Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Storytel-Stefán með slóð tilkynninga um kynferðislega háttsemi

Stefán Hjör­leifs­son, fram­kvæmda­stjóri Stor­ytel á Ís­landi, lét af störf­um hjá fyr­ir­tæk­inu á Ís­landi eft­ir að þrjár kon­ur kvört­uðu und­an hátt­semi hans. Kvart­an­irn­ar sner­ust um óvið­eig­andi hátt­semi af kyn­ferð­is­leg­um toga. Stundin greinir frá.

Kvartanir vegna Stefáns hjá Storytel ná að minnsta kosti rúmt eitt og hálft ár aftur í tímann. Tilkynningarnar bárust móður­félagi Storytel í Stokk­hólmi.

Sjá einnig: Stefán stígur til hliðar hjá Storytel: „Rósa mín hefur staðið með mér eins og klettur“

Skyndilegt brott­hvarf Stefáns frá fyrir­tækinu vakti athygli nýverið. Stefán hefur gert hljóð­bóka­útgáfuna firna­sterka en sagði við starfs­lokin að hann hefði viljað breyta til og lét þannig í veðri vaka að ákvörðunin væri sín.

Storytel á Íslandi er í eigu sænska fyrir­tækisins Storytel AB sem er alþjóðlegt hljóðbóka­fyrirtæki með starfsemi í mörgum löndum. Fyrir­tækið hóf starfsemi hér á landi með látum árið 2018 og er tekju­hæsta bóka­fyrirtæki landsins.

Stefán sagðist sjálfur hafa ákveðið að hætta í starfi sínu sem land­stjóri Storytel á Íslandi. Þar hafði hann verið síðustu fimm ár. Stefán sagði frá ákvörðun sinni á Facebook og útskýrði þar hvers vegna hann ákvað að stíga til hliðar:

„Í þessari viku eru liðin fimm ár síðan ég tók við embætti Lands­stjóra Storytel á Íslandi. Fimm gefandi, spennandi, krefjandi en fyrst og fremst skemmtileg ár þar sem sköpunar­krafturinn hefur fengið að njóta sín. Ég er afar þakklátur og stoltur af því að hafa verið þátt­takandi í brautryðjenda­starfi Storytel í þeirri vegferð að gera sögur aðgengilegar enn fleira fólki en áður hefur þekkst. Hér heima og heiman.

Þau ykkar sem þekkið mig vitið líklega að ég nærist á því að skapa, umbreyta, byggja upp og koma þeim verkefnum sem ég tek mér fyrir hendur fyrir vind. Lífið býður upp á endalaus tækifæri og í sérhverju verkefni lærir maður eitthvað nýtt og kynnist nýju fólki.

Í sumar og það sem af er hausti hefur mér gefist tækifæri til að líta yfir farinn veg og íhuga næstu skref. Starf mitt krefst fullrar athygli og ég hef spurt mig hvort ég hafi enn þann eldmóð og hvata til að halda áfram á þessari spennandi vegferð eða hefur hugur minn hugsanlega leitað í átt að nýjum áskorunum?

Ég hef komist að þeirri niður­stöðu að nú er rétti tíminn til að leita á ný mið meðan ég hef þrótt til áfram­haldandi sköpunar og tel að ég geti látið gott af mér leiða á nýjum vettvangi. Ég hef þegar tilkynnt stjórn Storytel um ákvörðun mína, vitanlega í mestu vinsemd. Ég er óendanlega þakklátur yndislegu, hæfileika­ríku og drífandi starfs­fólki Storytel á Íslandi sem hefur staðið mér við hlið og alls þess stuðnings og allrar þeirrar hvatningar sem ég hef fengið frá Storytel fjöl­skyldunni um víða veröld. Allir mínir villtustu draumar hafa ræst, þar með talið að eiga þátt í eflingu bóka­geirans á Íslandi. Nú er tímabært að ný manneskja taki við keflinu.

Og hvað er þá næst? Hver veit? Akkúrat núna tekur við langþráð verkefni – að reyna loks að lækka forgjöfina á suðrænum slóðum og hlaða batteríin. Þekkjandi mína eirðar­lausu frumkvöðlasál, hef ég ákveðið að slaka aðeins á, gefa upphafi nýrra ævintýra góðan tíma, taka mér gott frí og njóta næstu mánaða með fjöl­skyldu og vinum, og þá mest með Rósu minni sem hefur staðið með mér eins og klettur í gegnum allt mitt brölt.

Nú tekur við nýr kafli en lífið er núna. Eða eins og Lennon sagði, „Life is what happens when you´re busy making other plans“.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning