Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Fyrsta vopnaða rán Íslandssögunnar – Ógnaði starfsmönnum ÁTVR með afsagaðri haglabyssu

Leigubíllinn sem notaður var við ránið
Leigu­bíll­inn sem not­aður var við ránið Mynd: Trausti Hafsteinsson

Á nöpru febrúar­kvöldi árið 1984 var framið tvöfalt vopnað rán í Reykjavík. Fyrst otaði maðurinn afsagaðri hagla­byssu að leigu­bílstjóra og tók bíl hans og keyrði að Áfengis­verslun ríkisins þar sem hann rændi tvo starfs­menn sem voru að fara með sölu dagsins í bankahólf. Komst ræninginn undan með tæpar 2 milljónir króna. Ekki náði hann þó að flýja rétt­vísina lengi.

Tíminn sagði frá ráninu daginn eftir:

Tvöfalt vopnað rán í Reykjavík í gærkveldi:

RÆNINGINN KOMST UNDAN MEÐ TÆPAR 2 MILLJÓNIR — Ógnaði starfs­mönnum ÁTVR og leigubifreidastjóra með hlaupsagadri hagla­byssu — Leitin að honum hafði ekki borið árangur um miðja nótt.

Vopnað rán var framið fyrir utan Lands­bankann að Laugavegi 77 upp úr kl. 20 í gærkveldi, og tókst ræningjanum að komast á brott í stolinni bifreið með 1.8 milljón krónur. Maður, vopnaður hagla­byssu, sem hlaupið hafði verið stytt ógnaði fyrst leigu­bílstjóra af Hreyfli suður í Naut­hólsvík og neyddi hann út úr bíl hans, um kl. 19.30. Maðurinn er síðan talinn hafa ekið að útibúi Lands­bankans að Laugavegi 77, þar sem hann náði að ræna 1.8 milljón króna af tveimur starfs­mönnum áfengis­útsölunnar við Lindar­götu, sem voru við bankann í þeim erinda­gjörðum að setja verslun dagsins í næturhólf bankans.

Maðurinn ógnaði starfs­mönnunum með hagla­byssunni, sem hann er talinn hafa stolið í innbroti í verslunina Vesturröst í fyrrinótt. Skaut hann að bifreið þeirra og komst síðan á brott í stolnu leigu­bifreiðinni.

Tíminn hefur aflað sér frétta um að leigu­bílstjórinn, Örn Reynir Pétursson, bílstjóri á Hreyfli hafi ekið manninum frá Hótel Sögu og suður í Naut­hólsvík, á afvikinn stað. Þar hafi hann rekið byssu­hlaup í hnakka Arnar Reynis, neytt hann út úr bifreiðinni og ekið á brott. Örn Reynir hafi hlaupið að Loftleiða­hótelinu, og látið lögregluna vita þaðan um atburðinn. Skömmu síðar, eða laust upp úr kl. 20 var tilkynnt um ránið að

Laugavegi 77, af tveimur starfs: mönnum ÁTVR við Lindar­götu. Starfs­mennirnir, þeir Pálmi Einarsson og Konráð Konráðsson höfðu að vanda lagt bifreið sínni á gangstéttina fyrir framan bankann, og var það Konráð sem steig út úr bifreiðinni með peningana, 1.8 milljón krónur. Í þann mund sem Konráð steig út var skotið af hagla­byssu í bretti og dekk bílsins, og sprakk dekkið. Konráð hugðist verjast skot­manninum, sem þá sló til hans með byssunni og annað skot reið af við það. Konráð gafst upp við svo búið og ræninginn náði peninga­pokanum og komst á brott í stolnu leigu­bifreiðinni. Ræninginn reyndi m.a. að gera sig torkennilegan með því að mála á sig skegg.

Allt lögreglulið borgarinnar var kallað út til leitar að ræningjanum, um leið og tilkynnt hafði verið um ránið, og var Víkinga­sveit lögreglunnar í viðbragðs­stöðu í gærkveldi. Klukku­stund eftir að ránið hafði verið tilkynnt, fannst bifreiðin yfirgefin í porti bak við Brautar­holt 2, og voru fjármunir og hagla­byssa einnig á brott. Lögreglan fékk mann með sporhund til liðs við sig, og leitaði hann ásamt lögreglu­sveitum á svæðinu í gærkveldi, en án árangurs.

Mennirnir þrír sem ráðist var á gáfu skýrslu hjá Rannsóknar­lögreglunni í gærkveldi, og reyndu þeir einnig að bera kennsl á árásar­manninum í mynda­safni lögreglunnar, en sú leit mun ekki hafa borið árangur. Þegar blaðið fór í prentun í nótt, hafði enn ekkert spurst til ræningjans. –

Lög­reglan yfir­heyrir Konráð Kon­ráðs­son við upp­haf rann­sóknar

Þann 28. febrúar sama ár, greindi DV frá því að fyrr­verandi starfs­maður ÁTVR hafi komið lögreglu á sporið. Var hann málkunnugur ræningjanum sem hafði sýnt mikinn áhuga á peninga­flutningum ÁTVR og spurt mikið út í þá. Þegar maðurinn sá frétt um ránið í blöðunum hafði hann undireins samband við lögreglu og greindi þeim frá samskiptum sínum við ræningjann. Húsleit var gerð heima hjá manninum, William James Scobie sem var íslenskur ríkis­borgari en þar fannst helmingur þýfisins. Kom einnig í ljós að faðir Williams hafi reynt að koma honum úr landi. Þá átti William sér vitorðs­mann innan Lands­bankans, hinn 19 ára Ingvar Heiðar Þórðarson.

Dæmt var í máli þremenninganna seinna sama ár en blaðið NT sagði svo frá dóminum:

Sakadómur í ATVR-ráninu: Scobie dæmdur í 5 ár -Ingvar í 18 mánuði

■ Dómur í fyrsta vopnaða ráni á Íslandi er fallinn. Einn sakborninga var dæmdur til 5 ára fangelsis­vistar, annar til 18 mánaða og sá þriðji til 6 mánaða skilorðs­bundið. Búast má við að málinu verði áfrýjað til Hæstaréttar.

■ William James Scobie, aðal­sakborningur í Lands­bankamálinu svokallaða, var í gær dæmdur í Sakadómi Reykja­víkur til 5 ára fangelsis­vistar. Hjálpar­maður hans við ránið, Ingvar Heiðar Þórðarson, var dæmdur til 18 mánaða fangelsis­vistar og faðir William, Griffith Scobie, til 6 mánaða skilorðs­bundinnar fangelsis­vistunar.

Þá voru þeir félagar dæmdir til að greiða allan sakar­kostnað og til að endur­greiða það sem á vantaði á ránsféð þegar lögreglan fann það. Eins og kunnugt er rændi William tvo starfs­menn ÁTVR við Lands­bankann í vetur. Notaði hann hagla­byssu við ránið og naut aðstoðar Ingvars. Griffith Scobie, faðir William, var ekki viðriðinn ránið sjálft en reyndi að aðstoða William við að komast úr landi.

Dóminn kváðu upp saka­dómararnir Ármann Kristinsson, Jón Erlendsson og Jón Ólafsson. William var úrskurðaður í gæslu­varðhald til 1. október. Samkvæmt lögum er skylt að áfrýja máli Williams til Hæstaréttar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið