Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Ragnar Þór: „Og án nokkurs vafa glæpsamlegt“

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR.

Agnieszka Ewa Ziólkowska, um tíma starf­andi for­maður Efl­ing­ar, fékk aðgang í upphafi árs að tölvu­póst­hólfum Sól­veigar Önnu Jóns­dótt­ur, sem hafði hætt sem for­maður stétt­ar­fé­lags­ins í nóv­em­ber 2021, og Við­ars Þor­steins­son­ar, sem hafði hætt sem fram­kvæmda­stjóri Efl­ingar á sama tíma. Kjarninn greindi frá þessu í gær.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir þetta grafal­varlegt og án nokkurs vafa lögbrot. Hann segist þekkja það sjálfur í eigin starfi hve mikið af viðkvæmum upplýsingum megi finna í tölvu­pósthólfi formanns verkalýðs­félags. Ragnar skrifar á Facebook:

„Mjög svo sláandi lesning og ég vona að fólk geri sér grein fyrir alvarleika málsins.

Ég fer fyrir stéttar­félagi sem telur um 40 þúsund félaga og hef samhliða því verið iðinn við að skrifa um spillingu og sjálftöku í íslensku samfélagi. Ég fæ gríðarlegt magn tölvu­pósta þar sem fólk deilir mjög persónu­legum hlutum, viðkvæmri stöðu sinni eða upplýsingum sem það telur eiga erindi til almennings án þess að þora að bera það á torg sjálft af hræðslu við afleiðingar sem það kann að hafa.

Til mín hafa leitað einstaklingar með upplýsingar og gögn sem hafa orðið grunnurinn af stórum og fjölmörgum spillingar­málum sem ég hef skrifað um. Gögn sem lúta að vafasamri eða brotlegri háttsemi einstaklinga eða fyrir­tækja. Sumt af þessu hef ég skrifað um en öðru komið í farveg lögreglu eða eftirlits­aðila. Undan­tekningar­laust er beðið um algjöran trúnað í slíkum samskiptum.

Þann trúnað hef ég haldið og mun ávalt halda. Þannig skapast traustið.

Við í VR fáum fjölda mála á ári hverju tengdum kröfu stjórn­enda um aðgang að tölvupóst­samskiptum starfs­manna. Um það gilda skýrar reglur, svo skýrar að ekki þarf að bolla­leggja mikið um hvað má og hvað ekki í þeim efnum og hvaða ferlum þarf að fylgja slíkum beiðnum.

Að vita til þess að óheftur aðgangur hafi verið veittur, án athugasemda, án nokkurs eftirlits og án vitneskju Sólveigar Önnu og Viðars, og í þannn tíma sem um ræðir, sem náði framyfir endurkjör hennar og þess dags sem hún tók við að nýju sem formaður Eflingar er hrikalegt.

Og án nokkurs vafa glæpsamlegt.

Reglur og lög um meðferð slíkra gagna eru alveg skýrar.

Siðferðis­lega spurningin er svo önnur því ekki hefði mér dottið í hug að kalla eftir því að fá aðgang að tölvu­póstum fyrrum formanna VR, bara af því bara, finna mögulega einhvern skít, koma höggi á viðkomandi eða til þess að finna eitthvað neikvætt um mig sjálfan. Þó svo að ég hafi átt í deilum við nokkra þeirra í gegnum tíðina þá eru þetta einfald­lega mörk sem við stígum ekki yfir.

Ég vil með þessum skrifum fullvissa alla þá sem hafa sent mér tölvu­pósta eða gögn á netfang mitt hjá félaginu að reglur VR og ferlar varðandi meðferð á tölvu­póstum starfs­manna eru með þeim hætti að óvinnandi vegur væri fyrir nýjan formann eða stjórn­endur að komast í slík gögn með þeim hætti sem lýst er í grein Kjarnans, nema með aðkomu dómstóla.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning