Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fluttur á sjúkrahús eftir rafhjólaslys

Sjúkrabíll á ferð
Sjúkra­bíll á ferð Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Víkingur

Lögreglan á höfuð­borgar­svæðinu hafði í nógu að snúast frá því í gærkvöldi og fram á nótt. Nokkrir ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna og lögregla hafði jafnframt afskipti af manni vegna gruns um sölu fíkniefna.

Samkvæmt dagbók lögreglu hafði hún afskipti af einstaklingi sem grunaður var um að selja fíkniefni. Hann var vistaður í fanga­geymslu í þágu rann­sóknar málsins.

Þá var tilkynnt um slys á rafhjóli. Sá sem lenti í slysinu hlaut minni­háttar áverka og var fluttur með sjúkra­bifreið til aðhlynningar.

Umferðar­eftirlit lögreglu var umfangs­mikið í gærkvöldi og nótt. Þrír ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um að hafa ekið bæði undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Einn þeirra er auk þess grunaður um önnur umferðar­lagabrot.

Fjórði ökumaðurinn var stöðvaður vegna gruns um ölvun við akstur og sá fimmti vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Sá síðarnefndi hafði áður verið sviptur ökuréttindum.

Lögregla stöðvaði einnig ökumann sem hafði aldrei öðlast ökuréttindi.

Þá barst lögreglu tilkynning um þjófnað og líkams­árás í matvöru­verslun. Ekki koma fram frekari upplýsingar í dagbók lögreglu um málsatvik, hvort einhver hafi slasast eða hvort einhver hafi verið hand­tekinn vegna málsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Úrskurðarnefnd staðfesti synjun ráðuneytisins þar sem afhending tölvupósts um lokaðan fund gæti grafið undan trausti milli ríkja.
Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag