„Ég hef lengi haft mikinn áhuga á félagsstörfum og stjórnmálum sem má segja að séu kannski mín aðaláhugamál. Samskipti við fólk sem vill láta gott af sér leiða. Nú hef ég aukin tækifæri til að hafa áhrif á hvernig innra starfið í mínum stjórnmálaflokki þróast og get fylgt eftir mínum skoðunum um það hvernig við aukum veg flokksins okkar til aukins fylgis og eftirfylgni við okkar hugsjónir. Það hefur frá fyrsta degi verið mitt uppáhaldshlutverk í stjórnmálum að fara og hitta fólk á sínum heimavelli og nú hef ég enn frekara tilefni til þess,“ segir Vilhjálmur Árnason, nýkjörinn ritari Sjálfstæðisflokksins.
Á hvað vill hann leggja áherslu?
„Ég vil leggja áherslu á aukna virkni hins almenna flokksfélaga með auknum samskiptum á milli fólksins í flokknum, auknu upplýsingaflæði frá kjörnum fulltrúum til grasrótarinnar og að skilaboðin frá grasrótinni komist skýrt til kjörnu fulltrúanna og forystunnar. Sem sagt að hinn …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir