Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

„Ekki hleypa mér inn í eldhús nema undir ströngu eftirliti“

„Ég skal glaður sjá um skreyt­ingar og að leggja á borð, en ekki hleypa mér inn í eld­hús nema undir ströngu eft­ir­liti,“ sagði söngv­ar­inn Páll Óskar rétt fyrir jól í fyrra þegar við fengum hann til að svara nokkrum jóla­spurn­ingum.

Hvenær dregur þú fyrsta jólaskrautið fram úr geymslunni?

Ég byrja á því snemma í nóv­em­ber að skreyta trén fyrir utan húsið og smám saman eykst hasar­inn! Ég tek síðan glugg­ana og allt inn­an­húss alla­vega tveim vikum fyrir jól og leyfi þessu svo að lifa út jan­úar og ljós­unum í trjánum alveg fram í mars.

Er þú mikið jólabarn?

Mér finn­ast ákveðnir töfr­arnir fel­ast í öllum árs­tíðum, hvort sem það er svartasta skamm­degið eða björt­ustu næt­urnar.

Hvaða jólalag kemur þér í jólafílinginn?

Jóla­snjór með Elly Vil­hjálms og Vil­hjálmi Vil­hjálms­syni vekur upp sterkar minn­ingar frá jólum á æsku­heim­il­inu og platan Elly og Vil­hjálmur syngja jóla­lög stendur mér ákaf­lega nærri. Upptakan á lag­inu Jóla­snjór er líka stór­merki­leg, en þetta er í fyrsta skipti sem íslenskir söngv­arar yfir­sungu sjálfa sig, þ.e.a.s. rödd­uðu eigin raddir.

Konfektmolar eða smákökur?

Konfekt­molar allan dag­inn, ég er rosa­legur Nóa Siríus aðdá­andi! Maður prófar sig stundum áfram með aðrar teg­undir en endar alltaf aftur í Nóa.

Uppáhaldsjólahefðin?

Á jóla­dag passa ég mig á því að mæta ekki í nein jóla­boð – þessum degi eyði ég á nátt­föt­unum heima hjá mér og nýt þess að kveikja á kertum og upp­lifa mín eigin jól. Ég safna gömlum kvik­myndum á super 8-filmu og veit ekk­ert betra en að rúlla í gegn ein­hverri flottri klass­ískri bíó­mynd eða lesa bók og dúlla mér heima­fyrir. Á annan í jólum tökum við alltaf risa­fjöl­skyldu­hitt­ing en ég kem úr stórri fjöl­skyldu og er yngstur af sjö systk­inum – svo þegar við sláum til og reynum öll að hitt­ast erum við komin hátt í 40 manns!

Hvað er ómissandi á aðfangadag?

Aðfanga­dagur er ekk­ert endi­lega alltaf eins hjá mér. Ég og Monika hörpu­leik­ari stund­uðum það að spila á mið­næt­ur­messu á aðfanga­dag í Frí­kirkj­unni í heil 12 ár – þarna kikk­uðu jólin inn hjá mér. Það er alltaf nóg að gera hjá mér á þessum tíma.

Hvað er í jólamatinn?

Hann er aldrei sá sami, ég er svo hepp­inn að vera umkringdur meist­ara­kokkum en sjálfur elda ég aldrei – á móti skal ég glaður sjá um skreyt­ingar og að leggja á borð en ekki hleypa mér inn í eld­hús nema undir ströngu eft­ir­liti.

Flugeldar eða kampavín um áramótin?

Flug­eldar hjá mér alla­vega – ég drekk ekki kampa­vín!

Mynd / Aldís Páls­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Mannlífið

Myndir

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni