Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Lögreglan kallaði eftir virðingu í miðju partýinu

Lögreglumenn við störf
Lög­reglu­menn við störf Mynd: BHJ

Nokkuð var um umferðar­lagabrot hjá lögreglunni á höfuð­borgar­svæðinu í gærkvöldi og nótt. Meðal annars voru ökumenn stöðvaðir undir áhrifum vímuefna og án ökuréttinda, auk þess sem einstaklingur féll af rafhlaupahjóli á mikilli ferð.

Lögregla stöðvaði ökumann við almennt eftirlit sem reyndist vera undir áhrifum vímuefna og án ökuréttinda. Hann var hand­tekinn og fluttur á lögreglustöð þar sem málið var tekið til hefð­bundinnar meðferðar. Honum var sleppt að henni lokinni.

Annar ökumaður var stöðvaður við almennt eftirlit og kom þá í ljós að hann hafði verið sviptur ökuréttindum. Málið var afgreitt með vettvangs­skýrslu.

Þá barst lögreglu tilkynning um bifreið sem ekið var með glæfra­legum hætti í vestur­hluta Reykja­víkur. Lögreglu­menn höfðu uppi á bifreiðinni og reyndist ökumaður hennar einnig vera án ökuréttinda. Málið var afgreitt með vettvangs­skýrslu.

Lögreglu var jafnframt tilkynnt um einstakling sem féll af rafhlaupahjóli á mikilli ferð. Ekki lágu fyrir upplýsingar um umfang meiðsla þegar dagbók lögreglu var send út.

Í öðru umferðar­slysi hafði bifreið verið ekið á ljósa­staur. Engin slys urðu á fólki en bifreiðin varð fyrir tjóni.

Enn einn ökumaður var stöðvaður við almennt eftirlit og reyndist hann undir áhrifum vímuefna. Hann var hand­tekinn og færður á lögreglustöð en sleppt að lokinni hefð­bundinni máls­meðferð.

Lögregla hafði einnig afskipti af ökumanni vegna filma í framrúðum bifreiðar hans. Vettvangs­skýrsla var rituð og bifreiðin boðuð í skoðun á eftirlitsstöð.

Auk umferðar­málanna var tilkynnt um þjófnað úr verslun og er málið til rann­sóknar. Þá barst tilkynning vegna samkvæmis­hávaða og var húsráð­anda gert að virða svefnfrið annarra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag