Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Halldóra vill afglæpavæða neysluskammta: „Fíkn er ekki eitthvað sem fólk velur sér“

Halldóra Mogensen.
Halldóra Mogensen.

Bindum enda á stríðið gegn vímu­efna­not­endum er yfir­skrift greinar sem þingmaður Pírata, Halldóra Mogensen, ritar um hið grimmilega stríð gegn vímuefnum og notendum þeirra:

„Stríðið gegn vímuefnum er í raun stríð gegn fólki, stríð gegn vímuefna­notendum. Skylda yfirvalda er að verja fólkið í landinu en ekki fara í stríð gegn þeim. Afleiðing stríðsins er sú harða refsistefna sem hefur verið við lýði á Íslandi í áratugi. Hún byggir á þeirri hugmynd að besta leiðin til að draga úr neyslu sé að banna alla vörslu og meðferð vímuefna og að refsa öllum þeim sem gerast sekir um slíkt, óháð því hvort viðkomandi sé notandi, söluaðili, fram­leiðandi eða innflytjandi.“

Hún bendir einnig á að „samhliða hörðum refsingum hefur miklum hræðslu­áróðri um vímuefni og neyslu þeirra verið beitt. Enn þann dag í dag eru vímuefna­notendur uppmálaðir í fjöl­miðlum sem stór­hættulegir samfélaginu.

Síðustu ár hafa viðhorfin þó blessunar­lega verið að breytast. Við erum byrjuð að tala um fíkni­vanda á yfirvegaðari og ígrundaðri hátt og hugtakið „skaða­minnkun“ hefur rutt sér rúms í almennri umræðu.“

Halldóra færir í tal að „staðreyndirnar um bann- og refsistefnuna mála ekki mjög fagra mynd; í skugga stefnunnar hefur neysla vímuefna aukist jafnt og þétt, og vanda­málum tengt neyslunni hefur fjölgað gríðar­lega.

Það ætti að vera öllum ljóst að núverandi stefna, sem gengur út á að banna vörslu og neyslu vímuefna, er í besta falli gagnslaus og í versta falli skaðleg. Fíkn er nefnilega ekki eitthvað sem fólk velur sér. Fíkn er ekki siðferðis- eða skap­brestur, og það er ekki heldur afleiðing slæms innrætis eða vilja­leysis – fíkn er ekki hægt að lagfæra með refsingum. Þvert á móti er fíkn viðbragð við mannlegri þjáningu. Það er í eðli okkar allra að flýja þjáningu. Þegar okkur verkjar fáum við okkur verkjalyf – og okkur þykir það sjálfsagt. En þegar manneskja þjáist af andlegum sársauka sökum áfalla sem aldrei hefur fengist aðstoð við og sækist í verkjalyf sem henni hefur ekki verið ávísað þykir okkur sjálfsagt að refsa henni með því að taka af henni lyfin og sekta eða mögulega fangelsa hana í stað þess að hjálpa þessari manneskju, hlúa að henni og veita henni sjálfsagða heilbrigðis­þjónustu.“

Halldóra segir að „samfélagið ætlar að „aðstoða“ þessa manneskju með því að gera hana að glæpa­manni, jaðar­setja hana, telja henni trú um að hún sé biluð. Henni er meinaður aðgangur að því sem hún þarf mest á að halda; kærleik, hlýju, skilning, – hún þarfnast hópsins síns og við útskúfum hana. Afglæpa­væðing sem skaða­minnkunar­úrræði Það er kominn tími til þess að við bindum enda á refsistefnuna – og þess vegna er ég að leggja fram frumvarp um afglæpa­væðingu neyslu­skammta vímuefna.“

Hún ljær máls á því að „frum­varpið er einfalt. Innflutningur, útflutningur, kaup, sala og fram­leiðsla vímuefna verður enn óheimil með lögum – en varsla efna innan skilgreindra marka verður gerð refsilaus.

Ef frum­varpið nær fram að ganga getum við því strax hætt að refsa fólki fyrir það eitt að vera með á sér vímuefni til eigin nota. Því það er alveg deginum ljósara – að það er nákvæmlega engin aðstoð og engin forvörn falin í því að jaðar­setja, fangelsa, sekta eða taka efnin af fólki, og þá skiptir engu máli hvort um er að ræða einstakling með fíkni­vanda eða ekki.“

Halldóra segir að lokum að „þegar við hættum loksins að heyja stríð gegn jaðar­setta fólkinu í samfélaginu okkar þá getum við sett orkuna okkar og fjármagn í að draga úr þjáningu, að aðstoða fólk við að vinna úr áföllum og græða sár. Byggjum upp meðferðar­úrræði sem grundvallast á því að vinna úr áföllum og bjóða upp á lausnir sem leysa líkamlega, andlega- og félags­lega vandann sem skapar fíknina. Það er þannig sem við náum árangri.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning