Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Deilt um gæði og þjónustu klæðskera á Íslandi

„Fötin rifna við minnsta tilefni og eigendurnir eru dónalegir.“

Saumavél
Saumavél Mynd: Bozhin Karaivanov/Unsplash

Harðlega er deilt á Kölska í nýlegri umræðu á Reddit þar sem spurt er um reynslu fólks af klæðskerum og fyrir­tækjum sem bjóða jakkaföt eftir máli á höfuð­borgar­svæðinu. Þar koma fram nokkrar neikvæðar reynslu­sögur af fyrir­tækinu, þótt aðrir viðskipta­vinir segist hafa verið ánægðir með bæði þjónustu og gæði.

Rétt er að taka fram að þeir sem tjá sig í umræðunni koma ekki fram undir fullu nafni heldur notenda­nöfnum á Reddit. Ekki hefur verið unnt að sannreyna frásagnir þeirra og er hér því um persónulegar reynslu­sögur og full­yrðingar nafn­lausra að ræða.

Upphafs­maður umræðunnar velti fyrir sér hvar bestu gæði og þjónustu væri að finna á höfuð­borgar­svæðinu, sérstak­lega þegar kæmi að svokölluðum full-canvas jakka. Herra­garðurinn, Thomsen, Kölski, Suitup, John Tailor og Zantino voru meðal fyrir­tækja sem nefnd voru.

Ein harðasta gagnrýnin beindist að Kölska. Notandi sagðist þekkja til reynslu þriggja vina eigin­manns síns af fyrir­tækinu.

„Vinir eigin­manns míns hafa þrír verslað við Kölska og hafa slæma reynslu að láta sauma jakkaföt þarna,“ skrifaði viðkomandi og bætti við: „Fötin rifna við minnsta tilefni og eigendurnir eru dónalegir.“

Athygli vekur að 22 notendur Reddit hafa tekið undir þetta.

Einn sem tók undir gagn­rýnina skrifaði einfald­lega: „Sama hér. Mæli ekki með Kölska.“ Sá hinn sami sagðist hins vegar hafa góða reynslu af Suitup og eiga þrenn jakkaföt þaðan. Elstu fötin væru um sjö ára gömul og enn í góðu ástandi.

Fleiri neikvæðar frásagnir birtust um Kölska. Einn notandi sagðist hafa heyrt af vanda­málum tengdum afhendingu fyrir brúðkaup. „Hef heyrt fleiri en eina sögu af ónýtum brúðkaupum vegna Kölska – menn sem fengu ekki fötin sín í tæka tíð,“ skrifaði hann.

Ekki voru þó allir sammála gagn­rýninni. Notandi sem sagðist hafa verslað hjá Kölska árið 2023 lýsti allt annarri reynslu. Hann sagði þjónustuna hafa verið vingjarnlega, fötin vel saumuð og að enn sæist lítið sem ekkert á þeim. Hann gagnrýndi þó hversu langan tíma ferlið tók.

Suitup fékk einnig bæði jákvæð og neikvæð ummæli. Einn notandi sagðist hafa „bara gott að segja“ um fyrir­tækið og lýsti jakka­fötum þaðan sem þeim bestu sem hann ætti. Annar sagðist hins vegar þekkja nokkra sem hygðust hvorki versla aftur hjá Kölska né Suitup.

John Tailor fékk öllu jákvæðari umfjöllun í þræðinum. Einn notandi sagðist nota fyrir­tækið fyrir öll sín vinnuföt auk jakkafata og blazera. „Ég tel að gæðin séu mjög góð og verðið sann­gjarnt. Mæli hiklaust með honum,“ skrifaði viðkomandi.

Einstaklingur sem segist vera faglærður klæðskeri og kjóla­meistari blandaði sér jafnframt í umræðuna og benti á að mikilvægt væri að gera greinarmun á eigin­legum sérsaumi og fatnaði sem saumaður er eftir máli. Að hans sögn væru fyrir­tækin sem talin voru upp í upphaf­legu færslunni almennt ekki að sauma flíkurnar frá grunni hér á landi heldur væru þær saumaðar erlendis eftir mælingum eða mátun og síðan lagaðar eftir þörfum.

Mælti hann frekar með því að þeir sem vildu eigin­legan sérsaum leituðu beint til klæðskera og nefndi Saum­sprettuna, Klæðskera­höllina og 7íhöggi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Maðurinn ók á röngum vegarhelmingi undan lögreglu í Mosfellsbæ, stöðvaði síðan bílinn og hljóp á brott.

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum