Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Skoðun

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Fólk

Hlýlegt heim­ili með grónum garði í Skerja­firði til sölu

Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum

Tvær þríburasystur hurfu sporlaust í Skotlandi – Lík fannst í á nærri staðnum sem þær sáust síðast

Henrietta og Eliza
Hen­ri­etta og Eliza Mynd: Trausti Hafsteinsson

Lík konu hefur verið fundið í á í Aberdeen, Skotlandi en leit hefur staðið yfir tveimur týndum þrí­bura­systrum, sem sáust síð­ast nærri ánni 7. jan­úar.

Hen­ri­etta og Eliza Huszti, 32 ára og þrí­burar, sáust síð­ast nálægt ánni Dee í Aberdeen, Skotlandi þann 7. jan­úar en gríð­ar­lega mikil leit var gerð að þeim í nokkrar vikur. Lík hefur nú fund­ist nærri þeim stað sem þær sáust síð­ast.

Lög­reglan í Skotlandi sagði að til­kynnt hefði verið um lík sem sést hefði í ánni, nálægt Queen Elizabeth-brú, um klukkan 07: 55 í morgun. Snemma á morgun þann 7. jan­úar sendu syst­urnar sms-skila­boð til hús­ráð­anda sinn frá brúnni til að segja að þær myndu ekki snúa aftur í íbúð­ina sína.

Lög­reglu­menn hafa ekki með­höndlað málið sem saka­mála­rann­sókn, heldur sem manns­hvarf. Eliza og Hen­ri­etta fluttu til Skotlands frá Ung­verja­landi fyrir um tíu árum og var þeim lýst sem félags­lyndum en vildu helst vera heima hjá sér. Þrí­bura­bróðir þeirra Jozsef sagði að þær hafi virst vera „alveg í lagi“ dag­ana áður en þær hurfu.

Lög­reglan í Skotlandi sagði í yfir­lýs­ingu: „Okkur var gert grein fyrir líki mann­eskju sem sást í ánni Dee nálægt Queen Elizabeth-brú í Aberdeen um klukkan 07:55 í morgun. Líkið hefur verið sótt úr vatn­inu og rann­sókn stendur yfir.“

Á mánu­dag­inn til­kynnti lög­reglu­sveitin að hún myndu hætta leit sinni í ánni og hafn­ar­svæð­inu, en að víð­tæk­ari aðgerð til að finna syst­urnar, þar á meðal Duthie Park, væri í gangi og myndi ná yfir strand­svæði norðan og sunnan Aberdeen.

Lög­reglan sagði einnig að ekk­ert benti til þess að neitt glæp­sam­legt tengd­ist hvarfi þeirra systra. Yfir­lög­reglu­þjónn­inn David Howieson sagði á fyrri stigum máls­ins: „Við höfum skoðað tals­vert af opin­berum og einka­reknum eft­ir­lits­mynda­vélum þegar við höfum reynum rekja ferðir systr­anna. Nokkrar klukku­stundir af myndefni eru til skoð­unar af sér­stöku teymi lög­reglu­manna og við höfum hingað til kom­ist að því að Eliza og Hen­ri­etta voru við göngu­stíg­inn við hlið­ina á ánni Dee klukkan 14:50 mánu­dag­inn 6. jan­úar. Þó að syst­urnar hafi ekki átt sam­skipti við neinn á þessum tíma hefði svæðið verið þaul­setið og við erum áhuga­samir um að tala við alla sem kunna að hafa séð þær.“

Texta­skila­boð voru send úr far­síma Hen­ri­ettu til hús­ráð­enda systr­anna um klukkan 02:12 dag­inn sem syst­urnar sáust síð­ast. Í skila­boð­unum sagði að þær myndu ekki snúa aftur í íbúð­ina sína. Síminn var síðan aftengdur net­inu. Hús­ráð­andi þeirra fann per­sónu­lega muni systr­anna í íbúð­inni og til­kynnti hún síðan áhyggjur sínar til lög­reglu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ung­lingar hand­teknir í Póllandi grun­aðir um und­ir­bún­ing hryðju­verka

Handtökurnar koma aðeins nokkrum dögum eftir skotárás í Kraká þar sem sex manns létust. Mikil óvissa og ótti ríkja í landinu eftir árásina.
Pólitík

Ingvar yfir­gefur Viðreisn

Pólitík

„Ísland á ekki að vera þekkt sem sölu­staður vændis“

Innlent

Íslend­ingar flykkj­ast á bóka­söfnin sem aldrei fyrr

Heimur

Heimur

Stærsta rann­sókn sinnar teg­undar sýnir að eft­ir­sjá vegna kyn­leið­rétt­ingar er afar sjald­gæf

Í rannsókn sem birtist í JAMA Pediatrics var könnuð reynsla fólks sem hóf hormónameðferð á unga aldri. Langflestir töldu meðferðina rétta ákvörðun.
Heimur

Stefan Holm ákærður fyrir lík­ams­árás eftir árás á Emil Persson

Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni