Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Launalækkun bæjarstjóra Garðabæjar – „[…]voru því bæði einfölduð og lækkuð frá því sem áður var.“

Mynd/Facebook
Mynd/Facebook

Ráðninga­samningur Almars Guðmunds­sonar bæjar­stjóra Garða­bæjar var samþykktur með þremur atkvæðum gegn einu í bæjarráði í gær. Einn bæjar­fulltrúi sat hjá í atkvæða­greiðslunni. Samningurinn verður lagður fram í bæjar­stjórn til stað­festingar.

Samkvæmt samningnum eru grunnlaun Almars 2.194.168 krón­ur á mánuði. Grunn­launin verða endur­skoðuð 1. júní ár hvert í samræmi við breytingar á launa­vísitölu Hagstofu Íslands. Auk þessa fær hann ýmis hlunnindi eins og t.d. bifreiða­styrk sem nemur 105.832 krónum á mánuði og laun í 6 mánuði eftir að starfi hans sem bæjar­stjóra lýkur.

Svo skemmtilega vill til að samtala grunn­launa og bifreið­styrks nýráðins bæjar­stjóra gera sléttar 2.300.000 krónur.

Á öndverðum meiði

Meiri- og minni­hlutinn lögðu fram ólíkar skoðanir á launum nýráðins bæjar­stjóra.

Ingvar Arnarson hjá Garða­bæjar­listanum, lagði fram eftir­farandi bókun á fundi bæjarráðs Garða­bæjar í gær.
„Hérna höfum við samning sem er gerður af Sjálfstæðis­flokknum við oddvita þeirra og það án allrar aðkomu minni­hlutans. Við í Garða­bæjar­listanum viljum hafa laun bæjar­stjóra lægri en þau sem eru í þessum samningi. Við teljum þetta of há laun fyrir þau störf sem bæjar­stjóri í 18.000 manna sveitar­félagi á að fá.

Samkvæmt bókun Bjargar Fenger, bæjar­fulltrúa Sjálfstæðisflokkins kemur fram: „Við gerð ráðningar­samnings um starfs­kjör bæjar­stjóra Garða­bæjar var horft til starfs­kjara bæjar­stjóra í sveitar­félögunum í kring. Starfs­kjör bæjar­stjóra Garða­bæjar voru því bæði einfölduð og lækkuð frá því sem áður var. Þess má geta að í ráðningar­samningnum er nú kveðið á um bifreiða­styrk vegna afnota bæjar­stjóra á eigin bíl í stað þess að bæjar­stjóra sé látið í té bifreið vegna starfsins.
Full­yrðingu um að Garðabær sé á einhvern hátt að taka sér stöðu gegn almennri launa­þróun í landinu er hafnað.“

128 kr á íbúa

Samkvæmt léttum útreikningum Mannlífs á launum bæjar­stjóra Garða­bæjar og þeim deilt niður á íbúa­fjölda gerir það u.þ.b. 128 krónur á hvern íbúa í sveitar­félaginu. Myndi það jafngilda um það bil 17 milljónum króna í laun borgar­stjóra Reykja­víkur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra