Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

„Hingað til virðast stjórnvöld ekki hafa haft hugrekki í að standa að baki þessum einstaklingum“

Ó­lög­legar ætt­leiðingar, á­byrgð stjórn­valda og Ís­lands er yfirksirft greinar sem Rut Sigurðar­dóttir ritar um ættleiðingar á Íslandi, en hún er félags­ráðgjafi og fjölskyldu­fræðingur hjá Íslenskri ættleiðingu.

Byrjar svona:

„Líkt og kom fram í þættinum Leitin að upprunanum sem sýnd var nýliðna helgi, hefur Ísland og stjórn­völd hér á landi því miður verið þátt­takendur í ólöglegum ættleiðingum erlendis frá og hingað til lands.“

Bætir við:

„Sem betur fer í dag, hafa ferlar, lög og reglu­gerðir breyst og við sem samfélag ásamt Íslenskri ættleiðingu lagt kappsmál á að löglega sé staðið að ættleiðingum hingað til lands.

Breytingar á þeirri umgjörð í mála­flokknum hefur meðal annars leitt það af sér að börnin sem hingað til lands koma eru eldri en áður var. Eru í dag yngst að koma tveggja ára gömul, en meðal aldur barna er þó 3-4 ára og elstu börnin sem hafa komið undan­farin ár eru 8 ára. Vissulega hefur það í för með sér að fortíð þessara barna er fleiri áföllum stráð og áskoranir geta verið margar fyrir þá foreldra sem velja sér þessa leið að foreldra­hlutverkinu í ljósi fortíðar barnanna.“

Rut nefnir að „við getum þó engu að síður, sagt við börnin í dag og foreldra þeirra að það hafi verið tekin ákvörðun fyrir hönd barnanna, sem snéri að því að gera það sem best var fyrir barnið. Barn í dag er ekki ættleitt á milli landa nema að það sé búið að tryggja að líffræðilegt foreldri hefur ekki tök á að hugsa um barnið, nær- og stór­fjölskylda hefur einnig ekki tök á því né einhver innan uppruna­lands barnsins. Það er áfall fyrir barn að flytja landa og jafnvel heims­horna á milli og fyrir suma getur sá viðburður haft áhrif á alla ævi einstaklingsins.“

Hún segir það nær ómögulegt að sitja sig „í þau spor, að uppgötva á fullorðins­árum að sagan um uppruna minn reyndist ekki rétt. Hugrekki hennar Ásu sem kom fram í þáttunum Leitin að upprunanum og sagði okkur sögu sína, situr enn í mínum dýpstu hjarta­rótum.

En hugum að því að hún er ekki sú eina, hingað til lands komu alls 84 börn frá sama landi og Ása, sagan hennar er ekki einsdæmi, þvert á móti.“

Rut bætir þessu við:

„Hingað til virðast stjórn­völd og ráðamenn ekki hafa haft hugrekki í að standa að baki þessum einstaklingum með því að leggjast í að rannsaka hvernig var að öllum þessum málum staðið. Ég skora því á hlut­eigandi aðila að bregðast nú við með viðeigandi hætti. Bjóða þeim uppkomnu ættleiddu, sem hingað komu á þeim tíma sem ólöglegar ættleiðingar áttu sér stað og vilja skoða sín mál, fullnægjandi þjónustu, stuðning og ráðgjöf. Það þarf að leggjast í vinnu við að skoða þá starfs­hætti sem voru til staðar í heimi ættleiðinga hér á landi.“

Hún lýkur pistli sínum með þessum orðum:

„Við vitum að sum málanna byggja ekki á löglegum aðferðum og leiðum. Það hefur áhrif á sálarlíf þeirra einstaklinga sem að málinu koma. Ása orðaði þetta vel þegar hún sagði „að í sínu máli kæmi það einna verst við hana hversu illa og óheiðarlega hefði verið staðið að ættleiðingum í Sri Lanka og að hún telji að hluti ábyrgðarinnar liggi hér á landi“ Við Ásu vil ég segja; takk fyrir söguna þína, ég heyri hvað þú ert að segja og er þér hjartanlega sammála. Nú vona að ég fleiri heyri og farið verði í þá vinnu að styðja við og þjónusta hlut­eigandi aðila. .

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning