Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Bjarni Ben og framhjáhaldssíðan: „Við höfum aldrei síðan farið inn á þennan vef“

Sjö ár eru liðin frá því að upplýsingur um notendur fram­hjáhalds­síðunnar Ashley Madison var lekið á netið. Þar á meðal var notenda­nafnið Icehot1 sem reyndist vera aðgangur þáverandi fjármála­ráðherra, Bjarna Benedikts­sonar.

„Samkvæmt heimildum Vísis er Bjarni Benediktsson fjármála­ráðherra skráður á vefinn Ashley Madisson undir notenda­nafninu IceHot1. Sá notandi er svo skráður til heimilis að Bradenton 10 34201 1, Flórída. En, það mun vera heimilis­fang föður Bjarna í Banda­ríkjunum,“ sagði í frétt Vísis eftir lekann.

Ásamt heimilis­fangi föður Bjarna var gamalt netfang hans tengt við aðganginn

Flestir fjöl­miðlar tóku þá ákvörðun að segja ekki frá því að upplýsingum Bjarna hefði lekið. Aðstoðar­menn Bjarna þá, Teitur Björn Einarsson og Svanhildur Hólm Vals­dóttir, svöruðu ekki símanum í viku, frá lekanum þar til eiginkona Bjarna, Þóra Margrét Baldvins­dóttir, birti skyndi­lega stöðu­færslu og virtist falla á sverðið fyrir eiginmann sinn.

Hún sagði þau hjónin hafa stofnað aðganginn saman, einungis til að svala eigin forvitni, hálfgert sprell sem endaði í fífla­gangi.  „Við höfum aldrei síðan farið inn á þennan vef. Það var aldrei greitt fyrir skráningu eða aðgang að vefnum. Þessi heimsókn hefur ekki leitt til samskipta við nokkurn mann, hvað þá trúnaðar­brots af neinum toga,“ skrifaði Þóra. Hún sagði þau Bjarna hafa skráð sig árið 2008 en aldrei notað vefinn eftir það.

Stundin greindi síðar frá því að af gögnunum að dæma þá ekki væri betur séð en aðgangurinn hafi verið notaður í um mánaðar­skeið. Erfitt væri þó að fullyrða um það, þar sem sjálf­virkar uppfærslur, skekktu myndina.

Vefurinn virkaði þannig að frítt var fyrir karlmenn að skrá sig en verð var rukkað fyrir að senda konum skilaboð og fyrir að lesa skilaboð frá þeim. Konur gátu þó notað vefinn að kostnaðar­lausu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning