Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Ólafsfjarðarmálið: Lögregla sinnti ekki útkalli vegna átaka á heimili Tómasar degi fyrir morðið

Fram kemur á frétta­miðlinum DV að samkvæmt áreiðanlegum heimildum miðilsins úr fleiri en einni átt hafði verið haft samband við lögreglu vegna átaka á heimili Tómasar Waagfjörð heitins í Ólafs­firði, sunnu­daginn 2. október.

Kemur og fram að lögregla sinnti ekki því útkalli; og segja nokkrir íbúar á Ólafs­firði við DV að þetta minni á Barða­vogsmálið; að því leytinu til að tilkynningu í aðdrag­anda voða­atburðar hafi ekki verið sinnt nógu vel af lögreglu.

Í málinu í Barðavogi var þess óskað að hinn grunaði í málinu yrði fjar­lægður vegna ofbeldis­hegðunar; við því var ekki brugðist.

En í Ólafs­fjarðar­málinu snerist tilkynningin um meint framferði þolandans í málinu, Tómasar, en aðfara­nótt mánudags lét hann lífið í átökum sem urðu í íbúð í miðbæ Ólafs­fjarðar; deginum eftir að hringt hafði verið í lögreglu og varað við meintu ofbeldis­fullu framferði hans.

Segir DV að það hafi ennfremur heimildir fyrir því að maður um tvítugt og stúlka á nítjánda ári hafi komið á vettvanginn, um tuttugu mínútum á undan lögreglunni og sjúkra­liðinu.

Eiginkona Tómasar, sem nú situr í gæslu­varðhaldi vegna rann­sóknar málsins, gerði þá vart við sig; óskaði hjálpar. Ungi maðurinn hringdi í 112, sem hafði þá þegar upplýsingar um hnífs­tungu í Ólafs­firði; var sjúkralið og lögregla á leiðinni.

Segir í frétt DV að vettvangur hafi verið blóðugur; lífgunar­tilraunir á Tómasi voru hafnar áður en sjúkralið og lögregla kom á vettvang; en þær dugðu því miður ekki.

Tómas hafði verið stunginn í magann með áhaldi; að öllum líkindum var eldhús­hnífi.

Einnig segir að maður sem situr í gæslu­varðhaldi vegna málsins – vinur eiginkonu Tómasar – var með stungusár á fæti; aukinheldur – samkvæmt heimildum DV – kom vitni á vettvang glæpsins á undan sjúkra­liði og lögreglu; gerði að sárum mannsins.

Konurnar tvær, húsráð­andi og eiginkona Tómasar, voru ómeiddar, en nánast viti sínu fjær á blóðugum vettvanginum.

Segir DV að fyrir liggi að lögregla og sjúkralið höfðu ekki upplýsingar um heimilis­fangið þar sem atburðurinn átti sér stað – fyrir utan að atvikið væri á Ólafs­firði – fyrr en eftir símtal vitnis í 112.

Þá voru lögreglu­bílar og sjúkra­bílar á leiðinni til Ólafs­fjarðar.

Mannlíf mun áfram halda að fjalla um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning