Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Ótrúleg en sennileg kenning í Hollywood: Matthew McConaughey og Woody Harrelson eru hálfbræður

Þeir eru nú svolítið líkir.
Þeir eru nú svo­lítið líkir.

Hollywood-vinirnir Matthew McConaughey og Woody Harrelson gætu verið tengdari en þeir hafa hingað til haldið.

Fram kemur í frétt E News! að forn­vinirnir Matthew McConaughey og Woody Harrelson hafi nýlega komið mörgum á óvart með ótrúlegri uppljóstrun. Hún er sú að þeir séu mögulega ekki aðeins fóstbræður, heldur einnig hálf bræður. Þar til nú hefur Matthew trúað því að hann sé sonur þeirra Mary McCabe og James McConaughey en hann er fæddur árið 1969 en Woody er sonur Diane Oswald og Charles Harrons og er fæddur árið 1961. En nú veltir Matthew sem sagt fyrir sér, hvort faðir Woody, sem lést árið 2007, gæti verið faðir hans líka.

„Hvar ég byrja og hvar [Woody] endar, og hvar hann byrjar og ég endar, hefur alltaf verið eins og gruggug lína,“ sagði Matthew í hlaðvarps­þættinum

Let’s Talk Off Camera with Kelly Ripa

sem fór í loftið 11. apríl. „Og það er partur af bræðalagsást okkar, ekki satt? Börnin mín kalla hann Woody frænda. Hans krakkar kalla mig Matthew frænda. Og þú sérð myndir af okkur og fjöl­skylda mín heldur oft að myndir af honum, séu af mér. Hans fjöl­skylda heldur oft að myndir af mér, séu af honum.“

Móðir Matthew, sem er 91 árs gamall rithöfundur, kastaði sprengju í Grikk­landi fyrir nokkrum árum þegar hún sagðist hafa þekkt föður Woody en hann var dæmdur leigu­morðingi.

„Við sátum saman og vorum að tala um það hversu nánir við værum og okkar fjöl­skyldur, í Grikk­landi fyrir nokkrum árum. Og mamma var þarna og hún sagði, „Woody, ég þekkti pabba þinn“. Allir tóku eftir greinar­merkinu sem mamma setti við orðið „þekkti“. Það var gildis­hlaðið Þ-E-K-K-T-I.“

Athugasemd móðurinnar fékk fjöl­skyldurnar til að rannsaka málið frekar.

„Við fórum í það að kryfja það sem þetta „þekkti“ þýddi og fórum í smá stærðfræði­kúnstir og komumst að því að pabbi Woody var í orlofi á sama tíma og mamma og pabbi voru að skilja í annað skiptið,“ útskýrði Matthew. „Og svo eru mögulegar kvittanir og staðir í Vestur-Texas þar sem mögulega voru hittingar, eða fundir, eða svona „þekkjast“ augnablik.“

Matthew og Woody hafa ekki enn tekið DNA-próf til að komast að hinu sanna í málinu en það gæti orðið talsverð bið í það.

„Sjáðu, það er talsvert auðveldara fyrir Woody að segja „kommon, tökum DNA-próf“, því hver er áhættan fyrir hann?“ sagði Matthew. „Það er töluvert erfiðara fyrir mig því hann er að biðja mig um að taka þá áhættu á að ég segi „Bíddu aðeins, þú ert að reyna að segja mér að pabbi gæti mögulega ekki veirð pabbi minn, eftir að ég hef trúað því í 53 ár?“. Áhættan er nokkuð meiri mín megin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

„Ég er búin að fá svo margar fallegar kveðjur og sendingar“
Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Innlent

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt