Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Uppáhaldsáhrifavaldur Brynjars: „Lítur út fyrir að vera húsvörður eða rútubílstjóri“

Brynjar Níelsson á sér uppáhalds-fjölmiðlastjörnu. Myndin er samsett
Brynjar Níelsson á sér upp­á­halds-fjöl­miðla­stjörnu. Myndin er sam­sett

Brynjar Níelsson fyrrum alþings­maður ritaði færslu á Fésbókar­síðu sína þar sem hann tjáir sig um nýjar fjölmiðla­stjörnur Íslendinga. Þar segir hann jafnframt að fréttir frá gosinu séu eins og að horfa á sömu heimildar­myndina ár hvert:

„Nú er þriðja eldgosið á jafn mörgum árum á Reykjanesinu. Að fylgjast með fjöl­miðlum núna er eins og að horfa á sömu heimilda­myndina á hverju ári. Nú, eins og síðustu ár, eru jarð­vísindamenn og almanna­varnar­fulltrúar sann­kallaðar fjölmiðla­stjörnur og áhrifa­valdar og verða væntanlega í nokkrar vikur á hverju ári ef þessi gosframleiðsla heldur áfram.“

Hann vill meina að jarð­vísindamenn og almanna­varnar­fulltrúa séu hinir nýju áhrifa­valdar og ímyndar sér að það hljóti að vera erfitt að þurfa að svara sömu spurningunum ár hvert án nokkurra svara:

„Nú, eins og síðustu ár, eru jarð­vísindamenn og almanna­varnar­fulltrúar sann­kallaðar fjölmiðla­stjörnur og áhrifa­valdar og verða væntanlega í nokkrar vikur á hverju ári ef þessi gosframleiðsla heldur áfram. Hlýtur að vera erfitt að þurfa að svara sömu spurningunum ár hvert án þess að hafa svör.“

Brynjar er sérlega ánægður með einn þeirra og á sér orðið uppáhalds­áhrifavald sem er Þorvaldur Þórðarson, prófessor í eldfjalla­fræðum:

„Þessir nýju áhrifa­valdar eru þó skemmtileg tilbreyting frá lista­mönnum sem eru sífellt gjammandi um hluti sem þeir hafa ekki vit á, svo ég tali nú ekki um fallna þingmenn sem halda að þeir hafi eitthvað fram að færa. Þorvaldur Þórðarson, prófessor í eldfjalla­fræðum, er í sérstöku uppáhaldi hjá mér. Talar hreint út á skiljanlegu máli og lítur út fyrir að vera húsvörður eða rútu­bílstjóri frekar en vísinda­maður.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt