðið á ferðalagi um Evrópu. Það er ekki eins og hann hafi „gripið í píkuna“ á mér!

Seinna í sumar sá ég samt aðra evrópska konu deila svipaðri reynslu í spjall­hópi um Íran hér á Facebook. Hún uppskar hörð viðbrögð, mörghundruð komment frá bæði körlum og konum, sem gagnrýndu hana fyrir að gera alla karlmenn að sökudólgum með því að vekja máls á sinni reynslu. Það væri vissulega leiðinlegt ef hún upplifði áreiti en hún hefði nú mátt búast við því. Slíkt gæti gerst í hvaða landi sem er. Skila­boðin sem hún fékk voru þau að svona væri heimurinn og konur sem ákveði að vera einar á ferð verði bara að sætta sig við það. Eins og ég gerði. Í mínum huga var þetta svo normalíserað að mér datt ekki í hug að tala um svona smávægilegt atvik. Samt var mér mjög brugðið þetta kvöld, en fór bara heim á hótel, tók migrenilyf fyrir svefninn og pældi ekki meira í því.

Ég segi þá bara frá því núna. Ekki afþví að þetta atvik sjálft sitji neitt í mér, heldur frekar að mér hafi ekki þótt vert að nefna það þegar ég er spurð. Mér fannst sjálfri að ég mætti bara búast við svona löguðu sem kona einsömul og var jafnvel hissa á að það skyldi ekki gerast oftar. Eftir á að hyggja er það þanka­gangur sem ég get ekki sætt mig við. Svona lagað breytist allavega ekki nema við hættum að samþykkja að það sé eðlilegt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning