Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Villtur lundi á vappi í Hlíðunum: „Hæstánægður með bílferðina í lögreglubílnum“

Lögreglukonurnar með lundann.
Lög­reglu­kon­urnar með lund­ann. Mynd: Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu.

Lögreglan á höfuð­borgar­svæðinu þurfti að sinna óvenju­legu útkalli í vikunni. Áhyggju­fullur vegfarandi hafði samband vegna lunda, sem af einhverjum ástæðum var á vappi í Suður­hlíðunum í Reykjavík.

„Ekki fylgdi tilkynningunni hvort hann væri særður,“ segir í færslu lögreglu um lundann hugaða.

„Við sendum að sjálfsögðu tvo lögreglu­menn snarlega á staðinn til að kanna málið frekar. Eftir stutta leit fannst lundinn. Hann var ánægður að sjá okkur og var hinn gæfasti í höndum lögreglu.“

Ákveðið var að fara með lundann ljúfa í Húsdýra­garðinn á fund dýra­hirðis, sem að sögn lögreglu tók vel á móti honum og ætlaði að gera viðeigandi ráðstafanir.

Á öllum lýsingum virðist lundinn hafa verið mikið gæðablóð og honum og lögreglu­þjónunum orðið vel til vina.

„Lundinn var mjög rólegur og hæstánægður með bílferðina í lögreglu­bílnum.

Sum útköll eru einfald­lega skemmtilegri en önnur og það má svo sannarlega segja um þetta útkall,“ segir að lokum í tilkynningunni áður en lands­mönnum er óskað góðrar helgar.

Vegfarandinn sem hringt hafði á lögreglu vegna lundans skrifar í athugasemd við færsluna að hún hafi næstum verið búin að hjóla á hann.

„Hann tók ekki í mál þrátt fyrir strangar samninga­viðræður að fara í átt að sjónum og stefndi í allt aðra átt svo mér fannst vissara að hann kæmist í smá tékk áður en hann yrði undir einhverju farartæki. Gott að heyra að hann hafi komist í góðar hendur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað