Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Ágúst greindist 27 ára með ristilkrabbamein: „Hafði enga trú á að nokkuð gæti gengið upp héðan af“

Nýjasti gestur bræðranna Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarps­þættinum Þvotta­húsið er hann Ágúst Kristján Steinarsson stjórnunar­ráðgjafi, tónlistar­maður, fyrir­lesari og rithöfundur. Ágúst er með langa sögu af geðkvillum sem og baráttu við krabba­mein sem þeir tóku púlsinn á í þættinum. Hér er brot úr viðtalinu.

Maga­bólgur sem breyttust í krabba­mein

Ágúst greindist með ristil­bólgur eftir tíðar heim­sóknir á klósettið en aðeins 27 ára fékk hann krabba­mein í ristilinn sem varð til þess að hann var fjar­lægður og gengur hann með stóma í dag.

„Mér var sagt það mjög snemma að sárar bólgur gætu leitt til krabba­meins.“ sagði Ágúst við þá Wiium bræður en aðspurður út úr maga­bólgurnar, hvort þær hafi komið vegna áfalla eða tengdust tilfinninga­lífinu á einhvern hátt svaraði hann: „Ég hef alveg spurt mig að þessu, hef snúið þessu við, ef ég hefði fengið hjálpina sem ég fékk í Danmörku [Innskot blaða­manns: vegna maníu sem hann var greindur með] þegar ég var 19 ára, hvernig hefði lífið orðið þá? Þannig að já, tilfinningar, taugar, heilinn, þetta tengist allt saman. Við vitum það núna, það var ekki vitað þá.“

Ágúst sagði að það hefði verið mikið sjokk fyrir 27 ára gamlan mann að greinast með krabba­mein. „Ég átti þarna eins árs gamla dóttur og hugsaði bara „hvað er nú að gerast? Mun hún missa mig?“ en svo viku seinna er ég mættur undir hnífinn og er skorinn upp. Og nú er ég með stóma“

Bræðrunum vakti mikil forvitni á að vita hver verk­fræðin í kringum þetta væri og spurðu hann spjörunum úr og mest fannst þeim til þess koma að það væri einfald­lega búið að sauma fyrir rassinn enda ekki lengur í notkun þökk sé þessari snilldar verkfræði lækna­vísindanna.

„Í mínu tilfelli er búið að fjarlægja ristilinn og smágirnið kemur út úr magann, það kemur bara svona stautur út og svo plata og poki yfir. Svo fyllist pokinn og ég losa úr honum að neðan.“

Ágústi fannst erfitt fyrst um stund að fara í sund en svo vandist þetta og miðað við það vesen sem hann hafði verið í varðandi meltinguna, er þetta allt annað líf og lífsgæði.

Ágúst á aug­lýs­ingu

Hafði enga trú á að eitthvað gengi upp

Ágúst Kristján segist hlakka til að fagna 10 árum af „frelsi frá sjúkra­húsinu“ en hann segist hafa verið meira og minna á sjúkra­húsi í 14 ár [Innskot blaða­manns: vegna maníu og meltinga­vandræða]. „Það að ég sé hér í dag og á þessum stað er krafta­verk. Ég kom út úr þessum veikindum alveg hreinn en brotinn. Ég var ný skilinn, mér var sagt upp starfi út af öllu havaríinu og vit-laus. Ég hafði enga trú á mér til framtíðar. Ég hafði enga trú á að nokkuð gæti gengið upp héðan af. Þetta gekk í tvö ár, þar sem ekkert gekk upp. En svo gerðist ég jökla­leið­sögumaður og var að leika mér í raun, með ferða­mönnum, með leið­sögumönnum, með jöklum og fjöllum. Og ég í raun hlóð bara batteríin í tvö ár.“

Ágúst fór svo að starfa sem stjórnunar­ráðgjafi og smá saman tók hann lífið fastari tökum og kom sér á þann stað sem hann er á í dag.

Forðast að leggja línurnar

Að lokum spurði Gunnar Ágúst ráða, varðandi hvað við þurfum að gera til að viðhalda góðu andlegu jafnvægi.

„Ég forðast það að leggja línurnar. En frá mínum bæjar­dyrum skal ég láta vaða. Það sem ég er að leitast við að gera er að vera í eigin flæði, eigin takti. Ég ætla ekki að láta aðra stjórna því hvernig ég lifi. Þannig er ég sjálfstætt starfandi og get bara hagað mér eins og ég vil. Eins og til dæmis ef ég finn fyrir lítilli orku þá get ég bara hvílt mig og ekki mætt í dag. Það er bara minn taktur þann daginn. Svo reyni ég að hafa allt í hófi, hversu mikið álagið er og ég skal alveg viðurkenna að ég er ekki alltaf sá duglegastur í því. Svo er það svefn, hreyfing, næring, nærandi samskipti og það að hafa eitthvað outlet, eins og mitt er, sem ég get alltaf treyst á, er að fara í gufu og svo kalda pottinn, þá er ég góður. Ég get bara núll­stillt mig þar. Og líka að fara upp í fjöll og á skíði og fleira. Stundum gleymi ég mér og það er alveg augljóst að ég er kominn á erfiðan stað, þá þarf ég bara að henda mér upp á fjall.“

Þennan einlægja og afslappaða þátt má sjá í heild sinni á spil­aranum hér fyrir neðan sem og að Þvotta­húsið má finna á öllum helstu streymis­veitum, spotify meðal annars. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning