Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Kaupfélagsstjórinn sem hvarf í hafið: „Vélin var að missa hæð og neyðarblysi var kastað út“

Hafþór Helgason við flugvélina sína.
Hafþór Helgason við flug­vél­ina sína.

Það var í morguns­árið að skip­verjar á Þrym BA 7 urðu varir við litla flugvél sem flaug lágt yfir þeim. Svo virtist sem flug­maðurinn væri í vandræðum því vélin var að missa hæð. Skyndi­lega var tveimur neyðar­blysum kastað út úr flug­vélinni. Stuttu síðar hvarf vélin í sortann. Flug­maðurinn, kaup­félags­stjórinn Hafþór Helgason fannst aldrei en brak af vélinni fannst fjórum mánuðum síðar.

Morgun­blaðið ræddi við vitni að slysinu á sínum tíma:

„Vélin hvarf í sortann og við sáum ekki hvar hún lenti“



„FLUGVÉLIN birtist okkur úr norðri — flaug lágt þvert yfir okkur. Vélin var að missa hæð og neyðar­blysi var kastað út. Vélin hvarf í sortann og við sáum ekki hvar hún lenti á sjónum,“ sagði Þorsteinn Jónsson, skip­stjóri á Þrym BA 7, í samtali við Mbl. í gær, en skipið var á neta­veiðum um 28 sjómílur vestnorðvestur af Kópanesi. „Við hófum strax leit en aðstæður voru erfiðar, 6—7 vindstig og leiðinda­sjór. Ásamt okkur leituðu þrír bátar og togarinn Vestri frá Patreks­firði. Flugvélar komu fljótlega á staðinn en við urðum einskis varir, — fundum ekkert brak og hættum leit upp úr klukkan ellefu og tókum til við að draga netin, en þá var veður­hæðin 10—11 vindstig og kominn haugasjór,“ sagði Þorsteinn. „Eg var að koma úr róðri laust eftir klukkan sex þegar ég sá flugvél hringsóla yfir bænum. Hún flaug þrjá hringi yfir þorpinu, hækkaði svo flugið og hvarf út fjörðinn,“ sagði Guðni Einarsson, skip­stjóri, á Suðureyri við Súganda­fjörð í samtali við Mbl. „Ég fór upp á flugvöll þar sem mér þótti undarlegt að flugvél skyldi vera á sveimi yfir bænum þegar völlurinn var lokaður, veður að ganga upp og myrkrið grúfði sig yfir bæinn. Ég hélt jafnvel að um sjúkra­flug væri að ræða og hringdi til flug­umsjónar í Reykjavík en þeir vissu ekkert um ferðir vélarinnar,“ sagði Guðni Einarsson.

Tíminn sagði einnig nánar frá málinu:

Árangurs­laus leit að tveggja hreyfla einka­flugvél frá Ísafirði í gær:

SENDI UPP TVÖ NEYÐARBLYS OG HVARF SÍÐAN
Leit verður haldið áfram í dag 

Mikil leit var gerð á sjó og úr lofti að tveggja hreyfla einka­flugvél, TF MAO frá Ísafirði, í allan gærdag. Flug­maðurinn Hafþór Helgason, kaup­félags­stjóri á Ísafirði, var einn í vélinni þegar síðast var vitað um hana. Hann var jafnframt eigandi vélarinnar. Það var laust eftir klukkan sex í gærmorgun að Guðni Einarsson, skip­stjóri á mótor­bátnum Sigurvon ÍS 500 gerði flug­stjórnar­miðstöðinni í Reykjavík vaft um óvenju­lega ferð flugvélar inn á Súganda­firði. „Það var í sjálfu sér ekkert óvenjulegt við flug vélarinnar annað en það hversu snemma hún var á ferðinni. Hún klifraði upp yfir þorpinu og flaug síðan inn fjörðinn í áttina til Ísafjarðar,“ sagði Guðni í samtali við Tímann í gær.“ Það var svo laust fyrir klukkan 07.40 í gærmorgun að loftskeyta­stöðin í Gufunesi tilkynnir að skip­verjar á vélbátnum Þrym BA 7 hefðu orðið flug­vélarinnar varir. „Við vorum að draga línu um 25 sjómílur N-V af Bakkanum þegar flugvélin kom á mikilli ferð úr norðri og flaug mjög lágt rétt hjá okkur. Þegar hún var þvert á okkur sendi hún frá sér tvö rauð neyðar­blys. Síðan hélt hún áfram í suður þar til hún hvarf sjónum okkar. Bátar sem staddir voru sunnan við okkur urðu einskis varir svo ég býst við að vélin hafi hafnað í sjónum,“ sagði Þorsteinn Jónsson, skip­stjóri á Þrym í samtali við Tímann í gær. Strax og fyrri tilkynningin barst til flug­stjórnar þótti ástæða til að grennslast um eftir vélinni þar sem ekki var vitað um neina flug­umferð í grennd við Súganda­fjörð. Margir bátar sem voru á næstu grösum tóku þátt í leitinni. Á vettvang fóru flugvél flugmála­stjórnar, Herculesvél og þyrla frá varnar­liðinu á Kefla­víkur­flugvelli. Leitin bar engan árangur og var henni hætt um klukkan 17 í gær. Verður henni haldið áfram í birtingu.

Fjórum mánuðum síðar, í febrúar árið 1983 fékk togarinn Harðbakur brak úr flug­vélinni í vörpuna. Tíminn sagði svo frá:

Brak finnst úr TF MAO

S.l. fimmtudag þegar togarinn Harðbakur var á veiðum ulþ.b. 30 sjómílur út af Kóp fékk hann brak úr flugvél í vörpuna og var það síðan rannsakað þegar togarinn kom til hafnar. Á Akureyri var brakið rannsakað af loftferða­eftirlitið og að sögn Skúla Jóns Sigurðs­sonar yfirmanns þess er sannað að um er að ræða vænghluta af vélinni TF MAO, sem fórst seint í október s.l. og með henni einn maður, Hafþór Helgason kaup­félags­stjóri á Ísafirði. Að sögn Skúla Jóns var staðurinn þar sem brakið fannst einmitt á þeim slóðum sem talið er að skip­verjar á mb Þrym hafi síðast orðið varir við vélina. Brakið sem fannst var úr hægra væng vélarinnar, vængendinn að hreyfli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning