Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Þyrla sótti sjúkling um borð í skemmtiferðaskipi – Sjáðu magnað myndband af björguninni!

Sjúklingurinn hífður upp.
Sjúk­ling­ur­inn hífður upp. Mynd: lhg.is

Landhelgis­gæslunni barst hjálpar­beiðni síðdegis í fyrradag á haf út vegna bráðra veikinda um borð í skemmtiferða­skipi.

Áhöfnin á TF-GRO var kölluð út á fimmta tímanum í fyrradag, samkvæmt Landhelgis­gæslunni, vegna veikinda um borð í farþega­skipinu Ambience sem statt var um 160 sjómílur út af Garðskaga.

Er þyrlan nálgaðist skipið fékk skip­stjóri þess fyrirmæli um stjórntök og hraða vegna hífingarinnar frá skipinu. Var skipið beðið um að beygja upp í vind og hægja ferðina niður í sex hnúta ferð.

Læknir þyrlunnar fór um borð í skipið ásamt sigmanni, við bakborðs­horn þess eftir að tengilínu var slakað niður. Þegar í skipið var komið var hugað að sjúklingnum og hann undir­búinn undir hífingu.

Þá segir á heimasíðu Gæslunnar að þegar búið var að búa um sjúklinginn hafi verið tekið á móti króknum. Læknirinn hafi farið fyrst upp, því næst sjúklingurinn í börunum og síðastur upp fór sigmaður þyrlunnar með farangur sjúklingsins.

Þegar hífingunum lauk var áhöfni skipsins þakkað fyrir samstarfið og hélt þyrlan til Reykja­víkur. Hafði skip­stjóri skemmtiferða­skipsins sérstak­lega orð á því að hversu hratt verkefnið gekk fyrir sig og þakkaði þyrlu­sveit Gæslunnar innilega fyrir snögg viðbrögð.

Meðfylgjandi myndband sýnir hvernig verkefnið gekk fyrir sig í fyrradag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning